Morgunblaðið - 17.12.2021, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2021
Örn Arnarson rýnir í fjölmiðla
og fjölmiðlamarkað í Við-
skiptablaðinu sem kom út í gær.
Pistillinn hefst á þessum orðum:
„Út frá sjónar-
horni fjölmiðl-
unar er fyrst og
fremst tvennt
sem vekur athygli
við fjárlaga-
frumvarp
ríkisstjórnar-
innar: Mikil aukn-
ing á framlögum
til Ríkisútvarpsins á meðan fram-
lög til einkarekinna fjölmiðla eru
lækkuð annars vegar og hins veg-
ar að ríkið ætli á næsta ári að
verja hálfum milljarði til upp-
byggingar á opinberri streym-
isveitu óvinsæls efnis.“
- - -
Eins og fram kemur í pistlinum
er ætlunin að hækka fram-
lagið til Rúv. um 430 milljónir á
næsta ári, eða um 9%. Framlagið
til einkareknu miðlanna lækki um
2% á sama tíma og verði 384
milljónir. „Þarna er ríkið að gera
aðhaldskröfu á einkarekna miðla
á meðan það er verið að stórauka
framlög til ríkismiðilsins,“ segir
Örn.
- - -
Þá bendir hann á að í fjárlaga-
frumvarpinu sé gert ráð fyrir
hálfum milljarði króna „á næsta
ári handa Kvikmyndamiðstöð Ís-
lands til að stofnunin geti þróað
ríkisrekna streymisveitu til að
hýsa myndefni sem einkareknar
efnisveitur hafa til þessa ekki
haft áhuga að sýna.“
- - -
Hefði ekki a.m.k. mátt spara
með því til dæmis að gera
Rúv. að sinna ríkisreknu streym-
isveitunni og draga úr annarri
starfsemi? Og var þörf á því fyrir
ríkið að færa út kvíarnar í sam-
keppninni við einkaaðila? Er rík-
issamkeppnin ekki nógu víða?
Örn Arnarson
Ríkið færir
út kvíarnar
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Til athugunar er að leigja gamla
Herjólf til Færeyja. Vegagerðin og
Strandfarskip hafa átt í viðræðum um
hvort mögulegt er að samnýta skipið
með einhverjum hætti. Hugmyndin
er að það verði í notkun í Færeyjum
en þó þannig að hægt verði að kalla
það til baka með stuttum fyrirvara, ef
á þarf að halda vegna siglinga til og
frá Vestmannaeyjum.
Eftir að nýi Herjólfur komst í full-
an rekstur hefur hlutverk Herjólfs
III verið í óvissu. Hann er hugsaður
sem varaskip en liggur verkefnalaus
við bryggju og er rekstur og viðhald
kostnaðarsamt. Hann þykir heldur
ekki henta fyrir Breiðafjörð.
Strandfarskip rekur almennings-
samgöngur þar í landi, meðal annars
áætlunarsiglingar á milli eyja. Félag-
ið sýndi áhuga á að fá Herjólf III í
sína þjónustu, að því er fram kemur á
vef Vegagerðarinnar. Það er hugsað
sem uppbótarskip vegna mikilla anna
á ýmsum siglingaleiðum. Skipið verð-
ur fullmannað og í reglubundinni
notkun en ekki fast í áætlunarsigling-
um. Það þýðir að skipinu verður hald-
ið við og áhöfn til staðar og ferjan í að-
eins um sólarhrings fjarlægð frá
Íslandi.
Reiknað er með að niðurstaða fáist
í viðræðurnar á næstu mánuðum.
helgi@mbl.is
Vilja fá gamla Herjólf til Færeyja
- Herjólfur III yrði áfram varaskip fyr-
ir áætlunarsiglingar til Vestmannaeyja
Morgunblaðið/Ómar
Sá gamli Herjólfur III er hættur
siglingum og liggur við bryggju.
Sverrir Garðarsson,
tónlistarmaður og fyrr-
verandi formaður Fé-
lags íslenskra hljóm-
listarmanna (FÍH), lést
á Landakotsspítala 7.
desember, 86 ára að
aldri.
Hann fæddist í
Reykjavík 22. febrúar
1935, sonur Garðars
Óskars Péturssonar,
járniðnaðarmanns og
skátaforingja, og Sig-
ríðar Ólafsdóttur skrif-
stofumanns.
Að loknu námi í
Gagnfræðaskóla Austurbæjar var
Sverrir einn vetur við verslunarnám
og tvo í tónlistarskóla, auk nám-
skeiða heima og erlendis. Hann var
skrifstofumaður hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og hjá Álafossi h.f. og
seinna starfsmaður Málarafélags
Reykjavíkur.
Aðeins 16 ára gamall hóf Sverrir
að spila á trommur í danshljóm-
sveitum. Hann lék m.a. með hljóm-
sveit Gunnars Ormslev og hljóm-
sveit Eyþórs Þorlákssonar, auk þess
að stjórna eigin hljómsveitum. Tríó
Sverris spilaði á Hótel Loftleiðum
um margra ára bil. Þá lék hann með
Lúðrasveitinni Svani og var slag-
verksmaður í Sinfón-
íuhljómsveit Íslands
um langt árabil.
Réttindamál hljóm-
listarmanna voru
Sverri hugleikin. Hann
var í stjórn og fram-
kvæmdastjóri FÍH og
formaður 1968-1987.
Eitt af helstu afrekum
hans var að stofna
Tónlistarskóla FÍH.
Sú framsýni átti eftir
að valda byltingu í
uppbyggingu íslensks
tónlistarlífs.
Síðustu tvo áratugi
dvaldi Sverrir á Flórída yfir vetur-
inn. Hann lék þar reglulega með
stórhljómsveit og sinfóníuhljóm-
sveit.
Sverrir tók þátt í starfi Sjálfstæð-
isflokksins og var bæði í flokksráði
og verkalýðsráði. Jafnframt sat
hann í stjórn fulltrúaráðs verkalýðs-
félaganna í Reykjavík og átti sæti í
miðstjórn ASÍ.
Hann kvæntist Þorgerði Guðrúnu
Sigurðardóttur (1938-2019), fulltrúa
hjá VR, árið 1957. Þau skildu. Börn
þeirra eru Garðar og Ásdís.
Útför Sverris verður gerð frá
Fossvogskirkju mánudaginn 20.
desember kl. 15.
Andlát
Sverrir Garðarsson
tónlistarmaður