Morgunblaðið - 01.12.2021, Page 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021
Smáauglýsingar
Bækur
Bækur
Bækur úr bílskúrnum.
Opin sölusíða á Facebook
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílar
Jaguar I-Pace EV400. 4x4
rafmagns jepplingur með hátt í
400 km drægni. Modelár 2020, ekinn
aðeins 7.800 km. 400 hestöfl.
20” álfelgur. Leður og fullt af lúxus.
Kostar hátt í 12 milljónir nýr.
Þú getur eignast þennan fyrir
aðeins 8.390.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 10–18 virka daga.
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Volare
söluborð kl. 11-14. Aðventusöngstund með Helgu Gunnars kl. 13.45.
Kaffi kl. 14.30-15. Bókaspjall kl. 15, Ragnar Ingi Aðalsteinsson, Bestu
gamanvísurnar. Nánari upplýsingar í síma 411 2702. Allir velkomnir.
Árbæjarkirkja Kyrrðar og fyrirbænastund hvern miðvikudag kl. 12.
Hádegisverður gegn vægu verði í safnaðarheimli kirkjunnar kl.12.30-
13. Opið hús fullorðinsstarfs kl.13.-15.30. Boðið er upp á létta leikfimi
og ýmislegt annað á þessum samverustundum. Nánari upplýsingar á
heimasíðu kirkjunnar www. arbaejarkirkja.is
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9-12.
Stóladans m. Þóreyju kl. 10. Stofnfundur Hollvina Árskóga kl. 10.45.
Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Pílukast kl. 13. Upplestur,
Bestu gamanvísurnar kl. 14. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl.
14.45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Sími: 411 2600.
Boðinn Leikfimi Qi Gong kl. 10.30. Handavinnustofa opnar kl. 13.
Harmonikkuspil fellur niður. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16.
Bústaðakirkja Opið hús frá kl 13-16, huggulegt samfélag með kaffi
og kruðéríi frá Sigurbjörgu í eldhúsinu. Prestur verður með hugleið-
ingu og bæn, gestur dagsins er Kristín Björg Sigurvinsdóttir
rithöfundur. Hún mun lesa upp úr bók sinni Dóttir hafsins. Hlökkum til
að sjá ykkur. Við gætum að sóttvörnum og eigum góða stund saman.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Kaffisopi og spjall
kl. 8.30-11. Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9.45-10. Ljóða-
hópur Soffíu kl. 10-12. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30-
12.30. Salatbar kl. 11.30-12.15. Heimaleikfimi á RUV kl. 13-13.10.
Kaplar og spil kl. 13.30.Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi
kl. 14.30-15.30.
Garðabær Poolhópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi
kl. 10. Skák í Jónshúsi kl. 10.30. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13.
Bridge og tvímenningur í Jónshúsi kl. 12.30-15.40. Stólajóga kl. 11 í
Kirkjuhv. Gler kl. 13 í Smiðju, Kirkjuhv. Vatnsleikf. Sjál. kl. 15 / 15.40 og
16.20. Zumba Gold kl. 16.30.
Guðríðarkirkja. Félagssstarf eldriborgara kl. 12. Helgistund í kirkju-
nni og söngur. Matur í safnaðarheimilinu kr. 1000. Bingó kr. 300 spjal-
dið, sr. Leifur bingóstjóri. Hlökkum til að sjá ykkur.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9-
11. Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-12, 500 kr. skiptið.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall kl. 8.30-10.30. Útvarpsleik-
fimi kl. 9.45. Framhaldssaga kl. 10.30. Handavinna – opin vinnustofa
kl. 13-16. Bridge kl. 13. Styttri ganga kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.30-
12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður.
Korpúlfar Glerlistarnámskeið með Fríðu kl. 9 í Borgum, ganga kl. 10
frá Borgum og inni í Egilshöll. Stjórnar og nefndarfundur Korpúlfa kl.
