Morgunblaðið - 17.12.2021, Síða 2

Morgunblaðið - 17.12.2021, Síða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2021 www.bakoisberg.is E L DHÚS A L L RA L ANDSMANNA HÁGÆÐA VÍNGLÖS FRÁ ZW IESEL FYR IR VANDLÁTA Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Sú aðstoð sem við veitum hér er mörgum nauðsynleg og þetta er starf sem gefandi er að sinna,“ seg- ir Anna H. Pétursdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. Ætla má að um 1.100 fjölskyldur fái aðstoð nefndarinnar nú fyrir há- tíðirnar, en jólaúthlutunin var í gær og aftur í dag. Fólk hefur þá mætt í aðstöðu nefndarinnar við Hátún í Reykjavík og tekur – samkvæmt fyrir fram ákveðnum skammti – mat og aðrar nauðsynjar sem ættu duga til hátíðlegs jólahalds. Sjálfboðaliðar leggja lið Fjöldi sjálfboðaliða mætti á svæðið í gær og lagði starfinu lið. Meðal annars kom fólk frá ákveðnum fyrirtækjum og var á svæðinu við störf brot úr degi við matarúthlutunina, sem lengi hefur verið litið svo á að sé að minnsta kosti að einhverju marki hitamælir á þjóðfélagið, lífskjör og stöðu efna- hagsmála hverju sinni. Í aðdrag- anda jólahátíðarinnar þykir þetta sömuleiðis teikna upp andstæður og að fjöldi fólks hefur lítið handa á milli. „Kjúklingur, kjötbollur, lamba- læri og hamborgarhryggur. Í kjöt- inu hefur fólk um ýmislegt að velja og auðvitað í öðrum tegundum líka,“ segir Anna. Hún hefur tekið þátt í starfi Mæðrastyrksnefndar frá 2004 og verið formaður frá 2015. Á þessum árum segir hún að misjafnt hafi verið hve margir hafi óskað eftir aðstoð fyrir jól. Fyrst eftir efnahagshrunið hafi látið nærri að 2.000 fjölskyldum hafi ver- ið liðsinnt og um 1.500 í fyrra, en einmitt þá voru margir atvinnulaus- ir vegna afleiðinga kórónuveir- unnar. Fjöldi fjölskyldna segir ekki alla söguna „Í ár verða þessar fjölskyldur um 1.100 og kemur fækkun frá í fyrra til vegna þess að nú er atvinnu- ástand einfaldlega betra nú en var,“ segir Anna. Hún varar þó við að of stíft sé horft í tölurnar eða fjöldann. Á bak við vanda hverrar fjölskyldu sé gjarnan sár saga, og mörgum sé erfitt að leita hjálpar. Nú þegar mataraðstoð Mæðra- styrksnefndar er lokið er komið að jólagjafaúthlutun, sem verður næsta mánudag. Þá geta foreldrar sem eru í viðkvæmri stöðu fengið gjafir handa börnum sínum – og þar má velja úr leikföngum, bókum og fleiru. Viðmiðið er tvær gjafir á hvert barn – auk þess sem öll börn fá til viðbótar bók og púsluspil. Morgunblaðið/Eggert Tiltekt Frá vinstri talið: Jónína Unnur Gunnarsdóttir, Guðrún Helga Schopka og Anna H. Pétursdóttir tína mat- vörur í poka. Valið er af kostgæfni og reynt að hafa skammtinn ríflegan svo dugi til hátíðlegs jólahalds. Aðstoða um 1.100 fjöl- skyldur nú fyrir jólin - Margir til Mæðrastyrksnefndar - Jólaúthlutun í gangi Morgunblaðið/Eggert Formaður Gefandi starf að sinna segir Anna H. Pétursdóttir. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála hefur fellt úr gildi starfs- leyfi vegna aukins sjókvíaeldis Laxa fiskeldis í Reyðarfirði. Er þetta í annað skipti sem leyfi til starfsem- innar er fellt úr gildi. Í bæði skiptin er um að kenna mistökum leyfisveit- enda ríkisins, að mati úrskurðar- nefndarinnar. Ástæðan fyrir því að úrskurðar- nefndin felldi nú úr gildi starfsleyfi Umhverfisstofnunar fyrir 10 þúsund tonna hámarkslífmassa á nýrri stað- setningu Laxa fiskeldis í Reyðarfirði er að stjórnvöld höfðu ekki látið gera umhverfismat fyrir áhættumat erfðablöndunar og burðarþolsmat, hvorki fyrir þetta svæði né önnur. Umhverfisstofnun og Matvæla- stofnun veittu Löxum leyfi til að auka eldi sitt með útgáfu leyfa í mars á síðasta ári. Fyrri úrskurðurinn, þar sem rekstrarleyfi var fellt úr gildi, snerti meira stærð seiða