Morgunblaðið - 17.12.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2021
Þú finnur fallegar
og vandaðar
jólagjafir hjá Eirvík
Suðurlandsbraut 20 / Reykjavík / Sími 588 0200 / eirvik.is
Ýmsu virðist hafa verið ábótavant
um borð í Drangi ÁR sem sökk við
bryggju á Stöðvarfirði í fyrrahaust. Í
niðurstöðum Rannsóknarnefndar
samgönguslysa, siglingasviði, kemur
fram að nefndin telur að sjór hafi
komist inn á milliþilfar með spúl-
slöngu og/eða slóglúgunni og komist
þaðan niður í lest og vélarrúm. Í sér-
stakri ábendingu bendir nefndin á
mikilvægi þess að ganga tryggilega
frá skipi þegar það er yfirgefið í höfn og sjá til þess að það sé vaktað.
Drangur ÁR hafði verið á sæbjúgnaveiðum og komið til Stöðvarfjarðar
til löndunar 12. október. Skipverjar voru í viðhaldsvinnu og lagfæringum á
búnaði á vinnsluþilfari fram til 20. október en fóru þá í frí. Að morgni 25.
október var kominn það mikill sjór inn í skipið að það lagðist á stjórnborðs-
hliðina og sökk við bryggju.
Við rannsókn kom meðal annars fram að haffærisskírteini var útrunnið,
en það gilti til 15. október 2020. Eftir að skipinu var lyft upp og það látið
fljóta kom ekki í ljós neinn leki að því. Skipið var við bryggju á Stöðvarfirði
fram í ágúst 2021 en þá var það dregið til útlanda í niðurrif.
Gengið sé tryggilega frá skipum í höfn
Drangur ÁR Skipið sökk við bryggju.
Ljósmynd/RNSA
Vélarbilun í flutningaskipinu Lag-
arfossi 230 sjómílur suðvestur af
Garðskaga í desember í fyrra er
rakin til framleiðslugalla á sveifar-
ási aðalvélar. Þetta kemur fram í
lokaskýrslu rannsóknarnefndar
samgönguslysa, siglingasviði, um
atvikið. Óskað var eftir aðstoð og
varðskipið Þór dró skipið til hafnar
í Reykjavík.
Lagarfoss var á siglingu frá
Reykjavík til Argentia á Nýfundna-
landi. Aðalvélin stöðvaðist fyrir-
varalaust og í ljós kom að skynjari
í sveifarhúsi hafði stöðvað hana.
Reynt var að ræsa aðalvélina aftur
og gekk hún þá í 2-3 mínútur þar
til skynjarinn stöðvaði hana aftur.
Reynt var að gera við bilunina,
en við skoðun á sveifarási aðal-
vélar kom í ljós sprunga á sveif nr.
4 og í framhaldi var tilraunum
hætt til að gera við úti á sjó. Sveif-
arásinn var sendur til rannsóknar
hjá vélaframleiðanda og við rann-
sókn á sprungunni benti allt til
þess að gjall hefði komist í efnið í
framleiðslu og við þetta gjall-
innskot hafði myndast spenna í
málmum sem að lokum leiddi til
málmþreytu og sprungumyndunar
í sveifarásnum.
Framleiðslugalli orsök bilunar í Lagarfossi
Eystri landsréttur í Danmörku
þyngdi í gær dóm yfir íslenskum
karlmanni sem hafði verið fundinn
sekur um ítrekuð kynferðisbrot
gegn dóttur sinni. Dómurinn var
þyngdur úr fjórum árum í sex ár.
Brotin framdi maðurinn gegn
stúlkunni á árunum 2006 til 2010
eða frá því hún var fimm ára gömul
þar til hún varð níu ára. Stúlkan er
nú danskur ríkisborgari.
Maðurinn var fundinn sekur um
að hafa nauðgað dóttur sinni þegar
þau voru á Íslandi og einnig í sum-
arhúsi á Fjóni. Stúlkan hefur ekki
átt nein samskipti við föður sinn frá
árinu 2010. Embættismenn í Ny-
borg á Fjóni kærðu málið til lög-
reglu árið 2018 eftir að stúlkan
greindi frá því hvað hún hefði upp-
lifað í æsku.
Dómur yfir Íslend-
ingi þyngdur ytra
Brot Málið var kært til lögreglu árið 2018.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Félag atvinnurekenda og Samtök
fiskframleiðenda og útflytjenda
skora á Svandísi Svavarsdóttur,
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, að tryggja að í vinnu
nefndar um framtíð íslensks sjáv-
arútvegs verði skoðuð verðlagning
afurða og leiðir til að rýmka reglur
um kaup og sölu aflaheimilda.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í bréfi samtakanna tvennra,
sem Morgunblaðið hefur undir
höndum, til ráðherrans í tilefni af
þeim fyrirheitum sem gefin eru í
stjórnarsáttmálanum um skipun
nefndar sem gert er að kortleggja
áskoranir og tækifæri í sjávar-
útvegi, sem og meta þjóðhagslegan
ávinning af núverandi fiskveiði-
stjórnunarkerfi.
Í bréfi samtakanna til Svandísar
segir að mikilvægt sé að í störfum
sínum taki nefndin sérstaklega
fyrir starfs- og samkeppnisskilyrði
fiskvinnslna sem ekki reka útgerð
og eru háðar fiskmörkuðum þegar
kemur að hráefnisöflun.