10 í Borgum. Gaman saman í Borgum kl. 13. Qigong með Þóru
Halldórsdóttur í Borgum kl. 16.30. Allar sóttvarnir í heiðrum hafðar,
minnum á heimsókn Gróu rithöfundar á morgun, 2. des. í Borgum og
tölvufærninámskeiðið í fyrramálið.Takk fyrir að virða sóttvarnir.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er postulínsmálun í handavinnu-
stofu 2. hæðar kl. 9-12. Bókband er í smiðju 1. hæðar kl. 9-12.30 og
aftur kl. 13-16.30. Þá verður píla í setustofu 2. hæðar kl. 10.30-11.
Myndlist verður í handavinnustofu 2. hæðar kl. 13-16. Að endingu er
dans með Vitatorgsbandinu kl. 14-15. Hlökkum til að sjá ykkur á
Lindargötu 59.
Seltjarnarnes Kaffikrókur alla morgna frá kl. 9. Leir Skólabraut kl. 9.
Botsía Skólabraut kl. 10. Billjard Selinu kl. 10. Kyrrðarstund í kirkjunni
kl. 12.Timburmenn í Valhúsaskóla kl. 13. Gler á neðri hæð félagsheim-
ilisins kl. 13. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl.
13. Á morgun fimmtudag opnar sýning Ásdísar Kalman í Bókasafninu
/ Gallerí Gróttu kl. 17. Allir velkomnir.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝
Eyþór Har-
aldur Einars-
son fæddist á Kvía-
bóli í Neskaupstað
8. febrúar 1929.
Hann lést á Hrafn-
istu við Laugarás
23. nóvember 2021.
Foreldrar Ey-
þórs voru Einar
Einarsson sjómað-
ur, f. 6. nóvember
1902, d. 26. apríl
1933, og Gíslína Ingibjörg Har-
aldsdóttir verkakona, f. 10. júlí
1904, d. 5. febrúar 1988. Bróðir
Eyþórs var Einar Gylfi, f. 24.
janúar 1932, d. 20. janúar 2011.
Eiginkona Eyþórs var Svan-
dís Ólafsdóttir, f. 27. febrúar
1929, d. 19. júlí 2013. Þau
gengu í hjónaband 18. nóv-
ember 1951. Börn þeirra eru: 1)
Margrét, f. 9. febrúar 1954. 2)
Ingibjörg, f. 20. desember 1957,
maki Guðmundur Andri Thors-
son, f. 31. desember 1957, börn
þeirra eru Svandís Roshni, f. 28.
febrúar 1995, og Sólrún Liza, f.
2. apríl 2000. 3) Sigríður, f. 9.
mars 1963, maki Styrmir
Guðlaugsson, f. 22. desember
1963. Börn Sigríðar og Jens la
Cour eru Jakob Einar, f. 28.
febrúar 1993, og Kristín, f. 6.
apríl 1995. 4) Þórey, f. 6. mars
1965. Börn hennar og Arnar
Guðnasonar eru Eyþór, f. 29.
trúnaðarstörfum, var formaður
Félags íslenskra náttúrufræð-
inga 1960-1962, ritari Hins ís-
lenska náttúrfræðifélags 1960-
1964 og formaður þess 1964-
1966 og 1976-1980. Hann var
einnig í stjórn Ferðafélags Ís-
lands, Landverndar og Surts-
eyjarfélagsins og var kjörinn
félagi New York Academy of
Sciences 1982, félagi Vísinda-
félags Íslendinga 1987, kjörinn
„Foreign Member“ eistneska
náttúruverndarfélagsins 1991
og heiðursfélagi Hins íslenska
náttúrufræðifélags 1993.
Rannsóknir Eyþórs voru
bæði á sviði gróðurfars há-
lendra svæða og nátt-
úruverndar, t.d. leiddi hann
rannsóknir á gróðurbreytingum
bæði við Lagarfljót og í Skafta-
felli þar sem fylgst hefur verið
með framvindu breytinga á
löngum tíma auk þess sem hann
skrásetti vaxtarstaði háplantna
á hálendum og norðlægum
svæðum. Eftir hann liggur
fjöldi greina um grasafræði og
náttúruvernd, auk fjölda ljós-
mynda af plöntum og gróð-
urfari sem hafa birst víða.
Jarðarförin fer fram frá Há-
teigskirkju í dag, 1. desember
2021, klukkan 13. Kirkjugestir
þurfa að sýna fram á neikvætt
hraðpróf við kirkjudyrnar.
Streymt verður frá útförinni.
Stytt slóð á streymið:
https://youtu.be/aHJCXNfD2wI
Hlekk á streymi má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
nóvember 1995, og
Svanlaug, f. 30.
nóvember 2000.
Eyþór lauk
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á
Akureyri 1949 og
mag.scient.-prófi í
náttúrufræðum
frá Kaupmanna-
hafnarháskóla
1958. Hann varð
deildarstjóri
grasafræðideildar Náttúru-
fræðistofnunar Íslands strax 1.
janúar 1959 og gegndi því
starfi þar til hann lét af störf-
um árið 1999 og var for-
stöðumaður stofnunarinnar í
samtals 14 ár. Hann sat í nátt-
úruverndarráði frá 1959, var
varaformaður 1972-1978 og
formaður 1978-1990. Hann sat
auk þess í ýmsum nefndum og
ráðum, meðal annars í náttúru-
verndarnefnd Evrópuráðsins
frá 1963-1993 og var formaður
hennar 1985-1986. Hann sat
auk þess í ýmsum nefndum um
fræðslu og rannsóknir á sviði
náttúruvísinda og náttúru-
verndar bæði heima og erlend-
is, m.a. á vegum Evrópuráðs,
Norðurlandaráðs og Alþjóða-
náttúruverndarsamtakanna
(IUCN) og var formaður sumra
þeirra.
Hann gegndi einnig mörgum
Söknuður
Fjallið sem þögult fylgdi mér eftir
hvert skref
hvert fótmál sem ég steig, nú er það
horfið.
Á beru svæði leita augu mín athvarfs.
Um eilífð á burtu fjallið sem fylgdi mér
eftir
til fjærstu vega, gnæfði traust mér að
baki
Horfið mitt skjól og hreinu, svalandi
skuggar.
Nú hélar kuldinn hár mitt þegar ég sef
og hvarmar mínir brenna þegar ég vaki.
(Hannes Pétursson)
Þetta ljóð tók að leita á mig
nokkrum dögum áður en faðir
minn lést. Þá var mjög dregið af
honum og ljóst hvert stefndi.
Hann hafði þá þegar risið upp úr
að minnsta kosti þremur bana-
legum og staðið nokkuð keikur
eftir þótt laskaður væri, fjöll láta
ekki smáatriði slá sig út af lag-
inu. En í þetta sinn varð fljótlega
ljóst að hann myndi þurfa að lúta
í lægra haldi.
Þögult fjall. Fátt lýsir honum
betur. Sjálfur missti hann föður
sinn fjögurra ára gamall og talaði
ekki um þann missi fyrr en undir
það allra síðasta, hann hafði
geymt sorgina og hjartasárið
með sér alla ævi. Kannski var
það þess vegna sem honum var
sérlega umhugað um að standa
með sínu fólki, styðja og hjálpa.
En hann var líka vísindamaður á
ferð og flugi um fjöll og firnindi
og karlmaður af sinni kynslóð og
því gat stundum verið erfitt að
samræma þessi tvö hlutverk.
Faðir minn var Norðfirðingur
í húð og hár. Hann ólst upp undir
háum fjöllum í Neskaupstað á
heimili þar sem hann var hvattur
til mennta. Amma hans sagði
honum sögur, kennari í barna-
skóla vakti áhuga hans á náttúru
og grösum og móðir hans og
móðurbróðir hans studdu hann
fjárhagslega þegar hann hélt til
náms í Danmörku.
Hann var vísindamaður sem
kleif ófá fjöllin og leitaði plantna í
skerjum Vatnajökuls og á öðrum
hálendum svæðum og var í for-
svari fyrir náttúruverndarmálum
hér á landi áður en flest fólk vissi
hvað það var. Við fengum nátt-
úrutenginguna í veganesti, með-
vitund um mikilvægi þess að
vernda vistkerfin, huga að nátt-
úrunni og að við mennirnir erum
hluti lífheildarinnar en ekki herr-
ar hennar, allt þetta gaf hann af
yfirvegun og rósemi.
Hann var ekki bara grasa-
fræðingur og náttúruverndar-
maður, bókasafnið á æskuheimili
okkar bar þess skýr merki. Þar
voru margir hillumetrar af ís-
lenskum fræðum, jafnvel sjald-
gæf rit, sem hann tók að gauka
að mér eftir að áhugi minn tók að
beinast á þær lendur. Tónlistin
hljómaði og pabbi raulaði gjarn-
an brot úr stórvirkjum kórbók-
menntanna enda var hann einn
af stofnendum Söngsveitarinnar
Fílharmóníu.
Við áttum gott heimili, nutum
góðs atlætis. Mamma með sinn
áhuga á öllum hlutum þjálfaði
samræðulistina og pabbi kímdi
yfir öllu saman við skrifborðið
sitt þar sem hann sat og las, fór
yfir próf, skrifaði greinar og und-
irbjó fyrirlestra fyrir ráðstefnur
víða um heim, og haggaðist ekki
þótt hlátrasköllin glymdu.
Hann varð ræðnari með árun-
um, tók að segja frá bernskuár-
unum á Norðfirði, frá föður sín-
um, tilfinningum og
hugleiðingum. Og nú er hann far-
inn. Það verður erfitt að venjast
þeirri tilhugsun og nú þarf nýtt
fólk að taka að sér hlutverk
fjallsins í lífi næstu kynslóða.
Ingibjörg Eyþórsdóttir.
Eyþór Haraldur Einarsson
var starfsamur maður sem kom
mikið við sögu grasafræðirann-
sókna og náttúruverndar hér-
lendis í fjóra áratugi. Hann var
aðeins fjögurra ára þegar faðir
hans drukknaði 1933 af bátnum
Friðþjófi frækna sem fórst með
fjórum sjómönnum á heimamið-
um í Norðfirði. Móðir hans Gísl-
ína Ingibjörg og hennar fólk
studdu Eyþór og yngri bróður
hans til náms, en dánarbætur til
hennar vegna drengjanna voru
alls 4.200 krónur. Eyþór útskrif-
aðist sex árum á undan mér frá
MA, þannig að leiðir okkar lágu
fyrst saman eftir að við Kristín
fluttumst til Norðfjarðar haustið
1963. Þar heimsótti Eyþór móð-
ur sína og Harald afa sinn á
Kvíabóli ár hvert, en Gíslína
starfaði þá á skrifstofu Fjórð-
ungssjúkrahússins.
Ég fylgdist álengdar með
rannsóknum Eyþórs og Kvís-
kerjabræðra á landnámi plantna
í jökulskerjum í Breiðamerkur-
jökli, sem hófust 1961 og voru
nýmæli. Náttúrufræðikennari
okkar í MA var Steindór Stein-
dórsson, einn af fáum sem um
miðja öldina stunduðu grasa-
fræðirannsóknir í óbyggðum
hérlendis. Skömmu eftir að Ey-
þór kom heim frá námi í Dan-
mörku 1958 hóf hann störf á
Náttúrufræðistofnun Íslands og
veitti grasafræðideildinni þar
forstöðu, einn sérfræðinga á því
sviði lengi vel. Miðlaði hann
drjúgum upplýsingum um gróð-
urfar Íslands, m.a. í alþjóðleg rit
eins og Flóru Evrópu og Flóru
Norðurlanda.
Eyþór lét sig snemma varða
náttúruvernd hérlendis, var lengi
varaformaður Náttúruverndar-
ráðs og formaður þess 1978-1991.
Við vorum samferða í Náttúru-
verndarráði 1972-1978 undir for-
sæti Eysteins Jónssonar og
fylgdumst þá að í eftirminnileg-
um sumarferðum ráðsins víða
um land, þar sem með heimafólki
voru lögð á ráðin um verndun
stórra svæða, eins og Horn-
stranda og Jökulsárgljúfra.
Á árunum 1989-1990 var Ey-
þór starfandi með mér í nefnd á
vegum menntamálaráðuneytis
um framtíð Náttúrufræðistofn-
unar af tilefni 100 ára afmælis
Hins íslenska náttúrufræði-
félags. Afrakstur hennar var
frumvarp til laga um stofnunina
sem lögfest var 1992 ásamt ný-
mæli um náttúrustofur, en nú
eru starfandi átta slíkar í öllum
landshlutum. Birtist framsýni
Eyþórs sem fulltrúa NÍ í stuðn-
ingi við að dreifa aðstöðu til nátt-
úrurannsókna víða um landið.
Svandísi eiginkonu Eyþórs
kynntumst við Kristín í eftir-
minnilegum ferðum, en saman
eignuðust þau fjórar dætur. Ey-
þór hélt bærilegri heilsu fram á
efri ár, sótti fyrirlestra, tónleika
og fylgdist vel með í fræðunum.
Hans verður lengi minnst fyrir
margþætt og farsæl störf.
Hjörleifur Guttormsson.
Eyþór kenndi mér að binda
bindishnút. Ætli þetta hafi ekki
verið fyrstu jólin mín í Bólstað-
arhlíðinni, ég rúmlega tvítugur
og þá sjaldan ég hafði þurft á
þessu að halda hafði ég fengið
einhvern til að gera þetta fyrir
mig, með minni eilífu afsökun um
að vera örvhentur. Með sinni
brosandi hægð stillti hann okkur
upp við spegil og sýndi mér
handtökin þannig að ég áttaði
mig undireins á þessum einfalda
hnúti. Þar með var ég búinn að
læra það. Og svo margt annað
kenndi hann mér. Hann var mik-
ilvæg fyrirmynd ungum manni.
Í Bólstaðarhlíðinni hafði Ey-
þór sitt horn í stofunni, umvafinn
bókunum sem honum voru kær-
astar, um landið og náttúruna.
Þar sat hann iðulega hummandi
og flettandi. Samt væri ofmælt
að segja að hann hafi þar látið
fara lítið fyrir sér. Hann hafði
sterka nærveru og stendur
manni ljóslifandi fyrir hugskots-
sjónum öllum þessum árum síð-
ar. Allt kannski á ferð og flugi
kringum hann; hlæjandi dætur
flögrandi milli herbergja að kall-
ast á um ótal hluti í senn, en samt
allar að grípa boltana hver hjá
annarri – og Svandís miðpunkt-
urinn í fjörugum samræðum og
hlátrasköllum. Og Eyþór í horn-
inu sínu, kannski yfir krossgátu,
kannski að fletta í Ferðabók
Eggerts og Bjarna og kannski
með Almanak Þjóðvinafélagsins,
sem entist honum fram undir það
síðasta sem dægrastytting. En
leggur svo kannski allt í einu orð
í belg, ekki hátt, en þó þannig að
við heyrum öll. Og lyftir sínum
miklu augabrúnum og kímir á
sinn sérstaka eyþórska hátt.
Eyþór lifði langa og farsæla
ævi. Hann var frumkvöðull í
grasafræði og náttúruvernd hér
á landi og gegndi fjölmörgum
trúnaðarstöðum. Seinustu árin
gerðist hann ellimóður, en missti
þó aldrei gleðina af samveru við
sína nánustu, yndið af því að
njóta klassískrar tónlistar og
blaða í Almanaki Þjóðvinafélags-
ins, gamli vísindamaðurinn. Það
var honum mikið lán að komast
undir það síðasta í skjól á Hrafn-
istu og fyrir það góða atlæti sem
hann naut þar erum við þakklát.
Blessuð sé minning Eyþórs Ein-
arssonar, ég minnist hans með
þakklæti sem ég fæ ekki með
orðum lýst.
Guðmundur Andri Thorsson.
Eyþór Einarsson
Bestu þakkir öllum þeim er vottuðu samúð
og vinarhug sinn við andlát og útför
eiginkonu minnar,
ÞÓRU DAVÍÐSDÓTTUR,
Suðurlandsbraut 60.
Hlutur stjórnenda, lækna og starfsfólks
á hjúkrunarheimilinu Mörk verður ekki fullþakkaður.
Ólafur Pálmason
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar