Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.11. 2021 Þ að spurðist út um liðna helgi að formenn stjórnarflokk- anna væru farnir að berja saman texta í stjórnarsáttmála, en hins vegar bar þingmönnum flokk- anna ekki vel saman um hversu vel hefði miðað. Mikið hafði víst verið skrifað, en litlu minna útstrikað aft- ur og þrástrikað. Ekki gekk betur að fá botn í störf undirbúningskjörbréfanefndar, sem reynt hefur að komast að því hvað fór úrskeiðis við framkvæmd alþingiskosninga í Norðvestur- kjördæmi og hvort sleifarlagið þar hafi haft áhrif á niðurstöðuna. Fullyrðingum Dags B. Eggerts- sonar borgarstjóra og fleiri um að viðskiptabankarnir hefðu skrúfað fyrir lánsfé til uppbyggingar íbúðar- húsnæði var hafnað í grein hagfræð- ingja hjá Seðlabanka. Við tók löng þögn borgarstjóra. Freyja, hið nýja strandgæsluskip Landhelgisgæslunnar, kom til landsins um liðna helgi. Skipið var keypt notað en seljandinn virðist hafa kastað til höndum við málningu skipsins í nýjum litum, því hún var bæði í röngum litum og svo flagnaði málningin að miklu leyti af á leið til landsins. Sama dag kom hollensk freigáta til hafnar í Reykjavík, stífmáluð eins og allir hollensku meistararnir hefðu þar haldið á pensli og ekkert að flagna. Heimsþing kvenleiðtoga fór fram í Hörpu, en það er í fjórða sinn sem slíkt þing er haldið. Gert er ráð fyrir tæplega milljarðs halla á rekstri Reykjanesbæjar á komandi ári, en hins vegar er vonast til þess að jafnvægi náist í rekstr- inum 2023. . . . Árbæjarskóli bar sigur úr býtum í úrslitakeppni Skrekks, hæfileika- keppni grunnskóla í Reykjavík. Krakkarnir þar sýndu mikið hug- rekki með því að setja á svið fjörugt og skemmtilegt dans- og söngatriði án allra heimsósómaumvandana. Gagnaöflun undirbúningskjörbréfa- nefndar lauk að mestu, en Birgir Ármannsson formaður hennar taldi þörf á enn einni vettvangsrannsókn- inni í Borgarnesi og áfram komu fram nýir vankantar á kosninga- framkvæmdinni. Starf í leikskólum landsins hefur gengið þunglega í haust, en þeir eru flestir hrjáðir af manneklu, sem megi rekja til margra ástæðna, þar á meðal veikinda en einnig styttingar vinnutíma. Forsvarsmenn flugfélagsins Play gera ráð fyrir því að fyrirtækið skili hagnaði einhvern tímann á næsta ári. Samtök atvinnulífsins telja að hvorki séu ástæður né forsendur til skyldu- bólusetningar á vinnustöðum, líkt og hefur gerst sums staðar erlendis. Hafist var handa við að senda út boð um örvunarbólusetningu, þriðju sprautu bóluefna við kórónuveirunni. Guðný Bjarnadóttir læknir greindi frá því að Kristinn E. Andrésson, fv. þingmaður og ritstjóri TMM, hefði misnotað hana kynferðislega þegar hún var telpa fyrir 60 árum. . . . Skortur á hjúkrunarfræðingum hamlar fjölgun sjúkrarýma á Land- spítalanum. Um 3.600 hjúkrunar- fræðingar eru að störfum í landinu, en tæplega 2.000 hjúkrunarfræð- ingar hafa fundið sér starfa utan greinarinnar. Enn er óljóst hvenær Alþingi verður kallað saman eftir kosningar, en hins vegar virðist ljóst að þetta ár er með allra stystu þingárum. Aðeins 65 þingfundardagar hafa verið frá áramótum og þingtíminn í heild inn- an við fimm mánuðir það sem af er. Kópavogsbær kynnti rekstrar- afgang hjá sér og boðaði bæjarstjór- inn Ármann Kr. Ólafsson lækkun fasteignaskatta á næsta ári og ekki seinna vænna, enda sveitarstjórnar- kosningar af tilviljun haldnar það sama ár. Hörður Arnarson, forstjóri Lands- virkjunar, tekur undir orð um orku- skipti í samgöngum í landinu og tel- ur vel mögulegt að koma þeim í kring á næstu árum og áratugum svo jarðefnaeldsneyti verði ekki not- að hér á landi nema í mjög litlum og afmörkuðum mæli. Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri Ríkisútvarpsins, sagði starfi sínu lausu upp úr þurru. Magnús Þór Jónsson, skólastjóri Seljaskóla, var kjörinn formaður Kennarasambands Íslands. Fjórtán sóttu um forstjórastarf Landspítalans, þar af sex núverandi stjórnendur innan spítalans, sem virðast telja að þetta hafi gengið ljómandi vel hjá sér. . . . Forstjóri Öskju, Jón Trausti Ólafs- son, telur skynsamlegt að hafist verði handa við rafvæðingu leigu- bíla og þannig stíga stór og trúverð- ug skref í átt til orkuskipta í sam- göngum. Leigubílar séu um 400 talsins en aki á við 2.000 fjöl- skyldubíla, en auk þess væri það kjörið til að treysta alþjóðlega ímynd landsins. Samdægurs kom fram að ESA, eftir- litsstofnun EFTA, gagnrýndi leyfis- kerfi til leigubílaaksturs hér á landi, sem letji samkeppni, leiði til hærra verðs en ella og brjóti í bága við EES-samninginn. Bregðist íslensk stjórnvöld ekki við innan tveggja mánaða áskilur ESA sér rétt til málshöfðunar gegn íslenska ríkinu fyrir EFTA-dómstólnum. ESA lét ekki þar við sitja, heldur hefur hún krafið samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytið skýringa á því hvers vegna það hafi unað breyttri reikningsskilavenju hjá Reykjavíkurborg vegna fasteigna í eigu borgarinnar og dóttur- fyrirtækja hennar, sem gangi í ber- högg við Evrópustaðla. Í öðrum fréttum úr Ráðhúsinu sagð- ist Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri standa við fyrri orð um lán- veitingar banka til uppbyggingar íbúðarhúsnæði, en svaraði þó ekki rökstuðningi hagfræðings hjá Seðla- bankanum um annað, heldur sendi hagsmunasamtökum í atvinnulífi tóninn. Fallþungi dilka hefur aldrei verið meiri eða 17,4 kg að meðaltali. Það er rakið til langtímaárangurs rækt- unarstarfs og góðrar tíðar um land allt. Hjúkrunarfræðinám á Íslandi er lengra en annars staðar á Norður- löndunum, en það er m.a. rakið til þess að klínískur hluti námsins sæk- ist hægar en þar. Þar kann að vera hluti skýringar manneklu í hjúkrun hér á landi. Banaslys varð á reiðhjólastíg við Sæbraut þegar rafmagnshlaupahjól og létt bifhjól rákust á. Sá á hlaupa- hjólinu lést af áverkum sínum, en hinn slasaðist alvarlega. . . . Metfjöldi smita greindist við skimun í vikunni og kom ríkisstjórnin saman til þess að ræða hertar aðgerðir. Það varð úr að ný sóttvarnareglugerð tók gildi á miðnætti á föstudag. Þá máttu einungis 50 safnast saman í stað 500 áður og var afgreiðslutími veitingahúsa og skemmtistaða stytt- ur um eina klukkustund, en þeim þarf þá að loka klukkan tíu að kvöldi. Ný stjórn Eflingar hélt fund, en hvorki formaður né aðrir stjórnar- menn utan Guðmundar Baldurs- sonar vildu ræða við fjölmiðla. Á fundi trúnaðarráðs Eflingar, sem einnig fór fram á fimmtudag, var ekki heimilt að ræða um Sólveigu Önnu Jónsdóttur, fyrrverandi for- mann félagsins, eða Viðar Þor- steinsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra. Þess í stað var nokkuð rætt um útsýnið og að snjór- inn væri kominn langt niður Esjuna. 5,2 stiga jarðskjálfti varð skammt suður af Heklu á fimmtudag, þótt jarðfræðingar telji ástæðulaust að tengja hann við mögulega eldvirkni í því dormandi eldfjalli. Jólaverslun hefur hafist fyrr í ár en yfirleitt. Þar ráða nýir siðir líkt og tilboðsdagar einhverju um, en einnig kann að vera að almenningur sé að búa í haginn vegna fregna um bresti í aðfangakeðjum. Í Hafnarfirði er áætlaður mynd- arlegur rekstrarafgangur á næsta ári, en um leið fer skuldaviðmið nið- ur í 97% og hefur ekki verið lægra í áratugi. Rósa Guðbjartsdóttir bæj- arstjóri telur að varnarviðbrögð við faraldrinum hafi reynst vel, ekkert hafi verið tekið að láni á árinu, út- svarið verði óbreytt og fasteigna- skattar lækka um 5%. Hvorki er flagning né Efling til fagnaðar Enginn er verri þótt hann vökni, hafa þeir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, kannski hugsað á hafnarbakkanum á Siglufirði. Freyja virtist hins vegar ekki hafa mátt við því að blotna. Morgunblaðið/Árni Sæberg 7.11.-12.11. Andrés Magnússon andres@mbl.is 510 7900 / Bæjarlind 4 / www.FASTLIND.is BOGI MOLBY PÉTURSSON löggiltur fasteignasali 699 3444 molby@fastlind.is Allar nánari upplýsingar veitir: Skúlagata 40 – Fyrir 60 ára og eldri Endurbætt 2ja herbergja íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi, vestursvalir og stæði í bílskýli. Íbúðina má aðeins selja félagsmönnum í félagi eldri borgara. Borgarar sem eru 60 ára eða eldri. Verð 43,9 m. Sléttuvegur 11-13 - Bílskúr Til sölu 23,8 fm bílskúr. Hann er með heitu og köldu vatni, rafmagni og nýmálaður. Verð 5,4 m. ATH. Einungis fyrir eigendur íbúða hússins.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.