Morgunblaðið - 10.11.2021, Side 12
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
HÄSTENS VERSLUN
Faxafeni 5, Reykjavík
588 8477
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 1–18 | Lau. 1–16
ww.betrabak.is
Þegar þú vaknar í rúmi frá Hästens
munt þú skilja virði þess að ná
fullkomnum nætursvefni.
WESLEEP.
DOYOU?
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Íslenska þjóðin „alveg biluð í þetta“
Sotheby’s selur glæsihús á Íslandi
Þúsundir farið til Búdapest
Play er stórhættulegt fyrirtæki
Norðurál Helguvík tekið til ...
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Við Óðinsgötu 8C í Reykjavík er til
sölu eignarhlutur í lóð, sem er ekki í
frásögur færandi nema að honum
fylgir eitt bílastæði. Um er að ræða
199 fermetra lóð sem hefur verið
nýtt undir fimm bílastæði.
Til sölu er 20% hlutur í lóðinni og
af því leiðir að bílastæðið er verð-
metið á sex milljónir króna.
Sjö milljónir í bílastæðahúsi
Til samanburðar kvaðst verktaki
sem ViðskiptaMogginn ræddi við
hafa selt bílastæði í miðbænum í
upphituðum kjallara á sjö milljónir.
Á þann mælikvarða er verðlagn-
ingin á Óðinsgötu athyglisverð.
Á það ber þó að líta að mögulega
gæti skapast heimild til að byggja á
lóðinni með þéttingu byggðar.
Borgarstjóri á tvö stæði
Meðal hluthafa í umræddri lóð er
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
sem á 40% hlut, eða sem svarar
tveimur bílastæðum, en Dagur og
fjölskylda hans eiga þriggja hæða
timburhús austan við lóðina. Þar er
nú atvinnustarfsemi á jarðhæð.
Framboð á bílastæðum í miðborg-
inni hefur áhrif á verðmyndunina.
Borgaryfirvöld hafa markað þá
stefnu að bílastæði skuli vera víkj-
andi í götumyndinni og við hina
ýmsu veitingastaði hafa þau vikið
fyrir timburpalli þar sem seldar eru
veitingar á góðviðrisdögum.
Þá má nefna að haft var eftir Pa-
wel Bartoszek, formanni skipulags-
ráðs borgarinnar, í Morgunblaðinu í
september að stefnt væri að því að
fækka stæðum ofanjarðar í nágrenni
Héðinsreits. Þannig á að greiða fyrir
umferð hjólandi og gangandi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Horft til suðurs á bílastæðinu en fimm stæði eru metin á alls 30 milljónir.
Bílastæði á sex
milljónir króna
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Við Óðinsgötu í Reykjavík
er hægt að kaupa eignar-
hluta í lóð sem jafngildir
einu bílastæði á malarlóð
sem er með fimm stæðum.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fyrir skemmstu var gefin út
skýrsla með samantekt á styrk-
leikum og veikleikum margra öfl-
ugustu lífeyriskerfa í heimi. Í fyrsta
sinn var sjónum beint að íslenska
kerfinu, sem hefur af harðfylgi verið
byggt upp síðustu hálfu öldina eða
svo. Og niðurstöðurnar eru sláandi.
Íslenska kerfið er það besta í heimi.
Samanburður við öll önnur kerfi sem
einhverju halda leiðir það í ljós. En
af hverju er það sláandi? Helst
vegna þess að á Íslandi er stór grát-
kór gerður út allt árið um kring þar
sem hinu öndverða er haldið fram.
Helgi í Góu segir sjóðina vonda því
þeir taki ekki að sér verkefni ann-
arra við að byggja upp hjúkr-
unarheimili og svo eru minni spá-
menn sem hafa hossað sér í
opinberri umræðu í á annan áratug
og alltaf á þeim forsendum að sjóð-
irnir skili litlu til sjóðfélaga við
starfslok og ekki skortir úr þeirri átt
stóryrðin um að rekstrarkostnaður
sjóðanna sé of hár.
Staðreyndin er sú að lífeyrissjóð-
irnir standa nú vörð um
sameiginlegan lífeyri landsmanna
sem telur hvorki meira né minna en
ríflega 6.000 milljarða króna og á ör-
fáum misserum hefur þeim vaxið ás-
megin, ekki síst ef litið er til eigna-
stöðu þeirra erlendis.
Í liðinni viku var svo tilkynnt að
stærsti sjóðurinn á almenna
markaðnum, Lífeyrissjóður
verslunarmanna, hefði uppfært líf-
eyrisréttindi sjóðfélaga um 10%!
Krúnudjásn
í allra eiguEnn gerir kórónuveiran vart við
sig. Hún er þrálát og hefur ekki
látið stærstu lyfjarisa heimsins
kveða sig að fullu í kútinn. Aðgerð-
irnar gegn henni hafa þó dregið
mjög úr því ægivaldi sem hún hafði
yfir heimsbyggðinni allri um nokk-
urra missera skeið. Nú eru það helst
þeir sem ekki hafa þegið bólusetn-
ingu sem verða fyrir barðinu á
henni, þótt það sé ekki algilt.
Baráttan hefur tekið mikinn toll
og staðið lengur en bjartsýnar
spár gerðu ráð fyrir. Efnahagslegar
afleiðingar eru gríðarlegar en einnig
félagslegar og þær sem tengjast
heilbrigði fólks að öðru leyti. Margt
bendir til þess að margir greinist
seinna en ella með alvarlega sjúk-
dóma sem mikilvægt er að bregðast
hratt og örugglega við og nýlegar
fréttir af Barnaspítala Hringsins
benda til að harkalegar sóttvarnir
hafi veikt ónæmiskerfi nýjustu
borgaranna með þeim afleiðingum
að aðrar pestir, veirur og sýklar
leggjast nú óvenjuhart á þá sem síst
skyldi.
Frá upphafi faraldurs hafa margir
bent á mikilvægi þess að vega og
meta aðgerðir yfirvalda frá breiðara
sjónarhorni en því sem lýtur einvörð-
ungu að kórónuveirunni, jafnvel þótt
skaðsemi hennar geti reynst geigvæn-
leg. Stjórnvöld mega ekki grípa til að-
gerða sem til lengri tíma litið verða
meira íþyngjandi fyrir samfélagið í
heild en sú vá sem þeim er ætlað að
koma í veg fyrir.
Þrátt fyrir það vill sóttvarnalæknir
að enn sé gripið harkalega í
bremsuna. Nú er það þriðji skammt-
urinn og jafnvel lyf í töfluformi sem
öllu á að bjarga. Allir nema hann sjá að
það er hæpið. Og reyndar eru fleiri til
sem taka undir þessi sjónarmið. Nú
síðast prófessor í ónæmisfræði við Há-
skóla Íslands. Á þeim bæ er affarasæl-
ast að loka öllu í tvær vikur „og sjá svo
til“ hvernig til tekst eins og það var
orðað. Í þessari nálgun endurspeglast
firring, ekki aðeins gagnvart efnahags-
lífinu heldur einnig borgurunum sem
láta ekki endalaust svipta sig frelsinu,
á grundvelli falsvona eða tilraunastarf-
semi sem áður hefur brugðist.
Tvær vikur og sjá svo til
Drífa Snædal segir Play
stórhættulegt launafólki
eftir að það tilkynnti um
opnun starfsstöðvar í
Litháen.
Play er stórhættu-
legt fyrirtæki
1
2
3
4
5