Morgunblaðið - 08.12.2021, Side 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Hér er myrkur nánast allan sólar-
hringinn, aðeins skíma í 2-3 tíma
fyrir hádegi,“ segir Óli Grétar
Skarphéðinsson, skipstjóri á frysti-
skipinu Sólborgu RE 27, skipi
Útgerðarfélags Reykjavíkur. Skipið
var þá að veiðum vestan við Novaya
Semlja í Barentshafi þar sem 15
rússnesk skip voru einnig að veið-
um. Blængur NK hefur einnig verið
að veiðum í rússneskri lögsögu und-
anfarið, en var á leið út úr lögsög-
unni í gær.
Allt svipað nema myrkrið
Spjallað var við Óla Grétar í há-
deginu í gær, en þá var klukkan að
verða fjögur síðdegis að rússnesk-
um tíma „og hér er löngu komið
svartamyrkur,“ sagði Óli. Hann
sagði veður ágætt og minnti á það
sem oft væri á miðunum við Ísland,
hitastig um frostmark og vindur 10-
15 metrar á sekúndu. Allt svipað
nema myrkrið. Í gærkvöldi var hins
vegar spáð brælu, sem þó átti að
ganga fljótt yfir.
Óli Grétar segir að fiskiríið mætti
vera betra. „Við byrjuðum á norð-
austurhorninu á Gæsabanka, sem er
sunnar og vestar, og þar var sæmi-
legur kraftur í veiðinni framan af.
Eftir fimm daga var það farið að
róast svo við færðum okkur og er-
um núna á 73°N og 50°A. Núna er-
um við að skrapa í rúmt tonn á tím-
ann með tveimur trollum og í skipið
eru komin um 150 tonn á sex veiði-
dögum, sem eru fryst og að fullu
frágengin. Við megum veiða tæp
500 tonn af þorski og eitthvað af
ýsu. Vonandi fer þetta að hressast.“
26 manns í áhöfn
Sólborgin hélt úr höfn 24. nóv-
ember og rúmlega viku sigling er á
miðin við Novaya Semlja. Heim á að
koma ekki seinna en á Þorláks-
messu og samkvæmt því þarf að
draga trollin og halda heim á leið á
miðvikudag í næstu viku. „Vonandi
verður einhver kraftur í þessu
næstu daga, ekki veitir af,“ segir,“
Óli Grétar. Hann sagði ekki útilokað
að þeir héldu aftur suðvestur á
Gæsabanka þar sem fimm færeysk
skip voru að veiðum í gær.
26 manns eru í áhöfn Sólborgar
hverju sinni, en skipið bættist í flota
Útgerðarfélags Reykjavíkur í sum-
ar. Það er smíðað 1988 og er 76
metrar á lengd og rúmir 13 metrar
á breidd. Skipið bar áður nafnið Ta-
sermiut og var í eigu Arctic Prime
Fisheries á Grænlandi.
Dimmt og dauf veiði í Barentshafinu
- Sólborgin að veiðum við Novaya Semlja - Vikustím á miðin - Heim ekki seinna en á Þorláksmessu
Ljósmynd/Gunnar Finnur Gunnarsson
Sólborg RE Óli Grétar við stjórntækin í Barentshafinu síðdegis í gær.
Staðsetning
Sólborgar RE
við Novaja Semlja
Ísland
Rússland
Heildarlaun starfsmanna í bönkum
og öðrum fjármálafyrirtækjum eru
að meðaltali 922 þúsund á mánuði
samkvæmt niðurstöðum launakönn-
unar meðal félagsmanna í Samtök-
um starfsmanna fjármálafyrirtækja
(SSF), sem fram fór í október sl. Alls
svöruðu 2.459 félagsmenn í könnun-
inni og var þátttakan 79% og er hún
talin gefa mjög ábyggilega mynd af
kaupi og kjörum félagsmanna SSF
að því er fram kemur í umfjöllun um
niðurstöðurnar á vefsíðu SSF.
13,7% voru með heildarlaun undir
600 þúsund á mánuði, 15,9% voru
með laun á bilinu 600-699 þúsund en
um 32% voru með milljón eða hærri
heildarlaun á mánuði.
Fram kemur að rúm 20% sögðust
hafa óskað eftir launaviðtali hjá nú-
verandi vinnuveitanda á síðustu tólf
mánuðum og um 71% þeirra sagði að
breytingar hefðu orðið til hins betra í
kjölfar launaviðtalsins.
35% ánægð með launin
Um 35% svarenda segjast vera
mjög eða frekar ánægð með launin
sín en rúmt 31% er óánægt. Ánægja
með launin er minnst meðal þeirra
sem eru með lægri mánaðarlaun en
700 þúsund, en rúm 46% þeirra segj-
ast vera frekar eða mjög óánægð
með launin.
Þegar félagsmenn voru spurðir
hvort þeir hefðu miklar eða litlar
áhyggjur af því að verkefnum þeirra
eða starfi myndi verða breytt til hins
verra á núverandi vinnustað sagðist
rúmur fjórðungur svarenda hafa
frekar eða mjög miklar áhyggjur af
því en um 37% hafa mjög eða frekar
litlar áhyggjur af því. Einnig kom
fram að ríflega einn af hverjum fimm
hefur áhyggjur af því að hann missi
starf sitt en 39% hafa mjög eða frek-
ar litlar áhyggjur af því.
