Morgunblaðið - 27.11.2021, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2021
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
É
g kom heim til Íslands í
tvo mánuði í sumar og sá
hver staðan var með
mömmu, en hún er með
alzheimer og býr enn heima og þarf
mikla aðstoð. Við Dylan hundurinn
minn ákváðum því að flytja heim til
hennar í haust, í það minnsta í eitt
ár,“ segir Ingibjörg Rósa Björns-
dóttir, en hún hefur búið í Skotlandi
og Englandi undanfarin níu ár, þar
sem hún starfar sem blaðamaður og
einnig sem uppistandari í hjáverk-
um.
„Við systkinin erum þakklát
fyrir að þó mamma sé með heilabilun
þá er hún alltaf glöð, henni líður vel
og hún er mjög meðfærileg. Hún er
á biðlista að komast á stofnun en við
hugsum um hana heima fram að því.
Hún fer á hverjum degi í dagþjálfun
hjá Maríuhúsi, og ég vann þar í
sumarafleysingum í sumar, til að
vera meira með henni. Eftir að ég
flutti heim núna í haust þá vinn ég
þar þrjá daga vikunnar. Mér finnst
mjög skemmtilegt og gefandi að
vinna með þeim heilabiluðu ein-
staklingum sem koma í dagþjálfun
til okkar. Mér finnst áhugavert að
sjá hvað það eru margar tegundir af
heilabilun og hvernig þetta birtist
með ólíkum hætti hjá hverjum og
einum. Ég tek Dylan með mér í vinn-
una og skjólstæðingar mínir kunna
vel að meta það að fá að klappa hon-
um og spjalla við hann. Dylan bjarg-
aði mér alveg þegar ég var innilokuð
í Edinborg í útgöngubanni í covid.
Ég mátti ekki heimsækja neinn og
enginn mátti koma til mín. Fyrir vik-
ið snerti mig ekki önnur manneskja í
fjóra mánuði, því ég bjó ein, og þá
var sannarlega yndislegt að eiga
hund eins og Dylan, til að knúsa og
klappa.“
Halda virðingu í klæðnaði
Ingibjörg Rósa gerði sér lítið
fyrir og opnaði nýlega vefverslunina
svigrúm.is, þar sem hún býður upp á
fatnað sem veitir fólki svigrúm til að
halda sjálfstæði og sjálfsvirðingu
þrátt fyrir ýmsar hindranir í dag-
legu lífi.
„Við það að hjálpa mömmu að
klæða sig, þá fann ég sannarlega fyr-
ir þörf á svona fötum. Fólk vill ekki
aðeins þægileg föt sem auðvelt er að
klæða sig í eða láta aðra hjálpa sér í,
heldur þurfa þau líka að vera falleg,
ekki eins og náttföt. Það skiptir
marga máli að halda virðingu sinni í
tengslum við klæðnað. Það er mikil-
vægt að fá að vera skvísa þó aldur
færist yfir, fyrir þær konur sem vilja
það og eru vanar því. Sama er að
segja um herramennina. Einnig
verður það að klæða sig orkufrek að-
gerð og kvíðvænleg þegar fólk ræð-
ur illa við það. Mamma var farin að
vakna á nóttunni, hún kveið svo fyrir
að klæða sig á morgnana þegar hún
var ein, hún óttaðist að vera ekki
tilbúin þegar hún yrði sótt í dag-
þjálfunina. Ermaop þurfa að vera
víð, flíkur opnar að framan með föld-
um frönskum rennilás, engar tölur
eða hnappar, ekki stöm efni, og
fleira í þeim dúr fyrir fólk sem á erf-
itt með að klæða sig,“ segir Ingi-
björg Rósa og bætir við að fata-
merkið heiti The Able Label, og sé
lítið breskt fatamerki sem Katie
nokkur Ellis stofnaði.
„Hún fór upphaflega að hanna
fötin til að hjálpa ömmu sinni sem
var með parkinsonssjúkdóminn.
Þetta eru föt fyrir fólk sem glímir
daglega við ýmsar áskoranir, hand-
skjálfta, kreppta fingur eða útlima-
vöntun, sem og hreyfiskerðingu og
verkstol vegna heilabilunar, tauga-
hrörnunarsjúkdóma, gigtar eða ann-
ars. Fötin koma sér líka vel fyrir fólk
eftir skurðaðgerðir og tímabundin
veikindi og fólk með óþolinmóða
þvagblöðru.“
Ingibjörg býður líka upp á ein-
faldar sjónvarpsfjarstýringar með
stórum, fáum litsterkum tökkum,
sem henta vel þeim sem illa ráða við
slík tól með mörgum samlitum litlum
tökkum.
