Morgunblaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021
Fyrirtækið Controlant hlaut í gær
Útflutningsverðlaun forseta Ís-
lands 2021. Gísli Herjólfsson for-
stjóri fyrirtækisins veitti verðlaun-
unum viðtöku við fámenna athöfn
á Bessastöðum.Við sama tilefni
var Baltasar Kormákur, kvik-
myndaframleiðandi og leikstjóri,
heiðraður fyrir störf sín á erlendri
grundu.
Hug- og vélbúnaður Controlant
tryggir gæði viðkvæmra vara í
flutningi og dregur úr sóun á lyfj-
um og matvælum. Fyrirtækið gef-
ur framleiðendum lyfja og mat-
væla mikilvægar rauntímaupp-
lýsingar um hitastig, raka og
staðsetningu sem fæst með net-
tengdum gangaritum. Viðskipta-
vinir fyrirtækisins eru lyfja-, mat-
væla- og flutningsfyrirtæki um
allan heim og er stærsta hlutverk
þeirra í dag að vakta dreifingu á
bóluefni gegn Covid-19.
Verðlaunagripurinn til Control-
ant var listaverk Margrétar H.
Blöndal sem hún vann sérstaklega
af þessu tilefni.
Baltasar Kormáki var veitt heið-
ursviðurkenning fyrir eftirtekt-
arverð störf erlendis. Baltasar
kom sér á kortið utan landstein-
anna þegar kvikmyndin 101
Reykjavík kom út árið 2000 og
vann til verðlauna á hinum ýmsu
kvikmyndahátíðum. Þáttaröð hans
Katla var svo frumsýnd á þessu
ári.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Controlant Gísli Herjólfsson, forstjóri
fyrirtækisins, tók við verðlaununum.
Forseti veitti út-
flutningsverðlaun
- Fámenn athöfn á Bessastöðum
Heiðraður Baltasar Kormák-
ur, framleiðandi og leikstjóri.
Sjóvá styrkir smíði þriggja nýrra
björgunarskipa fyrir Landsbjörg
um 142,5 milljónir króna. Tilkynnt
var um gjöf tryggingafélagsins á
blaðamannafundi sem haldin var í
Hörpu í gær.
Hvert skipanna kostar um 285
milljónir króna og hefur ríkissjóður
gengist við því að fjármagna helm-
ing kostnaðarins og mun gjöf Sjóvá
greiða um þriðjungs þess kostnaðar
sem eftir stendur.
„Fáheyrt er að svo rausnarlegar
gjafir berist til sjálfboðaliðasamtaka
og eru þetta sérstaklega ánægju-
legar fréttir fyrir endurnýjun allra
þrettán björgunarskipa félagsins, en
Landsbjörg og Sjóvá hafa um ára-
tugaskeið átt í farsælu samstarfi,“
segir í tilkynningu Landsbjargar.
Þar kemur einnig fram að hafin er
smíði fyrsta nýja björgunarskips
Landsbjargar hjá KewaTec í Finn-
landi, en hún hófst formlega með
kjöllagningu sem fram fór í skipa-
smíðastöðinni fyrir helgi. Alls eru
þrjú ný björgunarskip væntanleg.
Fyrstu skipin afhent 2022
Áætluð afhending fyrsta skips er
á goslokahátíð í Vestmannaeyjum í
júní 2022 þar sem skipið verður með
heimahöfn. Áætluð afhending á öðru
skipinu er fyrir árslok 2022 á Siglu-
firði. Smíði á þriðja skipinu hefst síð-
an í janúar 2023 og afhending á því
verður eftir mitt það ár.
Þótt smíði á þessum fyrstu þrem-
ur björgunarskipunum sé nú hafin
þá er markmið Landsbjargar að
endurnýja öll þrettán björgunarskip
sín og verður því áfram unnið að
frekari fjármögnun þessa verkefnis.
Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir,
varaformaður Landsbjargar, sagði
að með nýjum skipum yrði bylting í
viðbragðstíma og aðbúnaði fyrir
áhafnir og skjólstæðinga.
„Fáheyrðar gjafir“ til
sjálfboðaliðasamtaka
- Sjóvá og ríkið styrkja Landsbjörg vegna björgunarskipa
Morgunblaðið/Unnur Karen
Landsbjörg Borghildur Fjóla frá Landsbjörg og Hermann Björnsson, for-
stjóri Sjóvár, kynntu gjöfina á blaðamannafundi í Hörpu í gær.
Teikning/Landsbjörg
Nýtt Smíði á fyrsta björgunarskipinu er hafin. Þrjú skip eru væntanleg.