Tæplega helmingur starfsmanna
segist finna frekar eða mjög oft fyrir
streitu í starfi og 35% segja oft koma
fyrir eftir að vinnudegi lýkur að þau
eigi erfitt með að hætta að hugsa um
vinnuna, sem hafi neikvæð áhrif á
frítímann eða einkalíf.
Heildarlaun félaga í SSF
að meðaltali 922 þúsund kr.
- Tæpur helmingur segist oft finna fyrir streitu í starfi
Baldur S. Blöndal
baldurb@mbl.is
Guðlaugur Þór Þórðarson, um-
hverfis-, orku- og loftslagsráðherra,
segir mikilvægt að móta stefnu í
friðlýsingum en þá þurfi umræðan
að vera upplýst
og menn að tala
út frá staðreynd-
um.
Guðmundur
Ingi Guðbrands-
son, fyrrverandi
umhverfis- og
auðlindaráð-
herra, friðlýsti
landsvæðið
Dranga á
Ströndum föstudaginn 26. nóvem-
ber að tillögu Umhverfisstofnunar,
tveimur dögum áður en ný rík-
isstjórn var kynnt á Kjarvalsstöð-
um.
Umhverfisstofnun vísaði tillögu
um friðlýsingu jarðarinnar til ráðu-
neytisins sama dag og hún var
undirrituð.
Langur aðdragandi
Guðlaugur Þór segir í samtali við
Morgunblaðið að þessi ákvörðun
hafi átt sér langan aðdraganda en
fagnar umræðunni og áhuganum á
málaflokknum.
„Það liggur fyrir að málið sem
þarna var um að ræða er eitthvað
sem var í ferli í langan tíma þó svo
að endanleg ákvörðun hafi verið
tekin þarna á lokametrunum,“ segir
Guðlaugur sem kveðst þó ekki hafa
haft tíma til að ræða málið sér-
staklega við Guðmund Inga.
Bergþór Ólason vakti athygli á
málinu í óundirbúnum fyrirspurn-
um á þinginu í gær þar sem hann
kallaði eftir því að Guðlaugur
myndi vinda ofan af málinu eða
leysa það með einhverjum hætti.
Guðlaugur segir enga ástæðu til
þess að vera með slíkar yfirlýsingar
nú, hvorki til né frá.
„Það er auðvitað í stjórnarsátt-
málanum að skoða þessi friðlýstu
svæði alveg sérstaklega. Við mun-
um skoða málið ásamt því að kalla
eftir upplýsingum um það. Að sjálf-
sögðu verðum við við því. Eftir því
sem ég skil málið er ekki hægt að
ganga frá friðlýsingarferli á ein-
hverjum dagparti. Þetta er langur
aðdragandi og margir sem koma
þar að en ég mun skoða þetta betur
eins og önnur mál. Nú hefur bæði
verið kallað eftir upplýsingum um
þetta mál, sem sjálfsagt er að
bregðast við, og svo líka um friðlýst
svæði yfirhöfuð.“
Virkjanakostir í spilinu
Þingmenn höfðu orð á því að frið-
lýsing svæðisins gæti haft veruleg
áhrif á virkjunarkosti á svæðinu til
framtíðar og vísa þar til Hvalár-
virkjunar. Guðlaugur gerir ráð fyrir
því að sá hluti málsins verði skoð-
aður gaumgæfilega í upplýsingaöfl-
uninni.
„Við þurfum að ræða þessi mál.
Ekki bara á þinginu heldur líka á
meðal þjóðarinnar,“ segir Guðlaug-
ur Þór sem fagnar áhuganum og
umræðunni um málaflokkinn.
„Ég tel það bara vera mjög gott.
Þó ég eigi mér ekki þann draum að
fólk verði einhvern tímann sammála
um alla hluti, og hvað þá stóru mál-
in, þá tel ég að samtalið muni aldrei
skaða. Það getur bara bætt hlut-
ina,“ segir Guðlaugur Þór.
Gagnrýni úr fleiri áttum
Fjöldi þingmanna úr stjórnar-
andstöðunni gagnrýndi vinnubrögð
Guðmundar Inga, þar á meðal Logi
Einarsson, formaður Sam-
fylkingarinnar. „Alveg burtséð frá
því hvað manni finnst um þessa
friðlýsingu þá verð ég að taka undir
að þetta eru alveg ótrúlega undar-
leg vinnubrögð.“
Flokkssystir Loga, Helga Vala
Helgadóttir, tók í sama streng og
formaðurinn og gagnrýndi ráð-
herrahópinn allan: „Það verður að
vera eitthvert aðhald með ráðherr-
um, framkvæmdarvaldinu, þegar
ráðherrar taka þá ákvörðun einir
síns liðs að hafa ekkert þing hér að
störfum í fjölda mánaða til að geta
eftir eigin hentugleika dreift fjár-
munum almennings,“ sagði Helga
Vala en Bjarni Benediktsson, fjár-
mála- og efnahagsráðherra, svaraði
því til að Alþingi færi með fjárveit-
ingarvaldið.
Munu skoða friðlýstu svæðin nánar
- Stjórnarandstaðan gagnrýnir vinnubrögð Guðmundar Inga - Guðlaugur Þór fagnar aukinni um-
ræðu - Segir enga ástæðu til að vera með yfirlýsingar um ákvörðunina- Kanna áhrif á virkjanakosti
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ákvörðun Guðmundur Ingi Guðbrandsson, þá umhverfisráðherra, sam-
þykkti tillögu um að friðlýsa Dranga á síðasta virka vinnudegi sínum.
Guðlaugur Þór
Þórðarson