Morgunblaðið - 08.12.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.12.2021, Blaðsíða 22
MEISTARADEILDIN Kristján Jónsson kris@mbl.is Spænsku meistararnir í Atlético Madríd tryggðu sér í gær sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu karla í knattspyrnu. Atlé- tico fór til Portúgal og vann góð- an 3:1-útisigur á Porto og náði þar með 2. sæti í B-riðli keppn- innar. Talsvert gekk á í leiknum en leikmönnum úr báðum liðum var vikið af leikvelli. Wendell hjá Porto og Yannick Carrasco hjá Madríarliðinu. Antoine Griez- mann, Ángel Correa og Rodrigo de Paul skoruðu mörk Atlético en Sérgio Oliveira skoraði fyrir Porto. Tvö af sigursælustu liðum í sögu Evrópukeppni meistaraliða og Meistaradeildarinnar, Ajax og Liverpool, unnu alla leiki sína í riðlakeppninni þetta tímabilið. Með 4:2 sigri gegn Sporting Lissabon fékk Ajax 18 stig í C- riðli og með 2:1 útisigri gegn AC Milan fékk Liverpool 18 stig í B- riðli. Með sigrinum í Mílanó gerði Liverpool út um vonir AC Milan að ná öðru sætinu í riðlinum en fyrir lokaumferðina var þriggja liða barátta um að fylgja Liver- pool í 16-liða úrslitin. Fikayo To- mori kom þó Milan yfir á 29. mín- útu en Mohamed Salah og Divock Origi svöruðu fyrir Liverpool. Real náði efsta sætinu Stórliðin Real Madríd og Inter Milan mættust í Madríd í D-riðli en viðureignin hafði ekki neitt um það að segja hvaða lið kæmust áfram. Liðin voru bæði örugg en þau áttu eftir að útkljá hvort liðið næði efsta sætinu. Real tókst að gera það með 2:0 sigri og vann fimm leiki af sex. Í lok september urðu þau mögnuðu úrslit að Sher- iff Tiraspol frá Moldóvu vann Real 2:1 á Santiago Bernabeau- leikvanginum en Real lét ekki þau úrslit slá sig út af laginu. Segja má að Sheriff sé spútn- iklið keppninnar þetta tímabilið og liðið heldur áfram í Evr- ópudeildinni eftir að hafa hafnað í 3. sæti í D-riðlinum. Toni Kroos og Marco Asensio skoruðu mörkin fyrir Real í gær. Riðlakeppni Meistaradeild- arinnar lýkur í kvöld þegar leikið verður í E-, F-, G- og H-riðli. Þar er mesta spennan í G-riðlinum hjá Lille, Salzburg, Sevilla og Wolfs- burg. - Ajax og Liverpool fengu fullt hús AFP Í Portúgal Gleðin var við völd hjá leikmönnum Atlético Madríd í gær en lið- ið er komið áfram í útsláttarkeppnina eftir sveiflukennt gengi. Atlético vann og fer áfram 22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2021 Meistaradeild Evrópu A-RIÐILL: París SG – Club Brugge .......................... 4:1 RB Leipzig – Manchester City ............... 2:1 Lokastaðan: Manchester City 6 4 0 2 18:10 12 Paris SG 6 3 2 1 13:8 11 RB Leipzig 6 2 1 3 15:14 7 Club Brugge 6 1 1 4 6:20 4 _ Manchester City og París SG í 16-liða úr- slit, RB Leipzig í Evrópudeildina. B-RIÐILL: AC Milan – Liverpool............................... 1:2 Porto – Atlético Madrid........................... 1:3 Lokastaðan: Liverpool 6 6 0 0 17:6 18 Atlético Madrid 6 2 1 3 7:8 7 Porto 6 1 2 3 4:11 5 AC Milan 6 1 1 4 6:9 4 _ Liverpool og Atlético í 16-liða úrslit, Porto í Evrópudeildina. C-RIÐILL: Ajax – Sporting Lissabon ........................ 4:2 Borussia Dortmund – Besiktas............... 