Morgunblaðið - 08.12.2021, Síða 15
MINNINGAR 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2021
✝
Guðmundur
Guðbjörnsson
fæddist á Land-
spítalanum 30. júlí
1964. Hann lést á
heimili sínu í
Hafnarfirði 28.
nóvember 2021.
Foreldrar Guð-
mundar voru
Kristín Jóna Guð-
mundsdóttir, f.
1943, d. 1995, og
Guðbjörn Hallgrímsson, f.
1934, d. 2018. Systkini hans
eru Hallgrímur Georg, f.
16.12. 1953, d. 9.12. 1975,
Sigurlína Herdís, f. 18.10.
1965, maki Hjörtur Sigurðs-
Benedikt Fannar, f. 7.3. 1996.
Guðmundur bjó fyrstu árin
í Hafnarfirði og ólst upp
mestan hluta æskuára sinna á
Holtsgötu 9. Hann flutti til
Helsingör í Danmörku átta
ára gamall og bjó þar til 12
ára aldurs, flutti þá heim til
Hafnarfjarðar þar sem hann
bjó mestalla ævi.
Guðmundur var í grunn-
skóla í Öldutúnsskóla, eftir
það hóf hann nám við Iðnskól-
ann í Reykjavík þar sem hann
lærði offsetprentun og lauk
þar námi til sveinsprófs 1988.
Guðmundur vann við prent-
störf hjá ýmsum prentsmiðj-
um, m.a. G. Ben., Prisma,
Svansprenti og Prenttækni.
Útför Guðmundar fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag,
8. desember 2021, og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Einnig er tengill á:
https.//www.mbl.is/andlat
son, Guðrún
Fjóla, f. 27.3.
1972, d. 17.5.
2019, og Hallur
Örn, f. 13.5. 1981.
Guðmundur
giftist Margréti
Benediktsdóttur
9. september
1989. Börn þeirra
eru: 1) Kristín, f.
26.11. 1988, maki
Haukur Már
Karlsson, börn Elísabet Ýr,
Alexandra Margrét og Tinna
Gabríela. 2) Marta Rut, f.
27.3. 1990, maki Gísli Geir
Guðmundsson, börn Natalía
Kristín og Frosti Leó. 3)
Í dag kveð ég minn elskulega
föður sem hefur verið minn helsti
klettur í lífinu. Af honum lærði ég
mikið og sem barn byrjaði ég að
fylgjast með fótbolta með honum,
þá sérstaklega Liverpool. Fast
sitja í minninu allar ferðirnar upp
í Videomarkað um helgar að skila
inn getraunaseðlum og sitja svo
spenntur yfir leikjum dagsins.
Í febrúar 2019 náði ég að láta
drauminn hans rætast að fara á
leik á Anfield Road. Um haustið
2018 hafði ég unnið ferð á Anfield
og hóaði ég saman litlum hópi til
að taka með mér. Þegar við vorum
komnir á Loksins barinn var
stemningin í hópnum orðin ansi
góð, reyndar það góð að við misst-
um næstum af vélinni út. Þegar
við vorum að labba að hliðinu
splittaðist hópurinn upp þar sem
helmingurinn fór á klósettið en
hinn helmingurinn hélt áfram út í
vél. Þegar ég sé hliðið þá er stelpa
þar að loka hliðinu, ég tek sprett-
inn til hennar á meðan hinir
hringja í pabba og segja þeim að
hlaupa á meðan ég tef stelpuna.
Ég man þetta svo rosalega vel þar
sem þetta lýsir svo stemningunni
þar sem pabbi var pottþéttasti
maður sem hægt var að finna með
tímasetningar. Daginn eftir byrj-
uðum við á því að skoða völlinn, ég
man ennþá eftir brosinu á pabba,
loksins var hann mættur á An-
field. Seinna um daginn var komið
að leiknum, Liverpool vs Bo-
urnmouth. Fyrir leik fórum við á
Park þar sem heitustu stuðnings-
menn Liverpool hita upp áður en
við skelltum okkur á pöbb á An-
field. Þegar við komum í stúkuna
hafði ég aldrei séð pabba jafn
glaðan og ekki skemmdi fyrir að
hann hitti Phil Neal, fyrrverandi
leikmann liðsins. 3-0 sigur varð
niðurstaðan og sé ég pabba ennþá
fyrir mér hoppandi í stúkunni
sveiflandi Liverpool-treflinum.
Pabbi ólst upp að hluta í Hels-
ingör í Danmörku og bjó afi þar í
tugi ára. Ég mun aldrei gleyma
þessum ótal ferðum sem við fjöl-
skyldan fórum að heimsækja afa
til Helsingör. Alltaf fórum við í
tívolíið á Bakken þar sem við
eyddum jafnvel heilum degi sam-
an. Oftast var einnig farið á
ströndina þar sem veðrið virtist
elta pabba hvert sem hann fór.
Besti staðurinn í Helsingör var
samt torgið þar sem við sátum
alltaf saman, þar sem allir svöluðu
þorstanum og spjölluðu.
Við eigum svo margar góðar
minningar saman og gæti ég ekki
verið þakklátari fyrir allar þessar
góðu stundir sem við áttum sam-
an. Ég veit að pabbi er kominn á
betri stað í dag umvafinn fólkinu
sínu og laus við veikindin sem
hann barðist svo hetjulega við.
Hvíldu í friði, elsku pabbi.
Benedikt Fannar
Guðmundsson.
Elsku pabbi, það er ólýsanlega
sárt að þurfa að kveðja þig svona
snemma. Við erum samt glaðar í
hjartanu að vita að þú ert ekki
kvalinn lengur, síðasta árið er bú-
ið að vera svakalega erfitt fyrir
þig og er skrýtið að skoða myndir
af þér fullfrískum og kátum og
finnast svo langt síðan maður sá
þig. Þú varst ekki sjúklingurinn,
það var ekki pabbinn síkáti sem
elskaði að spila og leika við barna-
börnin, gefa þeim afasúkkulaði og
ís, fara með þau út á róló og gefa
öndunum brauð, brasa með
Frosta afastráknum sínum og
taka hann á rúntinn í „sportbíln-
um“ eins og Frosti segir.
Takk fyrir allt, elsku pabbi,
takk fyrir að leiðbeina okkur í
gegnum lífið án þess að taka
stjórnina. Takk fyrir að vinna
myrkranna á milli þegar við vor-
um litlar til þess að við gætum
haft það gott. Takk fyrir að kenna
okkur mannganginn, kenna okkur
að spila manna, kana, rommí,
skítakall og öll hin spilin. Takk
fyrir að leyfa okkur litlu stelpun-
um þínum að koma með þér í
Svansprent þegar þú vannst
kvöldvinnu meðan við rúlluðum
okkur um gólfin á trillum og viss-
um svo alltaf að við gætum platað
þig upp í sjoppuna til að fá „bara
smá“ nammi, pabbi sagði alltaf já.
Takk fyrir að kenna okkur að
hjóla og passa upp á hjólin okkar,
því jú – það var algjör vitleysa að
þínu mati að geyma hjólin úti, öll
hjól inn á kvöldin. Svona varstu
pottþéttur, stundum of pottþéttur
að okkar mati á þeim tíma þegar
við vildum horfa á 70 mínútur
fram á kvöld en slökkva þurfti á
tenginu sem var fyrir öll sjónvörp-
in kl. 23, ekkert vesen. Takk fyrir
að gera jólin alltaf ógleymanleg,
skemmtilegast var að fara að
keyra út pakka með pabba á að-
fangadag.
Við minnumst pabba sem alltaf
var hægt að hringja í ef eitthvað
var að, hversu lítið eða stórt það
var þá varstu alltaf til staðar og ef
þú ætlaðir að koma að sækja okk-
ur kl. 12 þá varstu mættur 3 mín-
útur í, aldrei seinn og skildir lítið í
okkur dætrum þínum að vera allt-
af á síðustu stundu, skilja bílinn
eftir í gangi, gleyma bíllyklunum í
svissinum eða geyma töskurnar
úti í bíl. Þá fórstu út, drapst á bíln-
um, læstir honum og tókst
töskuna inn, alltaf allt upp á 10.
Pabbi sem gaman var að koma í
heimsókn til, sérstaklega þegar
tilefni var. Veislu- og stemnings-
maður mikill og eigum við enda-
laust af minningum af góðum
gleðistundum á Bröttukinn. Þeir
voru ófáir fótboltaleikirnir sem
við horfðum á og skáluðum yfir og
var hvergi skemmtilegra að horfa
á landsleiki en með pabba heima á
Bröttukinn, þú tókst það alltaf alla
leið með landsliðstrefla, hatta og
húfur fyrir allt liðið.
Elsku pabbi, við kveðjum þig
með söknuði og trúum því heitt að
þú sért á hlýjum og góðum stað í
faðmi allra þeirra sem við söknum
svo sárt.
Þangað til næst, elsku pabbi.
Stelpurnar þínar,
Kristín og Marta.
