Morgunblaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021 _ Þjóðverjinn Ralf Rangnick mun ekki stýra Manchester United gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu annað kvöld eins og vonast hafði verið eftir. Frágengið er að hann stjórni liði United til vors en nú er ljóst að hann verður ekki kominn með atvinnuleyfi á Bretlandseyjum í tæka tíð fyrir leikinn. Michael Carrick verður því með liðið a.m.k. einn leik í viðbót. Rangnick gæti mögulega stýrt United í fyrsta sinn á sunnudaginn þegar liðið tekur á móti Crystal Palace. _ Ray Kennedy, leikmaður Liverpool, Arsenal og enska landsliðsins í knatt- spyrnu á árunum 1970 til 1982, lést í gær, sjötugur að aldri. Kennedy varð fimm sinnum enskur meistari og þrisvar Evrópumeistari með Liverpool og vann bæði deildina og bikarinn með Arsenal árið 1971. Hann lék 393 móts- leiki fyrir Liverpool og 213 fyrir Arsen- al og skoraði samtals 143 mörk fyrir félögin tvö. Kennedy greindist með Parkinson-sjúkdóminn aðeins 33 ára gamall og átti erfitt uppdráttar alla tíð eftir það. _ Knattspyrnumaðurinn Torfi Tímo- teus Gunnarsson hefur rift samningi sínum við Fylki eftir að hafa leikið eitt tímabil með Árbæjarliðinu. Torfi, sem er 22 ára varnarmaður, hefur annars leikið með Fjölni, auk eins tímabils með KA. _ Birkir Bjarnason landsliðsfyrirliði í knattspyrnu var á skotskónum í gær þegar lið hans, Adana Demirspor, komst auðveldlega áfram í tyrknesku bikarkeppninni. Keppnin er enn á fyrstu stigum og mótherjar Birkis og félaga í dag voru C-deildarliðið Serik Belediyespor. Adana Demirspor gerði út um leikinn með fimm mörkum í fyrri hálfleik og þar við sat, lokatölur voru 5:0. Birkir skoraði þriðja og fjórða mark liðsins á 26. og 33. mínútu en það var Ítalinn Mario Balo- telli sem skoraði fyrsta markið á 10. mínútu. Birki og Balotelli var báðum skipt af velli á 63. mínútu. Eitt ogannað KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin: Smárinn: Breiðablik – Valur ............... 18.15 Blue-höllin: Keflavík – Fjölnir ............ 19.15 Ljónagryfjan: Njarðvík – Grindavík .. 20.15 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Kaplakriki: FH – Haukar .................... 19.30 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Víkin: Víkingur – HK U ....................... 19.30 Í KVÖLD! NBA-deildin Philadelphia – Orlando ...................... 101:96 Miami – Denver ................................ 111:120 Chicago – Charlotte ......................... 133:119 Houston – Oklahoma City ................. 102:89 Minnesota – Indiana .......................... 100:98 Dallas – Cleveland.............................. 96:114 San Antonio – Washington ................ 116:99 Utah – Portland ................................ 129:107 LA Clippers – New Orleans ............ 104:123 57+36!)49, skiptið. Sigurinn gegn Hollandi var því mjög stór fyrir okkur. Við höfum oft talað um hversu erf- itt sé að vinna útileiki í undankeppn- unum fyrir stórmótin og í því ljósi voru þetta afar góð úrslit gegn Hol- landi. Lið Hollendinga er gott og það tapaði í framhaldinu jöfnum leik með tveggja stiga mun gegn Ítalíu á útivelli,“ sagði Pedersen þegar Morgunblaðið spjallaði við hann. Næst á dagskrá hjá Íslendingum í H-riðlinum eru tveir leikir gegn Ítal- íu í febrúar. Þá stendur til að leika heima