Morgunblaðið - 10.11.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.11.2021, Qupperneq 1
ÞARF AÐ EFLA NÁMIÐFÝLUFERÐTIL GLASGÓ Jólasnapsinn frá Álaborg svíkur engan á aðventunni 8 Til að leysa vandamál heimsins þarf færri loftslagsráðstefnur og fleira fólk eins og Norman Borlaug. VIÐSKIPTA 11 Diðrik hjá leikjaframleiðandanum Porcelain Fort- ress segir það áskorun að finna fólk með réttu reynsluna og menntunina í tölvuleikjagerð.10 MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2021 Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðj- unnar, segir að fyrirtæki á einka- markaði horfi til þess að opinberir að- ilar sýni ábyrgð ef halda á verðbólgu niðri. Vísar Árni þar til fréttar í Morgunblaðinu í síðustu viku þar sem fram kom að Sorpa hygðist hækka gjaldskrá sína um rúmlega þrjátíu prósent. Hann segir það ekki ganga að hið opinbera hækki gjaldskrár nánast án mótstöðu og búi þannig til aukinn kostnað í rekstri fyrirtækjanna. „Við flokkum hjá okkur sorp og það segir sig sjálft að svona hækkun skilar sér á endanum út í vöruverð,“ segir Árni í ítarlegu samtali við ViðskiptaMogg- ann. Hann segir að þær raddir gerist nú háværari að verslunar- og þjónustu- fyrirtæki sýni ábyrgð til að koma í veg fyrir verðbólgu. Það sé þó hæg- ara sagt en gert. „Við höfum orðið fyrir geysilegum hráefnahækkunum út af kórónuveirunni, en einnig hafa orðið miklar hækkanir á flutnings- kostnaði. Það virðist lítið lát ætla að verða á því. Verð gámaflutninga frá Asíu hefur til dæmis allt að fjór- til sexfaldast.“ Spurður að því hvernig Húsasmiðj- an mæti þessum erfiða veruleika segir Árni að til lengri tíma skili kostn- aðarverðshækkanir sér óhjákvæmi- lega út í vöruverð, nema það takist að hagræða á móti. „Við höfum náð að einfalda marga ferla og lækka kostnað, en stærri kostnaðarverðsbreytingar skila sér óhjákvæmilega á endanum út í vöruverðið,“ segir Árni Stefánsson. Opinberir aðilar sýni ábyrgð Morgunblaðið/Eggert Árni segir kostnað hafa hækkað. Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar, segir það ekki ganga að hið opinbera hækki gjaldskrár nánast án mótstöðu. 6 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Lentir þú í tjóni? Vinnum fyrir öll tryggingafélög Skútuvog 4 | Sími 528 8888 | bilaréttingar.is Fagmenn í yfir 35 ár TÍMAPANTANIR 528 8888 Græða minna á verðtryggingunni Um allt fjármálakerfið hríslast áhrif þess að verðtryggingin spilar sífellt smærri rullu. Lán- takendur hafa á síðustu misserum greitt upp verðtryggð lán í gríð og erg með endur- fjármögnun þar sem óverðtryggð lán hafa orð- ið fyrir valinu. Nýir lántakendur hafa sömu- leiðis kosið að sækja í óverðtryggða vexti. Hefur þetta gerst samhliða öðrum breytingum á fjármálamarkaði þar sem bankar og lífeyr- issjóðir hafa boðið í auknum mæli upp á óverð- tryggða fjármögnun, bæði á föstum vöxtum og breytilegum. Þrátt fyrir það hefur verðtrygg- ingin enn áhrif í áhættustýringu bankanna og meta sérfræðingar stofnana á hverjum tíma þá áhættu sem skapast getur á fjárhagsstöðu og sjóðstreymi þeirra eftir því hvernig verðbólg- an í landinu þróast. Leitast bankarnir við að draga úr ójafnvægi milli verðtryggðra eigna og skulda en það er þó ekki úr sögunni. Þannig má sjá að svokallaður verðtrygging- arjöfnuður Landsbankans er um þessar mund- ir jákvæður um 68,3 milljarða króna. Þýðir það að ef vísitala neysluverðs hækkar um eina pró- sentu þá eykst vaxtamunur bankans um 683 milljónir króna. Það er þó mun minna en verið hefur síðustu ár. Þannig má sjá af reikningum bankans að verðtryggingarjöfnuðurinn stóð í 207 milljörðum í árslok 2016. Þýddi það að við eins prósentustigs hækkun vísitölu neyslu- verðs jukust vaxtatekjur bankans um 2.070 milljónir króna. Minni hjá hinum tveimur Þrátt fyrir að þessi ójöfnuður hafi minnkað mjög hjá Landsbankanum er hann þó enn meiri þar á bæ en hjá Arion banka og Íslands- banka. Í tilfelli síðarnefnda bankans er verð- tryggingarjöfnuðurinn jákvæður um 10,1 milljarð nú en var 36 milljarðar á sama tíma fyrir ári síðan. Í tilfelli Arion banka er jöfn- uðurinn jákvæður sem nemur 18 milljörðum nú og hefur minnkað verulega síðasta árið þegar hann stóð í 49 milljörðum króna. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Fjármálakerfið tekur stakkaskipt- um með minni áherslu á verð- tryggingu. Bankarnir græða minna á verðbólgunni en áður var. Morgunblaðið/Golli Bankarnir hafa sífellt meiri hag af stöðugu verðlagi og eru því á sama báti og almenningur. EUR/ISK 10.5.'21 9.11.'21 160 155 150 145 140 135 150,75 150,25 Úrvalsvísitalan 3.500 3.300 3.100 2.900 2.700 2.500 10.5.'21 9.11.'21 2.968,76 3.348,32

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.