Morgunblaðið - 10.11.2021, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2021FRÉTTASKÝRING
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að
okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar
sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem
svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband.
Stundum læt ég mig dreyma um að
segja skilið við blaðamannsstarfið og
gerast í staðinn heimsins glæsilegasti
diplómati. Í draumórunum hef ég
fjárfest í glerfínum tvíhnepptum
jakkafötum og þeytist á milli funda
um allan heim: friðarviðræður hér,
neyðaraðstoð þar, og nokkur kokteil-
boð inn á milli. Kaffi og kökur með
Lagarde í dag, og kvöldstund í
Bolshoi-leikhúsinu með Pútín á
morgun.
En ég þarf ekki annað en að skoða
fréttamyndir frá fundum alþjóða-
stofnana til að átta mig á að blaða-
mennskan er ekki svo slæm, og tví-
hneppt jakkaföt geta farið að virka
eins og spennitreyja þegar hlýða þarf
á löng og innihaldsrýr ræðuhöld, eða
sitja hvern fundinn á fætur öðrum
þar sem ekki tekst að koma neinu í
verk.
Þess vegna var ég ekki hissa þegar
upptaka birtist af steinsofandi Joe
Biden á COP26-loftslagsráðstefnunni
í Glasgó fyrr í mánuðinum. Á mynd-
skeiðinu má heyra í ræðumanni sem
ávarpar ráðstefnugesti og lýsir því yf-
ir að viðburðurinn sé einhver sá mik-
ilvægasti í allri mannkynssögunni, en
Biden er með hugann við eitthvað
annað og nær að dotta í hér um bil 30
sekúndur, eða þar til aðstoðarmaður
stekkur til og vekur forsetann svo að
lítið ber á.
Mig grunar að margir ráðstefnu-
gestir í Glasgó hefðu gjarnan viljað
hreiðra um sig í mjúku rúmi á uppi á
hótelherbergi frekar en að hlýða á
ræðuhöldin, fullkomlega meðvitaðir
um hvers konar sirkús loftslags-
pólitíkin er orðin.
Blessað bensínið
Endrum og sinnum nota ég þennan
vikulega pistil minn í Viðskipta-
Mogganum til að veita lesendum ann-
ars konar sýn á loftslagsmálin. Ég er
dauðþreyttur á að fjalla um þennan
málaflokk en á ekki annarra kosta völ
því ekkert gengur að fá stjórn-
málamenn og fjölmiðla til að nálgast
loftslagsvandann af yfirvegun og
raunsæi. Daglega dynja á okkur
stríðsfyrirsagnir um að allsherjar
hamfarir séu yfirvofandi vegna út-
blásturs frá bílum, verksmiðjum og
flugvélum og grípa verði til róttækra
aðgerða tafarlaust.
Það væri til mikilla bóta ef mönn-
um á borð við Alex Epstein væri rétt-
ur hljóðneminn á ráðstefnum eins og
þeirri sem nýlega lauk í Glasgó, en
hann er höfundur metsölubókarinnar
The Moral Case for Fossil Fuels. Í
bókinni bendir Epstein á að við verð-
um alltaf að hafa það sem útgangs-
punkt að aðgerðir í þágu loftslagsins
og náttúrunnar bitni ekki á velferð,
heilsu og hamingju jarðarbúa. Hann
varar við að hvað svo sem við gerum
þá má það ekki leiða til þess að orku-
framboð minnki, eða að orkuverð
hækki.
Í nýlegu viðtali sem Epstein veitti í
tengslum við COP26 benti hann á að
ef við skoðum heildarmyndina er
ekki að sjá að æsifréttir um yfirvof-
andi hamfarir eigi við rök að styðjast.
Þvert á móti hefur lífið á jörðinni
aldrei verið betra, og mannkyninu
aldrei stafað minni hætta af ógnar-
kröftum náttúrunnar.