Elsku brósi minn það er sárt að
kveðja þig í blóma lífsins. Fannst
nú að það væru nú komnir nógu
margir þarna hinum megin frá
okkur í bili. Elsku brósi minn, ég á
þér svo margt að þakka, að hafa
lagt í það þegar móðir okkar
kvaddi okkur að taka við mér á
mínum allra verstu tímum.
Sem krakki minnist maður
helst þegar við lékum okkur sam-
an í fótbolta eða handbolta inni í
stofu, mömmu til mikillar ham-
ingju eða þannig. En við máttum
eiga það að vorum nokkuð lunknir
í að líma skrautið hennar mömmu
saman svo hún tæki ekki eftir.
Ekki má nú gleyma hvað þú hafðir
gaman af að vinna bróður þinn í
ýmsu, sérstaklega vegna þess
hvað ég var tapsár og man ég þá
helst eftir mínígolfinu uppi í bú-
stað þar sem kylfur og ýmislegt
fékk að fjúka þér til mikillar
skemmtunar. Svo má ekki gleyma
ísrúntunum sem þú tókst okkur
vinina í.
Svo á eldri árum hvað við gát-
um talað mikið saman í síma næst-
um á hverjum degi og þá yfirleitt
um fótbolta og fjölskylduna okk-
ar.
Svo má ekki gleyma öllum
skrautlegu ferðunum okkar til
pabba í Helsingör. En ég er svo
glaður að okkur tókst að fara sam-
an á Anfield Road að sjá Liverpool
gegn Burnley í febrúar 2019, sú
ferð stendur upp úr eftir alla Liv-
erpool-leikina sem við vorum bún-
ir að sjá í sjónvarpinu og náðist
þessi ferð á síðustu stundu fyrir
Covid og veikindi þín elsku bróðir
minn.
Það var gott samtal okkar und-
ir restina að þrátt fyrir endalaus
skakkaföll í þessari fjölskyldu
okkar myndum við aldrei vilja
skipta. Ég gæti ekki verið heppn-
ari með fjölskyldu hvort sem það
eru systkini, frænkur, frændur,
mágkona eða fyrrverandi mágur.
Maður verður að minnast alls þess
sem við gengum saman í gegnum
og ekki hefði ég komist svona
langt í lífinu ef það hefði ekki verið
fyrir þína hjálp, elsku bróðir
minn.
En ég veit að það hafa verið
góðar móttökur þegar þú kvaddir
þennan heim og fékkst loksins að
hitta hana móður okkar sem þú
hefur saknað svo lengi. Við
sjáumst síðar elsku bróðir, en von-
andi ekki alveg í bráð.
Þinn bróðir,
Hallur Örn Kristínarson.
Á móti báran mjög er stíf
margt úr skorðum hrekur.
En Guð á himnum gefur líf,
en gjarnan einnig tekur.
Þungt er í lofti, það er vetur
þó við munum áfram þreyja.
Ugg og kvíða að okkur setur,
æ, af hverju þurft’ann Gummi að deyja.
Já þung er báran það ég veit
þetta líf er ekkert grín.
En athvarf áttu uppi í sveit,
elsku hjartans stelpan mín.
Það er nú okkar eina von,
að ei muni sorgin buga.
Því kveðjum við traustan tengdason,
með trega, en þökk í huga.
(Ben. Ben.)
Elsku Margrét, börn, tengda-
synir og barnabörn, mikill er ykk-
ar missir. Allt frá fyrstu ferð með
Norðurleið í Vatnsskarð að heim-
sækja heimasætuna hefur Gummi
átt sitt sæti innan fjölskyldunnar,
traustur og hjálpsamur.
Við vottum ykkur okkar dýpstu
samúð.
Marta og Benedikt
(Benni) á Vatnsskarði.
Líf vort er tónn; á hörpu ljóss og húms
það hljómar skammt,
grætur og hlær við hliðskjálf tíma og
rúms,
en hljómar samt;
síðan einn dag, þann dag veit engin
spá
er dauðaþögn og tónninn liðinn hjá.
(Jóhannes úr Kötlum)
Elsku Margrét og fjölskylda,
innilegar samúðarkveðjur.
Kristín Hjartardóttir og
Egill Eðvarðsson.
Það var haustið 2020 sem við
fengum þær skelfilegu fréttir frá
Margréti systur að Gummi henn-
ar hefði greinst með illvígt mein.
Nú tæpu einu og hálfu ári síðar er
svo komið að leiðarlokum,
Gummi hefur hlotið sína hvíld og
við lítum um öxl og þökkum fyrir
að hafa fengið að kynnst elsku-
legum mági okkar.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
(Höf. ók.)