5:0 Lokastaðan: Ajax 6 6 0 0 20:5 18 Sporting 6 3 0 3 14:12 9 Dortmund 6 3 0 3 10:11 9 Besiktas 6 0 0 6 3:19 0 _ Ajax og Sporting í 16-liða úrslit, Dort- mund í Evrópudeildina. D-RIÐILL: Real Madrid – Inter Mílanó .................... 2:0 Shakhtar Donetsk – Sheriff .................... 1:1 Lokastaðan: Real Madrid 6 5 0 1 14:3 15 Inter Mílanó 6 3 1 2 8:5 10 Sheriff 6 2 1 3 7:11 7 Shakhtar Donetsk 6 0 2 4 2:12 2 _ Real Madrid og Inter Mílanó í 16-liða úr- slit, Sheriff í Evrópudeildina. England C-deild: Sunderland – Morecambe ...................... 5:0 - Jökull Andrésson var varamarkvörður hjá Morecambe. >;(//24)3;( 1. deild kvenna Aþena/UMFK – Tindastóll.................. 90:84 Hamar/Þór – Snæfell ........................... 77:68 ÍR – KR ................................................. 70:73 Þór Ak. – Vestri .................................... 81:48 Staðan: ÍR 9 8 1 697:527 16 Ármann 9 7 2 745:582 14 Þór Ak. 9 6 3 655:571 12 KR 9 6 3 681:629 12 Aþena/UMFK 10 5 5 699:725 10 Hamar/Þór 9 4 5 645:658 8 Snæfell 9 4 5 673:673 8 Stjarnan 8 3 5 549:584 6 Tindastóll 9 3 6 667:704 6 Fjölnir b 8 2 6 470:603 4 Vestri 9 1 8 525:750 2 1. deild karla Selfoss – Skallagrímur......................... 85:79 Staðan: Haukar 11 10 1 1130:825 20 Höttur 9 8 1 916:746 16 Álftanes 11 8 3 1028:908 16 Sindri 11 6 5 1001:955 12 Selfoss 11 6 5 931:948 12 Fjölnir 10 5 5 886:916 10 Skallagrímur 12 4 8 995:1025 8 Hrunamenn 10 4 6 871:968 8 Hamar 11 2 9 849:1008 4 ÍA 10 0 10 737:1045 0 Evrópubikar karla B-RIÐILL: Venezia – Valencia.............................. 67:81 - Martin Hermannsson skoraði 5 stig, gaf 6 stoðsendingar og tók eitt frákast fyrir Valencia á 30 mínútum. _ Gran Canaria 8, Buducnost 8, Valencia 8, Virtus Bologna 6, Ulm 4, Cedevita Olimpija 4, Promitheas 4, JL Bourg 4, Venezia 4, Bursaspor 4. NBA-deildin Charlotte – Philadelphia ......... (frl.) 124:127 Detroit – Oklahoma City ................. 103:114 Indiana – Washington...................... 116:110 Miami – Memphis............................... 90:105 Chicago – Denver ............................... 109:97 Milwaukee – Cleveland.................... 112:104 Minnesota – Atlanta......................... 110:121 Phoenix – San Antonio..................... 108:104 Golden State – Orlando...................... 126:95 Portland – LA Clippers ..................... 90:102 >73G,&:=/D KNATTSPYRNA Meistaradeild kvenna: Kópavogsv.: Breiðablik – Real Madrid ... 20 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin: Ásvellir: Haukar – Grindavík ................... 18 Borgarnes: Skallagrímur – Fjölnir..... 18.15 Ljónagryfjan: Njarðvík – Breiðablik . 19.15 Blue-höllin: Keflavík – Valur............... 20.15 1. deild karla: Ásvellir: Haukar – Fjölnir ................... 