Morgunblaðið - 08.12.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2021
Ástandið í raforkumálum landsins
er augljóslega orðið graf-
alvarlegt. Morgunblaðið greindi frá
því fyrir nokkrum dögum að fiski-
mjölsverksmiðjur, sem hafa rafvæðst
til að nýta innlenda orku, hefðu orðið
fyrir skerðingu raf-
magns. Síðan hefur
það gerst að Lands-
virkjun sendir frá sér
tilkynningu um enn
frekari skerðingar
og að þær taki þegar
gildi. Fyrir þessu eru
nefndar þær ástæður
að ekki sé til næg
orka, auk þess sem
flutningskerfi raf-
orkunnar sé flösku-
háls.
- - -
Eins og fram-
kvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins
bendir á kemur þetta sér afar illa fyr-
ir efnahag landsins, sérstaklega á
tíma þegar hrávöruverð er hátt.
- - -
Að þetta skuli gerast á Íslandi, þar
sem nóg er til af virkjanlegu
fallvatni og jarðvarma, er með mikl-
um ólíkindum.
- - -
Árum saman hefur verið reynt að
nýta þær virkjanir sem þó teljast
í nýtingarflokki rammaáætlunar en
það hefur ekki tekist. Eina ályktunin
sem hægt er að draga er að sú laga-
umgjörð sem sett hefur verið um slík-
ar framkvæmdir gangi ekki upp og
að brýnt sé að gera breytingar þar á.
- - -
Þetta á raunar ekki aðeins við um
virkjanaframkvæmdir, því að
forstjóri Landsnets upplýsti í samtali
við Morgunblaðið í gær að fram-
kvæmdaleyfakerfið vegna flutnings-
lína rafmagns gæti tekið allt að tíu ár.
- - -
Allir hljóta að sjá að það er óvið-
unandi.
Sigurður
Hannesson
Raforkumál í
ólestri en næg orka
STAKSTEINAR
Guðmundur Ingi
Ásmundsson
Umferðin jókst mikið bæði á Hring-
veginum og á höfuðborgarsvæðinu í
seinasta mánuði eða um 23% á höf-
uðborgarsvæðinu samanborið við
sama mánuð í fyrra og um tæplega
24% á Hringveginum samkvæmt
umferðartölum Vegagerðarinnar.
Nú er talið útlit fyrir að umferðin
á Hringveginum yfir allt árið muni
aukast um heil 13 prósent frá árinu á
undan og að umferðin á höfuðborg-
arsvæðinu aukist um níu prósent en
sú aukning mun þó ekki slá metið í
umferð á höfuðborgarsvæðinu á
heilu ári.
Bent er á í umfjöllun Vegagerðar-
innar að þrátt fyrir þessa miklu
aukningu umferðarinnar á höfuð-
borgarsvæðinu í nóvember miðað
við sama mánuð fyrir ári var um-
ferðin samt um 1,6% undir því sem
hún var árið 2019 og 1,4% undir um-
ferðinni árið 2018, í umræddum
mánuði.
„Mest jókst umferðin í mælisniði á
Hafnarfjarðarvegi eða um tæpt 31%
en minnst um mælisnið á Reykja-
nesbraut eða um rúmlega 19%,“ seg-
ir í umfjöllun á vef Vegagerðarinnar.
Á Hringveginum jókst umferðin
mest um Norðurland eða um tæp
44% en af einstaka talningarstöðum
varð mesta aukningin um teljarasnið
á Mýrdalssandi, eða 230% aukning.
Mikil aukning umferðarinnar
- Umferð á Norðurlandi jókst um 44%
og um 230% á teljara á Mýrdalssandi
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Á ferð Umferðin á Hringveginum í
nóvember jókst um tæp 24 prósent.
Í tilraunaeldisstöð Hafrannsókna-
stofnunar í Grindavík hefur nú í
fyrsta sinn á heimsvísu tekist að ala
loðnu í eldisstöð. Loðnuseiðin sem
þar hafa verið alin eru nú að meðaltali
tíu sentimetrar á lengd og búist er við
því að þau hrygni í stöðinni næsta
sumar, rúmlega ársgömul.
Agnar Steinarsson, sérfræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun, flytur á
morgun, fimmtudag, erindi um þess-
ar eldistilraunir með loðnu. Málstofan
verður haldin í fundarsal á 1. hæð að
Fornubúðum 5 í Hafnarfirði og hefst
klukkan kl. 12.30.
Náðu að vaxa og dafna
Í kynningu á verkefninu kemur
fram að í vor náðu starfsmenn Hafró,
í góðri samvinnu við loðnusjómenn,
að frjóvga og klekja út loðnuhrognum
og hefja tilraunaeldi á loðnulirfum.
Frá þessu var greint í Morgunblað-
inu 22. maí undir fyrirsögninni „Tvö
þúsund líflegar eldisloðnur“.
Fóðrað var með örsmáu lifandi
dýrasvifi og fljótlega kom í ljós að lirf-
urnar náðu að vaxa og dafna í stöð-
inni. Rúmum þremur mánuðum síðar
var búið að venja tvö þúsund seiði á
þurrfóður.
Loðnan er lykiltegund
Í erindinu verða sýndar myndir og
myndskeið af þroskunarferli seið-
anna og skýrt frá niðurstöðum mæl-
inga. Greint verður frá nýjum rann-
sóknaklefa stöðvarinnar og fyrir-
huguðum rannsóknum á áhrifum
súrnunar á vöxt og afkomu loðnulirfa.
Þá verður fjallað um mögulegar eld-
isrannsóknir á loðnu á komandi árum.
„Loðna er lykiltegund í fæðuvistkerf-
inu í hafinu í kringum Ísland og mik-
ilvægt er að skilja hvaða áhrif lofts-
lagsbreytingar gætu haft á vöxt,
fjölgun og útbreiðslu tegundarinnar á
næstu áratugum,“ segir í kynning-
unni. aij@mbl.is
Eldisloðnur gætu
hrygnt næsta sumar
- Loðna alin í eldis-
stöð í fyrsta skipti
Ljósmynd/Agnar Steinarsson
Loðnueldi Lirfur skoðaðar í smásjá
í eldisstöðinni í Grindavík í vor.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/