og að heiman en útfærslan á því verður að koma í ljós þar sem óljóst er hvenær Laugardalshöllin verður tekin aftur í notkun eftir vatnsskemmdir. Og hvort Íslend- ingar fái þá undanþágu frá Alþjóða- körfuknattleikssambandinu til að spila í Laugardalshöllinni. Leikurinn gegn Rússum gæti reynst góður undirbúningur Hvar svo sem leikirnir gegn Ítalíu fara fram þá er ljóst að ítalska liðið er hærra skrifað en það íslenska þótt úrslitin í leik Ítalíu og Hollands séu í meira lagi athyglisverð. Lands- liðsþjálfarinn segir að draga megi lærdóm af leiknum við Rússa. „Við vonumst eftir því að reynslan af því að spila gegn líkamlegu sterku liði Rússa muni undirbúa okkur fyrir leikina gegn Ítalíu í febrúar. Von- andi verðum við tilbúnari að mæta hávöxnum og líkamlega sterkum leikmönnum en við vorum í leiknum gegn Rússlandi. Mér fannst við hafa lært nokkuð meðan á leiknum gegn Rússum stóð vegna þess að við vor- um mjög áræðnir á móti þeim í síð- asta leikhlutanum. Þá fengum við góðar körfur frá mörgum leik- mönnum. En vitaskuld voru úrslitin löngu ráðin á þeim tímapunkti en í mínum huga er jákvætt að við héld- um áfram að reyna og fundum lausn- ir við einhverjum atriðum í leik Rússa,“ sagði Pedersen og hann er þakklátur fyrir framlag Martins Hermannssonar sem skoraði 27 stig gegn Hollandi þótt hann hafi verið tæpur vegna álagsmeiðsla í kálfa síðustu tvær til þrjár vikurnar. „Við erum þakklátir fyrir að njóta krafta hans gegn Hollandi því Mart- in spilaði sérlega vel og átti stóran þátt í sigrinum.“ Holland í háum gæðaflokki - Landsliðsþjálfarinn ánægður með gang mála í undankeppni HM Ljósmynd/FIBA Almere Craig Pedersen leggur línurnar í sigurleiknum gegn Hollandi en hann hefur stýrt karlalandsliðinu frá 2014 og kom liðinu tvívegis á EM. KÖRFUBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Eftir fyrstu tvo leikina í undan- keppni HM karla í körfuknattleik er Ísland í sömu stöðu og Ítalía en þjóð- irnar munu takast á í febrúar. Þær hafa báðar unnið Holland með tveggja stiga mun og hafa báðar tap- að fyrir Rússlandi. Íslendingar hófu undankeppnina á tveimur útileikjum. Ísland vann Holland 79:77 á föstudaginn en tap- aði 89:65 gegn Rússlandi á mánu- daginn. Ísland þurfti að fara í for- keppni fyrir HM en vann sig í gegnum hana og komst þannig inn í H-riðil undankeppninnar. Lands- liðsþjálfarinn Craig Pedersen segir að fleira jákvætt en neikvætt sé að finna í leik íslenska liðsins í fyrstu tveimur leikjunum. „Það er ekki nokkur spurning. Ef mér hefði boðist fyrir ferðina að þiggja einn sigur í þessum tveimur leikjum þá hefði ég þegið það. Leik- ur hollenska liðsins hefur verið í háum gæðaflokki síðustu árin. Í síð- ustu undankeppni unnu Hollend- ingar leiki gegn bæði Króatíu og Tyrklandi sem í báðum tilfellum eru mjög stórar körfuboltaþjóðir. Hol- land er því með sterkt lið og hjá þeim vantaði enga leikmenn í þetta Handknattleiksþjálfarinn Að- alsteinn Eyjólfsson verður áfram hjá Kadetten Schaffhausen í Sviss en samningur hans átti að renna út næsta sumar. Félagið hefur nú gert nýjan samning við Aðalstein til sumarsins 2023. Ánægja er með störf Aðalsteins hjá Kadetten sem skiljanlegt er því liðið er taplaust eftir tólf umferðir á tímabilinu. Lið- ið komst í riðlakeppni Evrópudeild- arinnar með því að slá út spænska liðið Granollers. Auk