Fyrstu minningar okkar um
Gumma eru auðvitað úr sveitinni
okkar við sumarstörf eða nota-
legar stundir frá jólum þar sem
Gummi var mjög duglegur að
sinna okkur yngstu systkinum
Margrétar. Þær voru ófáar
stundirnar sem fóru í að spila
veiðimann eða ólsen. Það kom
fljótlega í ljós í þessum spila-
mennskum að Gummi var mikill
keppnismaður og vildi hann hafa
þetta almennilegt og því var oftar
en ekki haldið bókhald um sigra í
ólsen-einvíginu og sá sem var
fyrstur upp í tíu stig vann.
Svona var hann Gummi, allt
upp á punkt og prik enda með
eindæmum talnaglöggur maður
og færni hans í hugarreikningi
var nokkuð sem við dáðumst
endalaust að, en hann hafði feng-
ið strangt uppeldi hjá nunnunum
í Hafnarfirði í þeim efnum. Að-
ferðir hans við að muna tölur,
fæðingardaga og símanúmer ut-
an að voru hins vegar svo flóknar
að við ákváðum að punkta þetta
frekar bara hjá okkur.
Gummi var sérlega bóngóður
og varla er til sú íbúð sem við
systkinin fluttum inn í sem hann
ekki málaði og bar dótið inn í og
jafnvel aftur út skömmu seinna
án nokkurra athugasemda.
Gummi og Margrét systir okk-
ar voru einstaklega samheldin og
gerðu flesta hluti saman. Alltaf
var Gummi tilbúinn að vera með,
hvort sem var að skreppa norður,
fara í bústað eða bara kíkja í
systkinakaffi. Það var helst að
mikilvægur Liverpool-leikur
kæmi í veg fyrir að Gummi mætti
á svæðið.
Jafnaðargeð Gumma var með
ólíkindum, segjum við þekkjandi
systur okkar, og við munum að-
eins eftir einu skipti sem virki-
lega fauk í hann. Þá hafði eitthvað
gengið á hjá þeim hjónum í sveit-
inni og á sunnudegi stekkur
Gummi upp í bílinn og brunar af
stað en skilur aðra úr fjölskyld-
unni eftir. Kristín fékk kvíðakast
en Marta Rut var öllu rólegri og
þegar Gummi kemur svo til baka
spyr hún pabba sinn: „Pabbi,
fórstu í fýlu?“ Gummi var snögg-
ur að svara með bros á vör: „Nei,
nei, ég fór á Blönduós í pílu.“
Já margar og góðar minningar
kom upp þegar litið er um öxl en
fyrst og fremst minnumst við
Gumma fyrir sína þægilegu nær-
veru og glaðlyndi sem einkenndi
hann alla tíð.
Svo, vinur kæri, vertu sæll,
nú vegir skilja að sinni.
Þín gæta máttug verndarvöld
á vegferð nýrri þinni.
Með heitu, bljúgu þeli þér
ég þakka kynninguna,
um göfugan og góðan dreng
ég geymi minninguna.
(Höf. ók.)
Elsku Margréti okkar, Krist-
ínu, Mörtu, Benna, Halli, Systu og
fjölskyldunni allri sendum við
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur og biðjum góðan Guð að vaka
yfir ykkur og veita styrk á þessum
erfiðu tímum.
Benedikt, Ásta Nína,
Halldóra og Guðmundur
frá Stóra-Vatnsskarði.
Fallinn er frá góður vinur og fé-
lagi. Við æskuvinirnir kynntumst í
Öldutúnsskóla í Hafnarfirði og
með okkur tókst góð vinátta sem
haldist hefur æ síðan. Það er mik-
ið áfall þegar einn af félögunum
fellur frá allt of snemma. Gummi
var einstakt ljúfmenni, glaðlyndur
með afbrigðum og mikill vinur
vina sinna. Áhugamál okkar voru
samtvinnuð á unglingsárunum og
var fótbolti aðalmálið. Fljótlega
kom í ljós að Gummi var lunkinn
fótboltamaður og gríðarlega
áhugsamur um enska boltann og
var gallharður stuðningsmaður
Liverpool. Áhuginn var svo mikill
að hann keypti útvarp í þeim eina
tilgangi að ná BBC-útsendingum
frá Englandi í gegnum lang-
bylgju. Svo sátum við í kringum
útvarpið og Gummi með eyrað
upp við það þar sem útsendingin
var ekki sú skýrasta. Öll úrslit
voru skrifuð niður í stílabækur og
skipta þær tugum í dag. Gummi
bjó á Holtsgötunni og það varð
helsti samkomustaður okkar vin-
anna þar sem við hittumst oft. Frá
Holtsgötunni streyma ótal gleði-
minningar. Í kjallaranum þar sem
Gummi var með sitt rými var sett
upp borðtennisborð sem tók allt
plássið og haldin borðtennismót.
