Morgunblaðið - 27.11.2021, Page 2

Morgunblaðið - 27.11.2021, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021 SVARTUR FÖSTUDAGUR 30% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM ALLA HELGINA KÓÐI Í VEFVERSLUN: SVARTUR LINDESIGN.IS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Útlit er fyrir að vínbúð ÁTVR í miðbæ Reykjavíkur verði flutt úr Austurstræti og út á Granda. Sig- rún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðar- forstjóri ÁTVR, sagði í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins í gær að húsnæðið á Fiskislóð 10, þar sem Íslandsbanki var áður til húsa, hafi uppfyllt skilyrði um staðsetningu og þær kröfur sem gerðar voru í aug- lýsingu ÁTVR á dögunum. „Næsta skref er að fara í við- ræður við eigendur húsnæðisins á Fiskislóð 10 og sjá hvort samningar nást. Það verður ekki fyrr en niður- staða liggur fyrir úr þeim viðræðum að ákvörðun verður tekin um opnun nýrrar vínbúðar og þá hugsanlega lokun á vínbúðinni í Austurstræti,“ segir Sigrún. Eins og komið hefur fram voru fjórar staðsetningar boðnar fram þegar ÁTVR auglýsti nýverið eftir að taka á leigu húsnæði fyrir vín- búð. Voru þær á Kirkjusandi, Fiski- slóð, Hallveigarstíg 1 og í JL- húsinu við Hringbraut. Talsverður kurr hefur verið yfir þessum tíðindum á samfélags- miðlum og netmiðlum. Margir hafa gert athugasemdir við að vínbúð verði flutt úr miðbænum og út á Granda en það komi sér illa fyrir þá sem ekki ferðast með bíl. Sigrún segir við Morgunblaðið að ólíklegt sé að búðin í Austurstræti verði áfram opin ef samningar nást um nýtt húsnæði á Fiskislóð. hdm@mbl.is Útlit fyrir að vínbúðin fari úr miðbænum og út á Granda - Viðræður um húsnæði á Fiskislóð - Margir óánægðir Morgunblaðið/sisi Breytingar Vínbúðin í Austurstræti þykir óhentug fyrir áfengissölu. Lögreglan á Suðurlandi varaði í gær fólk við þeim hættum sem eru af ferð- um um vatnasvið Grímsvatna, annars vegar vegna sigs íshellunnar og jökulsprungna sem myndast við slíkt sig, og hins vegar vegna afleiðinga eldgoss sem ekki er hægt að útiloka að fylgi í kjölfar hlaups. „Sig íshellunnar í Grímsvötnum getur náð 100 metrum sem veldur því að hættulegar jökulsprungur geta myndast á ferðaleiðum. Auk þess geta myndast sprungur yfir hlaupfar- veginum sem liggur austan við Grímsfjall og niður Skeiðarárjökul. Þegar hlaupið kemur undan Skeiðar- árjökli getur gas losnað úr hlaupvatn- inu sem fer yfir heilsuverndarmörk,“ segir í tilkynningunni. Þá sýni dæmin einnig að í lok jökulhlaupa í Grímsvötnum geti haf- ist eldgos með tilheyrandi öskufalli. Mjög hættulegt getur verið að vera á jöklinum ef eldgos hefst og í sam- ráði við Jöklarannsóknarfélagið verð- ur skálum á Grímsfjalli lokað á með- an ástandið varir. Varað við ferðum um Grímsvötn - Ekki hægt að úti- loka að eldgos hefjist Jólaljós voru tendruð á jólatrénu á Húsavík í gærmorgun, en vegna samkomutakmarkana voru ljósin kveikt í tvígang fyrir yngstu íbúa Húsavíkur. Komu Skyrgámur, Stekkjastaur og Giljagaur færandi hendi ofan af fjöllum og gengu með börnunum í kringum jólatréð. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Ljós tendruð á jólatré Húsvíkinga Guðni Einarsson gudni@mbl.is Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins báru fram fyrirspurn í átta liðum um Malbikunarstöðina Höfða á fundi borgarráðs nýverið. Þar var m.a. spurt um áætlaðan kostnað af flutn- ingi stöðvarinnar á nýja lóð í Hafnar- firði. Einnig hvernig flutningarnir verða fjármagnaðir og hvort borgin ætli að ganga í ábyrgðir fyrir félagið í því samhengi. Þá var spurt hvernig á því stæði að Höfði skilaði neikvæðri rekstrarnið- urstöðu á síðasta rekstrarári og hvort von væri á betri niðurstöðu fyrir þetta ár. Einnig hvaða áhrif flutningurinn á nýja lóð myndi hafa á starfsemina og hvort nýja staðsetn- ingin væri hugsuð til lengri tíma. Auk þess var spurt um ástæður þess að Malbikunarstöðin Höfði var valin í meirihluta útboða hjá Reykjavík- urborg en gekk ekki eins vel í útboð- um hjá Vegagerðinni. Loks hvort komið hefði til álita að selja stöðina í stað þess að leggja í kostnaðarsama flutninga. „Malbikunarstöðin Höfði er í eigu Reykjavíkurborgar og borgin kaupir síðan malbik af þessari stöð sem hún á sjálf. Í staðinn fyrir að selja þessa stöð og fara út af þessum markaði, eins og væri skynsamlegt, þá stefnir borgin á að flytja hana í Hafnarfjörð. Það er algjör tímaskekkja að Reykjavíkurborg sé að reisa og reka malbikunarstöð. Svo er táknrænt að ekki tókst að finna heppilega lóð fyr- ir þessa starfsemi í landi Reykjavík- ur. Það er mjög sérstakt,“ segir Ey- þór Arnalds, borgarráðsmaður og oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, við Morgunblaðið. Hlutdeild í útboðum úr 73 í 91% Hann segir það stinga í augun hvernig Malbikunarstöðinni Höfða hafi farnast í útboðum Vegagerðar- innar og Reykjavíkurborgar. Það eru stærstu aðilarnir í útboðum á malbikunarmarkaði. Viðskiptaráð gerði úttekt 2017 þar sem kom fram að Malbikunarstöðin Höfði, sem er í eigu borgarinnar, var valin í 73% út- boða Reykjavíkurborgar vegna mal- biksyfirlagningar á árunum 2008 til 2016. Athugun á útboðum á árunum 2017-2020 sýndi að hlutdeild Höfða í útboðum borgarinnar hafði aukist í 91%. Hins vegar fékk Malbikunar- stöðin Höfði ekki nema eitt verk í út- boðum Vegagerðarinnar 2017-2020. „Ég held að það opni fyrir hags- munaárekstra að vera að bjóða út malbikun og reka um leið eigin mal- bikunarstöð sem býður í verk á móti öðrum,“ segir Eyþór. Hann bendir á að borgin hafi bundið fé í malbik- unarstöðinni, ljósleiðaraneti og fleiri fyrirtækjum. „Á sama tíma er borgin að taka að láni tvo milljarða króna í hverjum mánuði,“ bætir hann við. Vilja svör um malbikunarstöðina - Margt varðandi Malbikunarstöðina Höfða vekur spurningar borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins - Furðu vekur að stöðinni gekk vel í útboðum eiganda síns en ekki eins vel í útboðum Vegagerðarinnar Mogunblaðið/sisi Malbik Reykjavíkurborg á og rekur malbikunarstöðina Höfða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.