20.30 Í KVÖLD! Landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir verður ekki áfram í her- búðum sænska knattspyrnufélags- ins AIK á næstu leiktíð. Þetta stað- festi hún við mbl.is í gær. Hallbera, sem er 35 ára gömul, gekk til liðs við AIK fyrir síðasta tímabil en fé- lagið var nýliði í sænsku úrvals- deildinni og hélt sæti sínu. Hún spil- ar að öllum líkindum áfram í Svíþjóð. „Ég er bara að skoða mín mál og ég hef ekki tekið neina ákvörðun um það með hvaða liði ég spila á næstu leiktíð,“ sagði Hall- bera í samtali við mbl.is. Hallbera er farin frá AIK Morgunblaðið/Eggert Óvissa Hallbera Guðný Gísladóttir er án félags um þessar mundir. Kristín Þórhallsdóttir er líkleg til að berjast um verðlaunasæti á Evr- ópumeistaramótinu í kraftlyft- ingum í Västerås í Svíþjóð um næstu helgi. Hún fékk brons- verðlaun á HM í -84 kg flokki kvenna í haust. Fjórir aðrir Íslend- ingar eru á leið á mótið. Birgit Rós Becker keppir í -76 kg flokki kvenna, Hilmar Símonarson í -66 kg flokki karla, Viktor Samúelsson í -105 kg flokki karla og Aron Frið- rik Georgsson í -120 kg flokki karla. Viktor varð sjötti á síðasta heimsmeistaramóti. Fimm Íslendingar á EM í Västerås Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir EM Kristín Þórhallsdóttir komst á verðlaunapall á HM í haust. Noregur fer með fullt hús stiga í milliriðil eitt á HM kvenna í hand- knattleik undir stjórn Þóris Her- geirssonar. Noregur vann í gær stórsigur á Rúmeníu, 33:22, sem lengi hefur verið í hópi sterkustu landsliða í Evrópu. Noregur vann alla þrjá leikina í C-riðli og Rúm- enía vann tvo af þremur. Þóris og norsku kvenna bíða leik- ir í milliriðli gegn liðunum sem fóru áfram úr B-riðli. Þar fékk Rússland fullt hús stiga en eins og Noregur hefur lið Rússlands verið firna- sterkt alla þessa öld eða svo gott sem. Liðið leikur af pólitískum ástæðum undir merkjum Hand- knattleikssambands Rússlands í þessari keppni. Serbía og Pólland fóru einnig áfram úr B-riðlinum en Noregur ætti að eiga afar fína möguleika á að vinna þau lið. Svíþjóð tapaði stigi í gær ef þann- ig má að orði komast en liðið gerði jafntefli gegn Hollandi. Úrslit sem gætu haft áhrif á milliriðil tvö. Ljósmynd/heimasíða keppninnar HM Norska liðið var ekki í vandræðum gegn Rúmeníu í gær og er í góðri stöðu á þessum tímapunkti á HM en framundan er keppni í milliriðlum. Noregur í góðri stöðu Styrmir Maack og Axel Orongan voru áberandi í sókninni hjá Skautafélagi Reykjavíkur þegar liðið varð fyrst til að vinna Skauta- félag Akureyrar í venjulegum leik- tíma í Hertz-deild karla í íshokkí á Akureyri í gærkvöldi. SR sigraði 4:2 eftir að SA komst 2:1 yfir í leiknum. Styrmir Maack skoraði eina markið í fyrsta leik- hluta en hann átti einnig tvær stoð- sendingar fyrir SR í leiknum. Akureyringar komust yfir í öðr- um leikhluta með mörkum Baltas- ars Hjálmarssonar og varn- armannsins Orra Blöndal. Sölvi Atlason jafnaði fyrir SR og var staðan 2:2 fyrir síðasta leikhluta. Mörk frá Kára Arnarssyni og Ax- el Orongan í þriðja leikhluta inn- sigluðu sigurinn en Axel skoraði í opið mark SA þegar fimm sek- úndur voru eftir. Axel gaf einnig tvær stoðsendingar í leiknum. SA hefur unnið fimm af fyrstu sjö leikjunum en SR fimm af fyrstu níu. SR vann á Akureyri Ljósmynd/Bjarni Helgason/SR ís Skoraði Axel Snær Orongan kom að þremur mörkum hjá Reykvíkingum í gær þegar þeir unnu á Akureyri í annað sinn á keppnistímabilinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.