Morgunblaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021 Snæfinnur Snjókarl tók sér í gær stöðu fyrir utan húsið við Suðurlandsbraut þar sem skimun fer fram eftir kórónuveirunni. Snæfinnur var uppáklæddur í slopp, með hanska og sýnatökupinna. Eggert Það má fagna flestu í nýjum sáttmála ríkisstjórnarinnar og ekki síst ýmsu sem kallast á við þær áherslur Atvinnufjelagsins (AFJ), sem er nýstofnað félag einyrkja, lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Við stjórnarfólk fé- lagsins kynntum okkar hlutverk og stefnumál skömmu fyrir kosningar og fengum almennt jákvæðar undirtektir. Það er ánægjulegt að sjá núna samhljóm víða í sáttmála ríkisstjórnarinnar og Atvinnufjelagsins. Hefð- bundnir og rótgrónir aðilar vinnumarkaðarins sjá vonandi einnig tækifærin í þessum nýja stjórnarsáttmála. Hér er eingöngu fjallað um afmarkaða hluti hans og vitnað í stjórnarsátt- málann með „skáletri“ á nokkrum stöðum. Ný og verðmæt störf verða til Í stjórnarsáttmálanum er nokkrum sinnum minnst á tæknibreytingar, sem kallar á nýja færni fólks í flóknu tæknisamfélagi. Eins og segir í stjórnarsáttmála: „Tæknibreytingar hafa mikil áhrif á störf og kalla á nýja og aukna menntun. Ísland er nýsköpunarland með öfluga tæknilega innviði og á kjör- tímabilinu verður lögð áhersla á að styrkja þá stöðu enn frekar.“ Tækniþróun og aukin menntun þarf að leiða til kjarabóta og atvinnu fyrir allra. Á næstu árum og áratugum mun þetta gjörbreyta atvinnulífinu og þar með gerð kjarasamninga. „Löggjöf um skattalega meðferð kauprétta og hlutabréfa hjá nýsköpunarfyrirtækjum verður endurskoðuð þannig að þeim verði gert kleift að keppa um starfsfólk, stjórnendur og ráðgjafa með því að bjóða hlutdeild í framtíð- arávinningi með hagkvæmum hætti. Þessi áhersla mun tengja betur saman hagsmuni fyrirtækja, eigenda þeirra og starfsfólks, sem einnig verður í auknum mæli eigendur að fyrirtækjunum. „Jafnframt þarf að tryggja að tækniþróun leiði ekki til vaxandi ójafnaðar í samfélaginu,“ eins og segir í stjórnarsáttmál- anum. Taka verður undir þessi varnaðarorð. Iðnaður, rannsóknir, nýsköp- un og skapandi greinar Nýtt ráðuneyti nýsköpunar, iðnaðar, rannsókna og skapandi greina er stofnað í takt við margar helstu áherslur aukinna vaxtar- tækifæra, atvinnu og vel launaðra starfa á 21. öldinni. Tæknibreyt- ingar hafa skapað nýjan veruleika og sóknarfæri. Í stjórnarsáttmála er minnst á að hugverkaiðnaður- inn sé ný og öflug stoð í verð- mætasköpun á Íslandi. „Tækifærin leynast m.a. í heilbrigðis- og lífvísindum, hugbúnaðar- þróun, grænni tækni og skapandi greinum á fjölmörgum sviðum.“ Augljóslega duga ekki gamaldags vinnubrögð við gerð kjarasamn- inga því að á þessum sviðum þarf nýsköpun og skapandi hugsun í kjarasamningagerð. Það á ekki síst við um lítil og meðalstór fyrirtæki sem starfa á þessu sviði og mikill misskiln- ingur að það snúist um lækkun launa. Margt annað þarf til að bæta lífskjör og lífsgæði fólks. Ríkisstjórnin ætlar að nýta nýsköpun í auknum mæli til lausna á viðfangsefnum hins opinbera eins og segir. „Skapaðar verða for- sendur fyrir opinbera aðila til þess að vinna með nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum í því að hanna og þróa lausnir sem geta leyst við- fangsefni hins opinbera á betri og hagkvæmari en gert er.