þess varð Ka- detten bikarmeistari á síðasta tíma- bili undir stjórn Aðalsteins. Aðalsteinn með nýjan samning Ljósmynd/Kadetten Kadetten Aðalsteinn Eyjólfsson er með liðið í efsta sæti í Sviss. Haukur Helgi Pálsson, landsliðs- maður í körfuknattleik, leikur að óbreyttu sinn fyrsta deildaleik hér á landi í hálft sjötta ár á föstudag. Haukur kom til liðs við Njarðvík í sumar en gekkst undir aðgerð á ökkla og er nú loks orðinn leikfær. Haukur sagði á heimasíðu Njarð- víkur í gær að hann væri tilbúinn til að spila nokkrar mínútur gegn Vestra á föstudagskvöld. Haukur lék með Njarðvík tímabilið 2015-16 en hefur síðan spilað í Frakklandi, Rússlandi og síðast með Andorra í spænsku A-deildinni. Fyrsti leikur Hauks á föstudag Ljósmynd/Eurocup Reyndur Haukur Helgi Pálsson í leik með Unics Kazan í Rússlandi. Skautafélag Reykjavíkur vann sinn fimmta sigur í átta leikjum á Ís- landsmótinu í íshokkí karla í vetur með því að leggja Fjölni að velli í Reykjavíkurslag í Skautahöllinni í Laugardal í gærkvöld, 7:2. Staðan var 2:1 eftir fyrsta leik- hluta og 4:2 eftir annan en SR skor- aði síðan þrisvar í síðasta leikhlut- anum og tryggði sigurinn. SR er þá komið með 14 stig eftir átta leiki og sækir að Skautafélagi Akureyrar sem er með 16 stig en hefur aðeins leikið sex leiki. Fjölnir situr eftir á botninum með aðeins þrjú stig úr átta leikjum. Sölvi Atlason og Kári Arnarsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir SR og þeir Axel Orongan, Robbie Sigurðs- son og Þorgils Eggertsson eitt hver. Aron Knútsson og Thomas Vidal skoruðu mörk Fjölnis. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skautahöllin Kári Arnarsson (23) og Thomas Vidal (88) skoruðu fyrir SR og Fjölni í gærkvöld. Kári gerði tvö af mörkum Skautafélagsins. SR skoraði sjö mörk Landsliðsmennirnir Ómar Ingi Magnússon, Bjarki Már Elísson og Kristján Örn Kristjánsson létu allir mikið að sér kveða í Evrópudeild- inni í handknattleik í gærkvöld. Þeir skoruðu sjö mörk hver fyrir lið sín, Magdeburg og Lemgo frá Þýskalandi og Aix frá Frakklandi. Magdeburg og Lemgo standa bæði mjög vel að vígi í sínum riðl- um. Lemgo, sem vann Medvedi frá Rússlandi, 30:27, er jafnt Benfica á toppnum með átta stig eftir fimm leiki í B-riðli og alveg ljóst að liðið fer í sextán liða úrslit en fjögur lið af sex halda áfram úr hverjum riðli. Magdeburg er líka á grænni grein með sjö stig úr fjórum leikj- um í C-riðli eftir sigur á La Rioja frá Spáni, 33:31, og það þyrfti stór- slys til að topplið Þýskalands færi ekki auðveldlega áfram. Kristján og samherjar í Aix eru hinsvegar í erfiðri stöðu í C- riðlinum eftir tap fyrir Sävehof í Svíþjóð, 33:31. Þeir hafa aðeins náð í eitt stig í fimm leikjum og sitja eft- ir í neðsta sætinu. En það eru fimm leikir eftir og takist Aix að sigra Gorenje frá Slóveníu og La Rioja í seinni umferðinni gæti liðið enn komist í sextán liða úrslit keppn- innar. Þá eru Viktor Gísli Hallgrímsson og samherjar í GOG frá Danmörku nánast öruggir með að komast í sextán liða úrslitin eftir jafntefli við Nantes frá Frakklandi, 29:29, í gærkvöld, enda þótt öll síðari um- ferð riðilsins sé eftir. vs@mbl.is Þrír íslenskir með sjö Evrópumörk Morgunblaðið/Unnur Karen Sjö Bjarki Már Elísson var drjúgur með Lemgo gegn Medvedi í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.