Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Qupperneq 24
Ef menn vilja Benzinn
í rafskútum liggur
beinast við að fá sér
E-Scooter frá
Mercedes-Benz.
Ooni Koda 16 er gasofn
fyrir flatbökugerð úti á palli,
hann er snöggur að því og
afurðin ljúffeng.
Það er ekki nóg að eiga gott
að drekka, það skiptir máli úr
hverju er drukkið. Diamond-
kristalslínan frá Richard
Brendon er kjörin til þess.
Ómissandi fráleggsbakki úr lát-
úni frá Sir/Madam, fyrir nátt-
borð, skrifborð eða forstofu.
Sonos Roam er prýðilegur hátalari
og handhægur til þess að taka með
sér út í garð eða útileguna.
iPad Mini (2021)
frá Apple er full-
komið tæki fyrir
krakka og þá sem
kjósa litlar spjald-
tölvur. Ákaflega öfl-
ug og mikið fengið
fyrir peninginn.
Rafhjól njóta sífellt
meiri vinsælda og
VanMoof S3 er eitt
það stílhreinasta.
Bjargaðu heimium með
endurnýtanlegum
drykkjarrörum úr stáli,
sem finna má á mistur.is.
Nanopresso
frá Wacaco er
espressóvél sem
taka má með sér
í fjallgöngu eða
hvert sem er
annað. Þarf bara
að sjóða vatn og
svo er náð upp
þrýstingi með
handafli.
Phillips SmartSleep (með
vekjara og útvarpi) hermir eftir
reglulegum ljósaskiptum, sem
gerir svefn og vakningu í svart-
asta skammdeginu betri.
Nýja útgáfan af Sym-
fonisk frá Ikea er fal-
legri en sú fyrri, en þetta
er sameinaður lampi og
þráðlaus hátalari.
Það þarf ekki alltaf að gefa
hluti, síst fyrir fólk sem á allt
sem það þarf. En það má gefa
lífsreynslu: tónleikamiða,
helgarferð, spakort, hóteldvöl,
útsýnisflug o.s.frv.
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.11. 2021
TIL ÞÍN FRÁ MÉR
PlayStation 5 er enn ein
eftirsóttasta jólagjöf í heimi,
því plágan hefur sett fram-
leiðsluna úr skorðum.