Epstein minnir þannig á að hlut-
fallslega hefur dauðsföllum af völdum
veðurtengdra náttúruhamfara fækk-
að um 98% á undanförnum hundrað
árum, og eigum við það fyrst og
fremst að þakka vaxandi hagsæld
sem drifin hefur verið áfram af notk-
un jarðefnaeldsneyta. Ef markmiðið
er að bæta lífskjör og lífslíkur fólks –
og ekki síst hjálpa þeim sem búa í dag
við lökustu kjörin – er aðgengi fólks
að orku algjört lykilatriði og í flestum
heimshlutum eru einu kostirnir sem
nokkurt vit er í kjarnorka annars
vegar og jarðefnaeldsneyti hins veg-
ar.
Ríkar þjóðir ráða
betur við áföllin
Fjölmiðlar um allan heim vita
mætavel að hamfarafréttir um lofts-
lagsbreytingar fá marga smelli. Þeir
létu því ekki sitt eftir liggja dagana í
kringum loftslagsráðstefnuna og
birtu dramatískar greinar og mynd-
skeið sem áttu að sýna að heimsend-
aspárnar eru þegar farnar að rætast
og loftslagsbreytingar byrjaðar að
valda þjáningu og hörmungum.
Beindist kastljósið einkum að
Madagaskar þar sem langvarandi
þurrkar hafa valdið því að landið er
núna á barmi hungursneiðar. Frétta-
maður Sky flaug með tökuliði sínu yf-
ir hálfan hnöttinn til að sýna áhorf-
endum heima í stofu hvernig þessi
fallega eyja er að skrælna upp. Benti
hún á hversu ósanngjarnt það hlýtur
að vera að land þar sem fólk er svo fá-
tækt að það hefur sama sem ekkert
sótspor – sárafáir eiga bíl og aðeins
15% landsmanna hafa aðgang að raf-
magni – þurfi að gjalda fyrir veður-
farsbreytingar sem hljóta að vera af-
leiðing útblásturs frá öðrum löndum.
Um leið og myndavélinni var beint að
vannærðum og fárveikum börnum
sagði fréttamaðurinn að Madagaskar
gæti orðið fyrsta ríki heims sem
þyrfti að glíma við hungursneið af
völdum loftslagsbreytinga.
En það sem fréttirnar frá Mada-
gaskar skauta yfir er að þurrkar og
uppskerubrestur eru ekki óþekkt fyr-
irbæri í þessu sárafátæka Afríku-
landi. Alla síðastliðna öld hafa íbúar
eyjunnar þurft að glíma við reglu-
bundna þurrka og fæðuskort og á 9.
áratugnum var ástandið síst skárra
en nú þó að í það skiptið hafi ekki
hvarflað að neinum að skella skuld-
inni á útblástur gróðurhúsaloftteg-
unda.
Ef Alex Epstein hefði verið með í
för hefði hann verið vís til að teyma
fréttamann Sky á fund stjórnmála-
fræðinga og hagfræðinga til að spyrja
hvers vegna íbúar Madagaskar eru
svo fátækir að nokkur þurr ár setja
stóran hóp landsmanna í lífshættu.
Hann myndi væntanlega líka spyrja
heimamenn hvort myndi gera þeim
meira gagn: að draga úr útblæstri á
heimsvísu, eða leita leiða til að marg-
falda landsframleiðslu á mann.
Nálgun Epsteins er í takt við það
sem Björn Lomborg hefur predikað:
það ætti að gefa loftslagsbreytingum
gaum en himnarnir eru ekki að
hrynja og mun brýnni vandamál
þarfnast úrlausnar. Leiðir til að auka
hagsæld ættu að vera í forgangi, m.a.
vegna þess að því ríkari sem þjóðir
eru því auðveldara eiga þær með að
aðlagast hvers kyns sveiflum í veður-
fari.
Til að sklija betur hvaða máli hag-
sældin skiptir er ágætt að rifja upp
mikla hitabylgju sem reið yfir heims-
byggðina árið 1911. Í norðaustur-
hluta Bandaríkjanna fór hitastigið
upp í 44°C og áætlað að þar hafi um
2.000 manns látið lífið vegna hitans.
Enn verra var ástandið í París þar
sem hitabylgjan varði í 70 daga og
kostaði um 40.000 manns lífið. Þökk
sé þeim efnahagslegu framförum
sem hafa átt sér stað síðastliðna öld
myndi enginn þurfa að óttast annan
eins fjölda dauðsfalla í hitabylgju í
Bandaríkjunum eða Evrópu í dag.
Fólk einfaldlega kveikir á viftu eða
ræsir loftkælinguna, vippar sér svo
inn í eldhús og blandar sér einn
ískaldan móhító til að gera hitann
bærilegri.
Í ríkari heimi þar sem nóg er af
orku eru kuldaköst, hitabylgjur,
þurrkatímabil og millimetrahækkun
sjávarmáls fyrst og fremst til ama, en
ekki meiri háttar hamfarir sem ógna
lífi fólks og setja samfélagið allt úr
skorðum.
Að nálgast vandann
eins og Borlaug
Ég er ekki frá því að það hafi mátt
greina smá vonarglætu í umfjöll-
uninni um COP26-ráðstefnuna. Sirk-
úsinn er enn í fullum gangi en æ oftar
má heyra í skynsemisröddum sem
benda á að nálgast verði loftslags-
málin með öðrum hætti. Hér og þar
hefur mátt sjá greinar sem benda á
að þær lausnir sem lagðar hafa verið
til eru meingallaðar, og ávinning-
urinn ekki í neinu samræmi við
kostnaðinn.
Kannski er það að renna upp fyrir
fólki að diplómatar í fínum jakkaföt-
um munu ekki leysa vandann, heldur
kemur lausnin frá fólki af allt annarri
sort:
Mér kemur til hugar Bandaríkja-
maður sem fæddist inn í bláfátæka
bændafjölskyldu í Iowa árið 1914.
Honum þótti stritið á býlinu óþolandi
og dreymdi um að gerast atvinnu-
maður í íþróttum, en besta leiðin til
að láta drauminn rætast var að kom-
ast að hjá háskóla með öflugt íþrótta-
starf. Norman Borlaug gat látið það
eftir sér að setjast á skólabekk því að
árið 1917 hafði Henry Ford sett á
markað nýja gerð af ódýrri dráttar-
vél sem gat – þökk sé sprengihreyfl-
inum – afkastað á við sex dráttar-
klára.
Nema hvað Borlaug reyndist
miklu betri námsmaður en íþrótta-
maður og endaði á að útskrifast með
doktorsgráðu í plöntusjúkdómum og
erfðafræði, og var í framhaldinu ráð-
inn til starfa hjá Rockefeller-sjóðnum
til að reyna að bæta uppskeru mexí-
kóskra hveitibænda. Til að gera
langa sögu stutta tókst Borlaug að
fjórfalda hveitiframleiðslu Mexíkó og
með sömu aðferðum stjórjókst hveiti-
ræktun í Bandaríkjunum, Indlandi
og Pakistan. Því næst sneru Rocke-
feller- og Ford-sjóðirnir bökum sam-
an og fengu Borlaug til að leiða kyn-
bætur á hrísgrjónaplöntunni og var
útkoman þrefalt betri uppskera.
Hefur verið áætlað að með fram-
lagi sínu hafi Borlaug beint og óbeint
bjargað að minnsta kosti sex hundr-
uð milljónum mannslífa. Er leitun að
þeim einstaklingi sem hefur gert
mannkyninu meira gagn.
Ef hópurinn sem kom saman í
Glasgó fyrr í mánuðinum hefði verið
beðinn að leysa sama verkefni og
Borlaug hefði útkoman væntanlega
verið margra síðna sáttmáli um að
bjarga heiminum frá fæðuskorti með
því að þvinga fólk til að borða minna.
Því næst hefðu ráðstefnugestir fagn-
að góðu dagsverki með því að halda
sjálfum sér veglega veislu.
Hvað ef Madagaskar væri ríkt land?
Ásgeir Ingvarsson
skrifar frá Playa del Carmen
ai@mbl.is
Loftslagsbreytingum er
kennt um yfirvofandi hung-
ursneyð í Madagaskar. En
kannski sýnir vandinn þar
hve brýnt það er að fórna
ekki hagsæld og lífs-
gæðum í baráttunni við
sveiflur í veðurfari.
AFP
Læknar vigta stúlkubarn í Madagaskar. Landið er í hópi þeirra fátækustu í
heimi og hefur enga burði til að bregðast við langvarandi þurrkatímabili.