Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Qupperneq 10
Þ etta verk fjallar ekki um ástand- ið heldur er það fremur samtal samtímans með tungumáli for- tíðarinnar,“ segir hljóð- listakonan og tónskáldið Ingi- björg Friðriksdóttir, sem er þekkt undir listamannsnafninu Inki, um verk sitt Meira ástandið, eða Quite the Situation, en efni- viður verksins er greinaskrif Íslendinga frá stríðsárunum. Verkið er þrískipt en það samanstendur af bókverki, plötuútgáfu sem gefin var út af Inni Music og hljóð- og vídeóinnsetningu sem frumsýnd var í Hörpu á Listahátíð í Reykjavík í júní. Í sinni listsköpun hefur Ingibjörg unnið mikið með listformið sem fyrirbæri. „Ég er tónskáld en hef unnið mikið með að teygja mörk þess að semja tónlist. Ég hef áður gert mikið af hljóð- og vídeóinnsetningum og smíðað mín eigin hljóðfæri.“ Framlengt út fyrir stað og stund Árið 2019 var henni boðið að dvelja í gesta- vinnustofu í Bandaríkjunum og þá fór hún að velta fyrir sér hvernig hún gæti fram- lengt innsetningu út fyrir stað og stund. „Innsetningar eru einhvern veginn alltaf bundnar ákveðnum tíma og staðsetningu. Það er fallegt í sjálfu sér að þú verðir að vera á staðnum en mig langaði að reyna að finna leið til þess að framlengja samtalið út fyrir þennan ramma og þá ákvað ég að semja tónlistina þannig að hún gæti lifað sjálfstætt utan innsetningarinnar og að búa til einhvers konar verk, sem varð að bók- verki, sem gæti líka framlengt innsetn- inguna hvert sem væri. Þannig að fólk gæti farið með innsetninguna heim,“ segir hún. En bókverkið er meðal annars gætt sýndar- veruleika þar sem setningar verksins fara á hreyfingu ef síma er haldið yfir bókinni og minnir þannig á innsetninguna sem sýnd var á Listahátíð. „Bókverkið er tónverk. Ég nálgast það eins og tónskáld semur tónlist. Þegar þú ert að semja tónlist þá ertu alltaf að skapa á vissum tímaramma, það eru ákveðnir hlutir sem gerast á ákveðnum tíma. Til dæmis byrjar tónverkið kannski á einni fiðlu sem spilar og svo bætast fleiri hljóð- færi við einhvers staðar og svo kemur þögn. Það sama gerist í hönnun bókarinnar. Það er eins og hún sé hönnuð á einhverjum tímaramma. Ég hef mjög gaman af þessu, af því að rannsaka hvernig mismunandi listamenn fara að því að skapa. Til dæmis þegar myndlistarmenn fara að skapa hljóð- verk nálgast þeir það á allt annan hátt en tónskáld. Það vekur áhuga minn,“ segir Inki. „Verkið liggur á óljósum landamærum tón- og sjónlistar. Þrískipt listaverk þar sem bókverk verður að tónverki og tónverk að orðalausu samtali. Ólíkir miðlar sem spila saman og mynda upplifun þvert á skynfæri, sem er allt í senn heildstæð og brotakennd, húmorísk en þankavekjandi. Á Listahátíð var gestum boðið að ganga inn í verkið sjálft, 360 gráðu vídeó- og hljóð- upplifun.“ Gullkista af blaðagreinum Verkið, Meira ástandið, er eins og titillinn gefur að vissu leyti til kynna, byggt á ástandinu. „Allar setningarnar í bókinni eru setningar teknar úr greinaskrifum Íslend- inga frá 1940-1945. Ég safnaði öllum grein- um sem ég gat fundið frá þessu tímabili og bjó til setningasafn úr þeim.“ Ingibjörg bjó í fjögur ár í Kaliforníu í Bandaríkjunum og lauk MFA-gráðu í elektrónískum tón- smíðum og upptökutækni. Þá starfaði hún m.a. sem pródúsent í San Quentin- fangelsinu. Þar kom hún að fyrstu plötunni sem gefin var út frá amerísku fangelsi. Á þessum árum fékk hún áhuga á milliríkja- samskiptum Íslands og Bandaríkjanna. „Upphaflegi áhuginn á tengslum Banda- ríkjanna og Íslands spratt upp frá því að ég var spurð að lágmarki þrisvar í viku af ein- hverjum Bandaríkjamanni: „Did you know Iceland is green, but Greenland is icy?“ Mér fannst svo magnað að við Íslendingar lærum heilu sögubækurnar um milliríkja- samskipti Bandaríkjanna og Íslands, en Bandaríkjamenn þekkja eina staðreynd úr myndinni Mighty Ducks 2,“ segir listakon- an. „Ég vinn ofboðslega mikið á þennan hátt. Það er einhver hugmynd sem vekur áhuga minn og svo byrja ég einhvers konar rann- sóknarvinnu. Í þessu tilfelli hét verkið upp- haflega Iceland is Green, Greenland is Icy, svo bara missti ég í rauninni áhugann á því þegar ég fann allar þessar blaðagreinar og Undiralda sem ýtir af stað samtali Hljóðlistakonan Ingibjörg Friðriksdóttir, eða Inki, skapaði þrískipt listaverk innblásið af umræðunni á stríðsárunum um ástandið. Hún vonar að verkið varpi ljósi á það samtal sem á sér stað í samtímanum um stöðu kvenna. Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Ég er tónskáld en hef unnið mikið með að teygja mörk þess að semja tónlist,“ segir Ingibjörg. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon ’ Innsetningar eru einhvern veginn alltaf bundnar ákveðnum tíma og staðsetningu. Það er fallegt í sjálfu sér að þú verðir að vera á staðnum en mig langaði að reyna að finna leið til þess að framlengja samtalið. VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.11. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.