sem Mat- vælastofnun setti ekki á réttan hátt inn í rekstrarleyfi. Úr því var bætt og fengu Laxar nýtt leyfi. Nú er hitt leyf- ið, starfsleyfið, fellt úr gildi. Það hefur þó aðeins áhrif á hluta aukningarinn- ar. Laxar fiskeldi eru með 6 þúsund tonna leyfi í Reyðarfirði og halda auk þess 3 þúsund tonnum af nýja leyfinu því útgáfa þess hluta var ekki kærð. Málið snýst því um 7 þúsund tonna aukningu. Bætt verði úr vanköntun Jens Garðar Helgason, fram- kvæmdastjóri Laxa fiskeldis, segir að fyrirtækið sé komið með 2.400 tonna lífmassa af þeim 3 þúsund sem það hefur leyfi fyrir. „Fyrir utan þau al- mennu óþægindi sem svona fréttir valda á þessi úrskurður ekki að hafa nein áhrif á okkar daglegu starfsemi. Við verðum komnir í hámarkið, 3 þús- und tonn, við lok fyrsta ársfjórðungs næsta árs og vonandi verða stjórnvöld þá búin að bæta úr vanköntum með umhverfismat áætlana og þá verði hægt að endurnýja leyfið að fullu,“ segir hann. Vísar hann þar til vinnu atvinnuveg- aráðuneytisins og Hafrannsóknastofn- unar við að gera umhverfismat áætl- ana fyrir burðarþolsmat og áhættu- mat erfðablöndunar, bæði fyrir Aust- firði og Vestfirði. Tilkynnt var í lok október að sú vinna væri hafin. Í skýrslu sem þá var kynnt kom fram að niðurstaða umhverfismatsins leiddi ekki til breytinga á þessum áætlunum en vísað til mótvægisaðgerða og vökt- unar til að draga úr neikvæðum um- hverfisáhrifum sjókvíaeldis. Leyfi fellt úr gildi í annað sinn - Leyfi til stækkunar sjókvíaeldis í Reyðarfirði fellt úr gildi vegna þess að stjórnvöld létu ekki gera um- hverfismat áætlana - Unnið er að úrbótum - Úrskurðurinn hefur lítil áhrif á starfsemi Laxa fiskeldis Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Reyðarfjörður Unnið við sjókví hjá Löxum. Fyrirtækið hefur leyfi til að vera með níu þúsund tonna lífmassa en sjö þúsund tonna aukning var ógilt. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég lít svo á að sem bæjarráðs- fulltrúi sé það skylda mín að vinna af ábyrgð að hagsmunum allra bæj- arbúa þessa fal- lega bæjar okkar og það er mín sannfæring að með afstöðu minni við af- greiðslu síðustu fjárhagsáætlunar hafi ég breytt rétt og styrkt stöðu bæjarsjóðs til að takast á við nýjar áskoranir,“ segir Bjarni Torfi Álfþórsson, bæj- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Sel- tjarnarnesi, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær. Bjarni kaus með fulltrúum minni- hluta í bæjarstjórn um tillögu um hækkun útsvars úr 13,7% í 14,09%. Þótti það tíðindum sæta að fulltrúi sjálfstæðismanna styddi tillögu um skattahækkun auk þess að stilla sér upp gegn flokksfélögum sínum. Meirihlutinn á Seltjarnarnesi hefur löngum stært sig af lágu útsvari í bænum. Bjarni segir í yfirlýsingu sinni að hækkunin kosti hvern íbúa í bænum að meðaltali um 19 þúsund krónur á ári. „Álagningarprósenta á Seltjarn- arnesi verður eftir þessa hækkun áfram ein sú lægsta á öllu landinu, en með þessari sáttatillögu verður tryggt að áfram verður boðið upp á góða þjónustu við íbúa sveitarfé- lagsins í mikilvægum málaflokkum, svo sem á fjölskyldu-, æskulýðs- og skólasviði. Stundum er það svo að markmið skarast og í þessu máli lít ég svo á að til að geta staðið við loforð um áframhaldandi góða þjónustu við bæjarbúa og á sama tíma ráðist af krafti í þau verkefni sem blasa við okkur, sé hækkun útsvars nauðsyn- leg. Það ætti ekki að koma á óvart, því ég hef hef áður lýst skoðun minni á nauðsynlegri hækkun út- svars við afgreiðslu fjárhagsáætlun- ar í desember 2020, til að tryggja ásættanlega þjónustu,“ segir Bjarni. Kostar hvern íbúa 19 þúsund - Bæjarfulltrúi ver hækkun útsvars Bjarni Torfi Álfþórsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.