Að hjálpa gefur mér mikið
Ýmislegt hefur gengið á hjá
Ingibjörgu Rósu undanfarin misseri,
hún greindist með brjóstakrabba-
mein fyrir þremur árum og kláraði
aðalmeðferðina um mitt ár 2019.
„Ég fór í mína krabbameins-
meðferð úti í Edinborg, því þar var
mitt heimili og ég var inni í sjúkra-
kerfinu. Ég fékk mína meðferð án
þess að þurfa að borga krónu. Í Ed-
inborg er einn fremsti spítali
krabbameinsrannsókna í Evrópu,
svo það kom ekkert annað til greina
fyrir mig. Vissulega hefði verið ein-
faldara að koma hingað heim í með-
ferð, þar sem fólkið mitt býr, en mér
fannst gott að fara í gegnum þetta
ein og ég vildi vera með smá fjar-
lægð. Ég vildi ekkert endilega að
fólkið mitt þyrfti að horfa upp á mig í
þessu ástandi,“ segir Ingibjörg Rósa
og játar því að vissulega hafi þessi
lífsreynsla breytt henni.
„Það er sannarlega klisja og
væmið að segja það, en mér finnst ég
vera orðin betri manneskja. Ég á
auðveldara með að láta mér þykja
vænt um fólk og ég reyni að láta
kærleikann ráða för í öllu sem ég
geri. Ég hef farið út í að aðstoða fólk,
aðallega konur, við að komast yfir
allskonar áföll, og það gefur mér
mjög mikið. Þegar ég hafði lokið
minni krabbameinsmeðferð þá var
mér efst í huga að gefa af mér og
hjálpa fólki, elska fólk. Ég veit vel að
ég get ekki bjargað heiminum, en
hver og ein manneskja sem ég að-
stoða og leiðbeini skiptir máli. Við
eigum bara eitt stutt líf, og vitum
ekkert hversu mikill tími okkur er
gefinn, þess vegna skiptir máli að
gera það besta úr lífinu,“ segir Ingi-
björg Rósa sem ætlar að halda kynn-
ingarkvöld á fatnaðinum frá The
Able Label, um leið og covid leyfir.
„Ég sendi hvert á land sem er,
og ef fólk vill máta eða skoða áður en
það kaupir flíkur, þá getur það haft
samband við mig í síma 8680313 eða
sent tölvupóst á info@svigrum.com.
Nánar á vefversluninni:
svigrum.com og á facebook:
svigrúm.is
Klæðilegt Föt fyrir aldraða eða aðra hreyfihamlaða þurfa ekki að vera eins og náttföt, heldur eiga að vera falleg.
Við eigum aðeins eitt stutt líf
„Þegar ég hafði lokið krabbameinsmeðferð var mér efst í huga að gefa af mér og hjálpa fólki,“ segir Ingibjörg Rósa sem flutti til Íslands til
að aðstoða við umönnun móður sinnar sem er með alzheimer. Í vefverslun hennar fást föt fyrir þá sem eiga erfitt með að klæða sig.
Morgunblaðið/Eggert
Vinir Ingibjörg Rósa og hundur hennar Dylan Moran, sem hún nefndi eftir írskum uppistandara, en sá datt á hjóli
rétt fyrir framan hana á þeim degi sem hún fékk hundinn. Dylan Moran hefur komið til Íslands með uppistand.
Einfalt Engar tölur eða hnappagöt
eru á flíkunum frá The Able Label.
Lækjargata 4, 101 Reykjavík
Til sölu áhugaverð þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð í lyftuhúsi við Lækjargötu 4, 101 Reykjavík. Íbúðinni fylgir stæði í lokuðu
bílastæðahúsi. Stærð samtals 104,2 m2. Íbúðin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og góðar svalir í
vestur. Ágætar innréttingar. Gólfefni gegnheilt parket flísar og dúkur. Íbúðinni fylgir góð sér geymsla. Húsinu er vel viðhaldið með
góðri sameign. Dyrasími með myndavél. Íbúðin getur verið laus við kaupsamning. Frábær staðsetning og útsýni.
Pantið einkaskoðun í síma 892 6000 eða magnus@fasteignamidstodin.is