Morgunblaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021 Augnlæknastöðin í Kringlunni hættir starfsemi Frá 1. desember 2021 mun Augnlæknastöðin Kringlunni hætta starfsemi. Brynhildur Ingvarsdóttir augnlæknir hættir störfum. Eiríkur Þorgeirsson augnlæknir hættir störfum. Kristján Þórðarson augnlæknir hættir störfum. Elínborg Guðmundsdóttir augnlæknir flytur sína starfsemi til Augnlækna Reykjavíkur, Hamrahlíð 17, sími 551 8181. Bókanir sem gerðar hafa verið flytjast þangað. Harpa Hauksdóttir augnlæknir mun starfa hjá Sjónlagi í Glæsibæ 5. hæð, sími 577 1001, frá janúar 2022. Bókanir sem gerðar hafa verið flytjast þangað. Með kveðju og þökk til skjólstæðinga sem leitað hafa til okkar gegnum árin. Íslenskmyndlist ramma@simnet.is Innrömmun Íslenskmyndlist Málverk og eftirprenanir eftir Tolla Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Hernaðaruppbygging Rússa við landamæri Úkraínu var til umræðu á reglulegum tveggja daga fundi utan- ríkisráðherra NATO-landanna í Riga, höfuðborg Lettlands, í gær. Stjórn- völd í Úkraínu óttast að Rússar séu að undirbúa innrás í landið og geti hún jafnvel orðið á hverri stundu vegna þess hve rússneska herliðið er orðið fjölmennt og vel vígbúið. Hafa þau óskað eftir að NATO-ríkin grípi til viðeigandi ráðstafana til að sýna Rússum fram á að innrás í Úkraínu verði ekki liðin. Rússar hafna með öllu ásökunum um að þeir séu að undirbúa innrás. Þeir hafa hins vegar ekki rökstutt hvers vegna um hundrað þúsund her- menn hafa verið fluttir að landamær- unum. Menn minnast þess einnig að þeir neituðu harðlega slíkum áform- um í aðdraganda innrásarinnar 2014 þegar þeir innlimuðu Krímskaga, sem er hluti Úkraínu. Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði fyrr í vikunni að hann ætlaði að ræða við Vladimír Pútín Rússlandsforseta og Volodymyr Zelenskí, forseta Úkraínu, um helgina um spennuna á landamærum ríkjanna. Jens Stoltenberg, framkvæmda- stjóri NATO, sagði í gær að óljóst væri hvað vekti fyrir Rússum með fjölgun í heraflanum við landamæri Úkraínu. „En það liggur fyrir að þeir eru í ann- að sinn á þessu ári að safna saman miklum herafla á þessu svæði,“ sagði hann. Stoltenberg er í Lettlandi vegna ráðherrafundarins og kynnti sér í gær fastahersveitir NATO í landinu. „Við veitum því athygli að Rússar eru með þungavopn, dróna, raftækja- búnað til hernaðar og tugi þúsunda hermanna við landamærin,“ sagði hann. Ljóst er að NATO þarf með ein- hverjum hætti að senda Rússum skýr skilaboð þess efnis að hernemi þeir Úkraínu verði það þeim dýrkeypt. En stjórnmálaskýrendur segja að jafn- framt þurfi ráðamenn NATO-ríkj- anna að gæta þess að espa ekki Rússa upp með stóryrtum yfirlýsingum svo þær skapi þeim ekki réttlætingu til aðgerða. Meðal þess sem er á borðum utan- ríkisráðherranna á fundinum í Riga er umræða um að efla herstyrk NATO á austurlandamærunum og aukinn hernaðarstuðningur við Úkra- ínu sem af mikum ákafa sækist eftir aðild að bandalaginu. Utanríkisráð- herra landsins var á fundinum, en þar sem landið stendur utan bandalagsins nýtur það ekki þeirrar verndar að árás á það sé túlkuð sem árás á öll að- ildarríkin. „Málið snýst um að koma réttu skilaboðunum á framfæri og fæla Rússa frá árás í stað þess að auka hættuna á henni,“ sagði háttsettur yf- irmaður í Bandaríkjaher við AFP- fréttastofuna í gær. Utanríkisráðherrarnir munu einn- ig ræða stöðuna á landamærunum við Hvíta-Rússland þar sem þúsundir flóttamanna frá Mið-Austurlöndum hafa safnast saman með stuðningi stjórnvalda í Minsk og freista þess að komst til Vestur-Evrópuríkja á ólög- legan hátt. Pólverjar segja að Hvít- rússar hafi tekið þátt í að flytja flótta- mennina að landamærunum og telja að um sé að ræða ígildi árásar. Titringur vegna Úkraínu - Rússar á ný með mikinn herafla við landamæri Úkraínu - Stjórnvöld í Kænu- garði óttast innrás - NATO undirbýr viðbrögð til að halda aftur af Rússum AFP Vígbúnaður Kanadískir NATO-hermenn stilltu sér upp fyrir fréttamenn í Adazi-herstöðinni í Lettlandi í gær. Fastaherlið frá nokkrum aðildarríkjum NATO er til varnar í landinu en hernaðarumsvif Rússa valda áhyggjum. Bóluefni, að- löguð að nýja kórónuveiruaf- brigðinu Ómík- ron, gætu verið tilbúin eftir þrjá til fjóra mánuði ef þörf krefur, að sögn Emer Cooke, forstjóra Lyfjastofnunar Evrópu. For- stjóri bandaríska lyfjafyrirtækisins Moderna sagði í gær að hugsanlega veittu núverandi bóluefni ekki eins mikla vernd gegn því miðað við önnur afbrigði. Grunur vaknaði í gær um að afbrigðið hefði greinst í Færeyjum. KÓRÓNUVEIRUFARALDUR Breytt bóluefni eftir 3-4 mánuði Bóluefni gegn kórónuveirunni. Richard Moore, yfirmaður bresku leyniþjónust- unnar MI6, hvatti til þess í ræðu í gær að leyniþjón- ustustofnanir Breta og tækni- fyrirtæki lands- ins tækju höndum saman og deildu tækniþekkingu sinni í viðureign Breta við óvinveitt erlend ríki, hryðjuverkamenn og glæpagengi. Sá tími væri liðinn að leyniþjónustu- stofnanir hefðu einar og sér þá tækni á valdi sínu sem dygði gegn margvíslegum hættum samtímans. BRETLAND MI6 vill samstarf við tæknifyrirtækin Richard Moore Fögnuður ríkti þegar lýð- veldi var stofnað með form- legum hætti á eyjunni Barbados vestast í Atlants- hafi í gærmorgun en Barba- dos var áður hluti af breska samveldinu. Forseti nýja lýðveldisins er Sandra Mason og for- sætisráðherra Mia Amor Mottley. Karl Bretaprins var viðstaddur athöfnina og meðal annarra gesta var tónlistarkonan Rihanna sem er fædd og uppalin á eyjunni og hún var form- lega útnefnd þjóðhetja við athöfnina. Nærri 300 þúsund manns búa á Barbados. AFP Lýðveldi stofnað á Barbados

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.