Þar eyddum við mörgum af okkar
menntaskólaárum þar sem heims-
málin voru rædd á meðan við
gerðum okkar klára til að halda út
á lífið.
Þegar við urðum eldri og stofn-
uðum okkar fjölskyldur minnkaði
samgangurinn eins og gengur en
ávallt hélt sá strengur sem við
bundumst í æsku. Gummi var
duglegastur að hóa í okkur fé-
lagana ef honum fannst fulllangt
frá síðasta hittingi og þá aðallega
til að horfa á enska boltann (og
kannski fá sér einn eða tvo kalda)
og passaði hann upp á að það væri
Liverpool-leikur þann daginn. Þá
voru gleðin og skemmtilegheitin
ávallt við völd. Það var mikil gæfa
okkar félaganna að hafa Gumma
að vini.
Fljótlega kom í ljós eftir að
Gummi kynntist Möggu sinni að
hann var mikill fjölskyldumaður
og mjög stoltur af fjölskyldu sinni
sem stækkaði ört og ekki síst
barnabörnunum þegar þau komu
hvert af öðru.
Nú er Gummi okkar fallinn frá
eftir erfið veikindi og skilur eftir
sig stórt skarð í okkar vinahópi.
Með þessum orðum viljum við fé-
lagarnir minnast góðs vinar og
sendum Möggu og fjölskyldu okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Þeirra missir er mestur en minn-
ingin um góðan dreng mun lifa.
Einar, Helgi, Hilmar, Guð-
mundur Skúli, Gunnar Þór,
Jón Ari, Magnús og Rúnar.
Guðmundur
Guðbjörnsson
Við systur kveðj-
um nágranna okkar
til margra ára.
Himmi var ekki bara nágranni
okkar, hann var einnig faðir
vina okkar. Við erum þrjár syst-
urnar og börn Himma og Gerðu
Stínu voru líka þrjú og lékum
Sigursveinn Hilm-
ar Þorsteinsson
✝
Sigursveinn
Hilmar Þor-
steinsson fæddist 2.
mars 1948. Hann
lést 22. nóvember
2021.
Útför hans fór
fram 4. desember
2021.
við okkur mikið
saman. Foreldrar
okkar voru miklir
vinir og má segja
að vináttan hafi
bundið þessar tvær
fjölskyldur saman.
Það var mikill sam-
gangur á milli
heimilanna tveggja
þar sem kærleikur,
gleði og glens réð
ríkjum. Himmi var
mikill gleðigjafi og ávallt stutt í
húmorinn hjá honum.
Oft er rifjuð upp sagan þegar
Jónína, yngst okkar systra,
fæddist. Líkt og algengt er var
farið að ræða hverjum hún líkt-
ist. Talið var upp þetta helsta:
augu, munnur og nef og þegar
talið barst að því hve stórar
hendur hún væri með þá var
Himmi ekki lengi til að lyfta
upp sínum stóru höndum og
sagði: „Það er ekki skrítið að
barnið sé með stórar hendur,“
og var þá mikið hlegið. Það var
gott og dýrmætt að fá að alast
upp við hliðin á slíkum eðal-
manni líkt og Himma. Við
kveðjum Himma með söknuði
og tökum gleðina, minningarnar
og kærleikann með okkur
áfram.
Elsku fjölskylda, Gerða
Stína, Gulli, Doddi, Freyja,
tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn, við sendum
innilegar samúðarkveðjur.
Valgerður, Steingerður og
Jónína Kristín Guðrúnar-
og Sigtryggsdætur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
DÓRA FRÍMANNSDÓTTIR,
lengst af á Borgarholtsbraut 50,
er látin. Útför fer fram frá Digraneskirkju
föstudaginn 10. desember klukkan 10.
Vegna aðstæðna verða aðeins hennar nánustu aðstandendur
viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á: laef.is/dora
Frímann Ingi Helgason Anna Sigurlaug Magnúsdóttir
Gunnlaugur Jens Helgason Hanna Sólrún Ásvaldsdóttir
Helgi Helgason Gunnur Rannveig Gunnarsd.
Guðrún S. Helgadóttir Björn Sigurbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn