Morgunblaðið - 10.11.2021, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2021FRÉTTIR
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR
Minnsta lækkun
REITIR
-4,14%
81,00
Mesta hækkun
ICEAIR
+2,02%
1,77
S&P 500 NASDAQ
-0,08%
15.927,656
+0,18%
4.688,30
0,00%
7.280,19
FTSE 100 NIKKEI 225
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
-1,71%
29.285,46
90
70
50
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)GULLVERÐ ($/únsu)
10.5.'21
1.500
2.000
1.837,5
10.5.'21
83,75
9.11.'21
68,32
9.11.'21
1.831,5
Á fyrstu tíu mánuðum ársins
greiddu íbúar Reykjavíkur 69,4
milljarða króna í útsvar til sveit-
arfélagsins, er það 8,6% hækkun
frá síðasta ári þegar útsvars-
greiðslurnar námu 63,8 millj-
örðum króna. Þetta má lesa út úr
uppfærðu talnaefni Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga. Þar má
einnig sjá að frá síðustu sveit-
arstjórnarkosningum árið 2018
hafa útsvarstekjurnar á verðlagi
hvors árs hækkað um 16%.
Nemi hækkanir útsvarstekna
sama hlutfalli það sem eftir líður
þessa árs eins og verið hefur á
fyrstu 10 mánuðunum munu þær
þegar árið verður gert upp nema
85 milljörðum eða tæpum 7 millj-
örðum meira en á árinu 2020.
Skuldirnar hlaðast upp
Sé hin mikla tekjuaukning sett
í samhengi við skuldasöfnun
borgarinnar koma forvitnilegir
hlutir í ljós. Þannig má lesa út úr
greinargerð með fjárhagsáætlun
borgarinnar að hreinar skuldir
og skuldbindingar borgarinnar
muni nema 123 milljörðum króna
í lok þessa árs og að hlutfall
þeirra af tekjum borgarinnar (út-
svarstekjum, fasteignagjöldum
o.fl.) muni verða 91,7%. Hins
vegar er gert ráð fyrir því, líkt
og meðfylgjandi súlurit sýnir, að
skuldirnar muni hækka gríð-
arlega á komandi árum og nema
180 milljörðum króna í árslok
2025. Strax árið 2023 mun hlut-
fall skulda og skuldbindinga af
tekjum hafa náð 110% af tekjum
borgarinnar. Sé horft til breyt-
inga milli áranna 2019 og 2023
sést því glögglega að skuldahlut-
fallið versnar um rúm 100% á
fjórum árum.
Enn mun syrta í álinn
Samkvæmt áætlunum borgar-
innar munu skuldahlutföllin
áfram versna á árinu 2024 og
nema 112,1% af tekjum. Hins veg-
ar er gert ráð fyrir að hlutfallið
lækki aftur í 107,6% árið 2025, á
þriðja ári næsta kjörtímabils.
Segir í greinargerð borgarinnar
að það sé fyrst og fremst vegna
fjárfestingarátaks sem skuldir og
skuldbindingar muni hækka en að
stefnt sé að niðurgreiðslu skulda
frá og með árinu 2025.
Skuldahlutfallið tvö-
faldast á fjórum árum
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Samkvæmt áætlunum
Reykjavíkurborgar munu
hreinar skuldir og skuld-
bindingar A-hluta nema
180 milljörðum króna árið
2025.
2015-2019 og áætlun til 2025
Hreinar skuldir A-hluta Reykjavíkurborgar
200
150
100
50
0
120%
90%
60%
30%
0%
2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
53,6
48,1
43,8
49,5
54,7
71,2
91,7
103,1
110 112,1
107,6
Heimild: Reykjavíkurborg
Hreinar skuldir og
skuldbindingar (ma.kr.)
Á móti tekjum (%)
49 48 51 59 67
89
123
150
171 179 180
Ma.kr.
FLUTNINGASTARFSEMI
Hagnaður Eimskipafélags Íslands á
þriðja ársfjórðungi nam 20,7 millj-
ónum evra, eða rúmlega 3,1 milljarði
króna, samanborið við 6,2 milljónir
evra fyrir sama tímabil ársins 2020,
sem er jafnvirði 935 milljóna króna.
Eignir félagsins nema 598 millj-
ónum evra, eða 90 milljörðum, og
jukust um tæplega 12% frá síðustu
áramótum þegar þær voru 536 millj-
ónir evra, eða rúmlega 80 milljarðar.
Eigið fé Eimskipafélagsins nemur
nú 247 milljónum evra, eða 37,3
milljörðum króna en það var 231
milljón evra í upphafi þessa árs, eða
34,9 milljarðar króna. Eiginfjárhlut-
fall félagsins 41,3%
„Ég er mjög ánægður með áfram-
haldandi sterkan rekstrarárangur á
þriðja ársfjórðungi. Niðurstöðurnar
einkennast af góðu framlagi frá
bæði áætlunarsiglingum og flutn-
ingsmiðlun sem eru helstu drif-
kraftar bættrar afkomu,“ segir Vil-
helm Már Þorsteinsson forstjóri í
tilkynningu.
Ljósmynd/Hilmar Snorrason
Eignir félagsins nema 598 milljónum evra, eða 90 milljörðum króna.
Hagnaður Eim-
skips 3,1 ma. kr.
Lúðvík Bergvinsson héraðsdóms-
lögmaður á ekki rétt til bóta úr
málskostnaðartryggingu fjöl-
skyldutryggingar sinnar að því er
segir í úrskurði úrskurðarnefndar í
vátryggingarmálum, en Lúðvík vildi
að tryggingafélag hans greiddi hon-
um bætur vegna kostnaðar sem
hann varð fyrir vegna málareksturs
hans gegn Viðskiptablaðinu.
Lúðvík stefndi blaðinu og ritstjóra
þess fyrir meiðyrði á síðasta ári en
nafnlaus pistill Óðins í blaðinu
fjallaði um störf hans sem óháðs
kunnáttumanns vegna kaupa N1 á
Festi. Krafðist Lúðvík þess að til-
tekin ummæli sem birtust í Við-
skiptablaðinu á árinu 2020 yrðu
dæmd dauð og ómerk.
Ummælin varða störf hans
Lúðvík taldi að málareksturinn
varðaði ekki dagleg störf hans sem
lögmaður og því bæri trygginga-
félaginu að greiða honum bætur úr
heimilistryggingunni.
Í úrskurðinum segir að sá rétt-
arlegi ágreiningur sem Lúðvík
standi í teljist ótvírætt vera í
tengslum við störf hans. Lúðvík eigi
því ekki rétt til bóta úr málskostn-
aðartryggingu fjölskyldutryggingar
sinnar.
Viðskiptablaðið og ritstjóri þess
voru sýknuð í málinu sem Lúðvík
efndi til. Var Lúðvík dæmdur til að
greiða 1,5 milljónir króna í máls-
kostnað.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Lúðvík var skipaður sérstakur kunnáttumaður vegna kaupa N1 á Festi.
Hafði hann m.a. eftirlit með söluferli verslunar fyrirtækisins á Hellu.
Heimilistrygg-
ingin hélt ekki
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Lúðvík Bergvinsson lög-
maður fær ekki bætur frá
tryggingafélagi sínu vegna
málareksturs gegn Við-
skiptablaðinu.