“ Þetta hljómar mjög í anda þess sem AFJ leggur áherslu á. Styrkjum samkeppnisstöðu fyrirtækja Í kafla efnahags- og ríkisfjármála segir að … „almannaþjónustan verður efld frekar og skattar lækkaðir í samræmi við þróun ríkis- fjármála með það að markmiði að bæta lífskjör þeirra sem verst standa og styrkja samkeppn- isstöðu fyrirtækja, þar sem m.a. verður sér- staklega litið til lítilla og meðalstórra fyr- irtækja“. Hér kveður við nýjan tón eins og víða í stjórnarsáttmálanum. Alls konar álögur, skattar og regluverk frá stjórnvöldum og óþarfa flækjustig í kjarasamningagerð veikir samkeppnisstöðu lítilla og meðalstórra fyrir- tækja. Mikill hagnaður bankakerfisins er aug- ljóslega ekki tilkominn frá stærri fyrirtækjum heldur þeim smærri og almenningi, sem hefur litla samningstöðu. Lífeyrissjóðir nýti ávöxtunartækifærin í hugvitshagkerfi 21. aldar Um lífeyrissjóði er lögð áhersla á það í stjórnarsáttmála að „… lífeyrissjóðirnir geti ávaxtað eignir sínar með fölbreyttum, en ábyrgum og öruggum hætti. Stuðlað verði að fjölgun ávöxtunarmöguleika lífeyrissjóða“. Einnig er rætt um að „efla möguleika lífeyr- issjóða til að fjárfesta í minni fyrirtækjum, m.a. nýsköpunarfyrirtækjum, og festar verði í sessi heimildir lífeyrissjóða til fjárfestinga þannig að þeir geti átt yfir 20% í nýsköpunar- og vaxtarsjóðum. Þetta rennir frekari stoðum undir lífeyriskerfið, eykur hagkvæmni lífeyr- issjóðanna og fjölbreyttari ávöxtunarmögu- leika“. Á þetta hefur AFJ lagt áherslu í sínum mál- flutningi. Virkjum lífeyrissjóðina, fjármagn þeirra og þekkingu til að koma sterkar og fyrr inn í áhugaverð og trúverðug fyrirtæki og fjár- festingasjóði, t.d. áður en verðmat þeirra hækkar mjög mikið. Þetta er að þróast í rétta átt, en þarf að gerast meira og hraðar. Hugsum um fólk um allt land „Ríkisstjórnin mun halda áfram að styrkja uppbyggingu nýsköpunar á landsbyggðinni með Lóu – nýsköpunarstyrkjum.“ Hvað varð- ar ferðaþjónustu er lögð áhersla á dreifingu ferðamanna um allt land allt árið og að efla at- vinnusköpun. Rannsóknir, nýsköpun og menntun í ferðaþjónustu er ánægjulegt áhersluatriði. Mjög stór hluti ferðaþjónustu- fyrirtækja utan höfuðborgarsvæðisins er af smærri gerðinni og þarf stuðning stjórnvalda og almennra fjárfesta til vaxtar og velsældar fyrir dreifðar byggðir landsins. Sama gildir einnig um ýmsar aðrar greinar atvinnulífsins, sem eiga fullt erindi víða um land. Burt með átakapólitík aðila vinnumarkaðarins. „Of mikið er af átökum og verkföllum og styrkja þarf verkefni ríkissáttasemjara,“ sagði fjármálaráðherra í viðtali við RÚV á kynning- ardegi stjórnarsáttmálans. Í stjórnarsáttmála segir: „Lögð verður áhersla á árangursríkt samráð við aðila vinnu- markaðarins, leitast við að tryggja gott sam- spil hagstjórnar og kjarasamninga og vinna þannig að því að bæta lífskjör. Með því að bæta verklag verður embætti Ríkissáttasemj- ara eflt, t.d. með því að koma á fót standandi gerðardómi.“ Frábær skilaboð til okkar aðila vinnumarkaðarins og þar með til Ríkis- sáttasemjara sem vill áreiðaðlega taka upp ný vinnubrögð. Vinnum saman að vexti, velsæld og bættum lífskjörum almennings. Atvinnufjelagið trúir því að launagreiðendur og launþegar þ.e. aðilar vinnumarkaðarins eigi samleið í að auka velsæld og bætt lífskjör alls almennings. „Það næst best fram með góðu samspili hagstjórnar og kjarasamninga,“ svo vísað sé beint í orðalag stjórnarsáttmálans. Með því að hlúa að skapandi hugsun, þekk- ingu og nýsköpun í hefðbundnum og nýjum at- vinnugreinum og tryggja öllum tækifæri til þátttöku munum við auka samkeppnishæfni okkar á 21. öldinni og tryggja sem best launa- kjör til allra. Aukin þekking og skapandi lausnir á brýnum áskorunum og tækifærum samfélagsins munu leysa úr læðingi mikil tækifæri fyrir alla. Þannig getur Ísland orðið land tækifæranna fyrir alla. Eftir Þorkel Sigurlaugsson »Nú er tækifæri aðila vinnu- markaðarins til að vinna með stjórnvöldum að því að vaxa til velsældar með hags- muni alls almennings og at- vinnulífs í huga. Þorkell Sigurlaugsson Vöxtur til velsældar er leiðarljósið Höfundur er stjórnarmaður í Atvinnufjelaginu, www.afj.is.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.