„Eitt af því sem stendur rekstri
þessara fyrirtækja fyrir þrifum er
skert samkeppnisstaða vegna svo-
kallaðrar tvöfaldrar verðlagningar
í sjávarútvegi. Uppgjörsverð
vinnslu- og útgerðarfyrirtækja í
innri viðskiptum er mun lægra en
verð það sem fæst fyrir fiskinn á
fiskmörkuðum,“ segir í bréfinu.
Kvarta vegna tæplega
áratugar aðgerðaleysis
Í bréfi samtakanna er vakin at-
hygli á því að í kjölfar kvörtunar
Samtaka fiskframleiðenda og út-
flytjenda sendi Samkeppniseftir-
litið frá sér álit árið 2012, sem
beint var til þáverandi ráðherra
sjávarútvegsmála, Steingríms J.
Sigfússonar. Í álitinu er meðal
annars fjallað um samkeppnisstöðu
útgerða sem ekki stunda fisk-
vinnslu og fiskvinnslufyrirtækja
sem ekki stunda veiðar, gagnvart
útgerðum sem bæði stunda veiðar
og vinnslu.
Telja samtökin það samkeppnis-
hindrun að aðeins þeim sem eiga
og reka fiskiskip sé heimilt að
versla með aflaheimildir, sem er
sagt valda því að vinnslur án út-
gerðar eiga erfiðara með að verða
sér úti um hráefni.
Segja skekkju í verðmyndun
Jafnframt er vakin athygli á
skekkju í verðmyndun þar sem
hvati er fyrir félög með útgerð og
vinnslu að gefa upp sem lægst verð
í innri viðskiptum. „Eftir því sem
verð á aflanum sem seldur er til
fiskvinnslu í eigu útgerðarfyrir-
tækis er lægra þeim mun lægri
verður launakostnaður viðkomandi
útgerðar og hafnargjöld af lönd-
uðum afla.“ Auk þess sem þessi
innri viðskipti eru sögð valda því
að minni afli fari um fiskmarkaði,
sem skekki verðmyndun þar.
Samkeppniseftirlitið tilgreindi í
áliti sínu fjórar mögulegar leiðir
sem eiga að draga úr samkeppnis-
hindrunum. Bent var á mögulegar
milliverðlagningarreglur, jöfnun
hafnargjalda milli útgerða sem
stunda vinnslu og þeirra sem gera
það ekki, að koma í veg fyrir áhrif
útgerða á verðlagsstofuverð og
auka heimildir til verslunar með
aflaheimildir.
„Samtökin skora á ráðherra að
tryggja að horft verði til tvöföldu
verðlagningarinnar og þeirra sam-
keppnishindrana, sem raktar voru
í áliti Samkeppniseftirlitsins, í
vinnu nefndarinnar. Þau mælast
jafnframt til þess að haft verði
samráð við sérhæfðu fiskvinnsl-
urnar og samtök þeirra og leitað
eftir sjónarmiðum þeirra í vinnu
nefndarinnar,“ segir í bréfi sam-
takanna til Svandísar Svavars-
dóttur, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra.
Skora á ráðherra í von um
betri samkeppnisskilyrði
- Benda á að rýmka megi heimildir til kvótaviðskipta og jafna hafnargjöld
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fiskur Fiskvinnslur með útgerð eru sagðar hafa samkeppnisforskot gagn-
vart vinnslum án útgerðar sem FA og SFÚ telja ástæðu til að leiðrétta.
Tveir karlmenn hafa verið úrskurð-
aðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald
að kröfu lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu vegna fjölda þjónaðar-
mála að undanförnu. Er tekið fram
að meðal annars sé um að ræða
þjófnað á farsímum úr búnings-
klefum íþróttahúsa á höfuðborg-
arsvæðinu.
Mennirnir eru báðir á þrítugs-
aldri og úrskurðaði Héraðsdómur
Reykjavíkur þá í varðhald til 10.
janúar. Fram kemur í tilkynningu
frá lögreglunni að rannsóknin sé
umfangsmikil og að talið sé að um
skipulagðan þjófnað sé að ræða.
Í vikunni var meðal annars
greint frá því að tólf farsímum hafi
verið stolið af hópi barna sem
stunduðu frjálsar íþróttir hjá ÍR. Þá
var einnig farið inn í búningsklefa
Gróttu og nokkrum símum stolið
frá iðkendum sem voru á æfingu.
Varðhald vegna
stuldar úr
búningsklefum
_ Koma á sérstökum milliverðlagningarreglum sem hafa það að mark-
miði, í þessu tilviki, að verðlagning í innri viðskiptum á milli útgerðar- og
fiskvinnsluhluta samþættrar útgerðar verði eins og um viðskipti milli
tveggja óskyldra aðila sé að ræða.
_ Koma í veg fyrir að skip útgerðar sem ekki er samþætt greiði hlutfalls-
lega hærri hafnargjöld með því að miða aflagjöld hafna við önnur hlutlæg
viðmið, t.d. landað magn eða fiskverð sem væri ákveðið af óháðum opin-
berum aðila.
_ Breyta ákvæðum laga um Verðlagsstofu skiptaverðs um að útgerðir
komi með beinum hætti að ákvörðun um svokallað Verðlagsstofuverð
sem útgerðir notast við í innri viðskiptum á milli útgerðarhluta og fisk-
vinnsluhluta fyrirtækjanna.
_ Heimildir til kvótaframsals verði auknar en slík breyting væri til þess
fallin að jafna aðstöðumun fiskvinnslna án útgerðar gagnvart fiskvinnslu
samþættra útgerða til að verða sér úti um hráefni til vinnslunnar.
Benda á fjórar leiðir til úrbóta
ÚR ÁLITI SAMKEPPNISEFTIRLITSINS