Morgunblaðið - 01.12.2021, Side 28
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hjónin Hörður Harðarson og María
Guðný Guðnadóttir stofnuðu árið
1978 svínabúið í Laxárdal skammt
frá Selfossi, sem nú heitir Korngrís,
og byrjuðu með eina gyltu. Björgvin
Þór, sonur þeirra, sér um reksturinn
ásamt foreldrum sínum og eru þau
með tæplega 200 gyltur. Þau hafa
stundað kornrækt fyrir svínin frá
aldamótum, bætt við sig kjötvinnslu
og Pizzavagninum, sem Petrína Þór-
unn Jónsdóttir, eiginkona Björgvins
Þórs, sér að mestu um reksturinn á.
Pizzavagninn, „staðurinn sem kem-
ur til þín“, eins og þau auglýsa, er á
völdum stöðum í nágrannasveitum
um helgar og þar eru seldar pítsur
úr eigin afurðum. „Það er alltaf nóg
að gera og ekki síst núna í jólasteik-
unum,“ segir Björgvin Þór.
Á ferðinni um helgar
Fyrir ríflega 40 árum stóð valið
um að fara út í eggjaframleiðslu,
kjúklingaframleiðslu eða svínarækt í
Laxárdal. „Jarðnæðið býður ekki
upp á mjólkurframleiðslu vegna
skorts á túnum og svínarækt varð
fyrir valinu af ýmsum ástæðum,“
segir Björgvin Þór. Til að byrja með
hafi kornræktunin verið á um fimm
hektara landi auk þess sem korn hafi
verið keypt af öðrum bændum, en nú
fari hún öll fram á nær 300 hektur-
um í Gunnarsholti, sem er í um 75
km fjarlægð.
„Við fórum í samstarf við Land-
græðsluna, byrjuðum að kaupa af
henni korn og fórum svo út í að
leigja af henni land og húsnæði fyrir
eigin ræktun.“ Björgvin Þór bætir
við að kornræktuninni fylgi mikil
yfirlega í sex vikur á vorin og aðrar
sex vikur á haustin auk þess sem
fylgjast þurfi reglulega með vexti
kornsins á sumrin. Pizzavagninn
hafi verið tekinn í notkun fyrir 18 ár-
um og kjötvinnsla og -sala í Árnesi
bæst við 2018. „Þróunin hefur átt
sér stað hægt og rólega í fjöl-
skyldubússtíl.“
Sláturfélag Suðurlands kaupir
megnið af kjötinu en svo vinna þau
og selja sjálf það sem út af stendur.
„Kjötið er ekki bara beint frá býli
heldur beint frá akri og ofan í
maga,“ útskýrir Björgvin Þór. Þau
séu með Pizzavagninn í Brautar-
holti, á Flúðum, í Árnesi, Reykholti,
á Borg og Laugarvatni á ákveðnum
tímum á föstudags- og laugardags-
kvöldum, ýmist hálfsmánaðarlega
eða mánaðarlega. „Ætli þetta sé
ekki elsti íslenski matarvagninn sem
fer á milli staða. Fólk hringir og
pantar og kemur svo og sækir, en ég
hef reyndar ekki náð að komast á
Laugarvatn í haust.“
Björgvin Þór segir ekki algengt
að svínaræktendur rækti líka fóðrið
og sjái jafnframt um kjötvinnsluna
að hluta. „Við byrjuðum að þreifa
fyrir okkur með kornræktina hérna í
Laxárdal um 2000, hún fór almenni-
lega af stað 2007 og við höfum verið
sjálfbær síðan 2012.“
Til nánari skýringar segir hann að
heimsmarkaðsverð á hrávöru hafi
hækkað gríðarlega mikið upp úr
aldamótum eftir að hafa verið frekar
lágt og nær staðið í stað í áratugi.
Eftir að hafa tvöfaldast í verði hafi
það haldið áfram að hækka og við
því hafi þurft að bregðast.
„Þá fór ég að skoða alvarlega að
fara út í ræktun, ekki síst með
sparnað, sjálfbærni og umhverf-
isvernd í huga. Landið sem við not-
um bindur kolefni en losar það
ekki.“
Frá akri og ofan í maga
- Kornrækt, svínarækt, kjötvinnsla og sala á sömu hendi
- Byrjuðu með eina gyltu á svínabúinu í Laxárdal
Í Pizzavagninum Björgvin Þór, Petrína Þórunn Jónsdóttir, Arnþór Elí Sindrason og Sindri Snær Björgvinsson.
Í Laxárdal Björgvin Þór Harðarson
með grís á svínabúi fjölskyldunnar.
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík
stolpigamar@stolpigamar.is
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
G
á
m
a
le
ig
a
ER GÁMUR LAUSNIN FYRIR ÞIG?
g Búslóðageymsla
g Árstíðabundinn lager
g Lager
g Sumar-/vetrarvörur
g Frystigeymsla
g Kæligeymsla
g Leiga til skemmri
eða lengri tíma
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 335. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Craig Pedersen þjálfari karlalandsliðs Íslands í körfu-
knattleik kveðst vera afar ánægður með að ná að vinna
annan tveggja leikja liðsins í undankeppni heimsmeist-
aramótsins þrátt fyrir stórt tap gegn Rússum í þeim
síðari. „Leikur hollenska liðsins hefur verið í háum
gæðaflokki síðustu árin,“ segir Pedersen en Ísland
vann leik þjóðanna í Almere. »23
Afar ánægður með einn sigur
ÍÞRÓTTIR MENNING
Jazzklúbburinn Múlinn
heldur áfram með haust-
dagskrá sína í kvöld, 1. des-
ember, kl. 20 í Flóa í Hörpu.
Þá kemur fram tríó söng-
konunnar Kristjönu Stef-
ánsdóttur en auk hennar
skipa það gítarleikarinn
Ómar Guðjónsson og bassa-
leikarinn Þorgrímur Jóns-
son. Á efnisskránni verða
ferskar spunaútsetningar á
lögum sem þekkt eru í flutningi Bubba Morthens,
Björgvins Halldórssonar, KK, Ragga Bjarna, Stuðmanna
o.fl. og segir í tilkynningu að fátt sé skemmtilegra og
meira ögrandi en að endurskapa og finna nýjar leiðir til
að flytja lög sem allir þekki og elski. „Markmiðið er að
kynna fólki fegurð dægurlagsins og í raun sanna að ef
lagið er gott og/eða vel samið þá er hægt að flytja það
í nánast hvaða útsetningu sem er,“ segir þar.
Dægurlög í spunaútsetningum tríós
Kristjönu Stefáns í Múlanum