Morgunblaðið - 17.12.2021, Page 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2021
TIL SÖLU/LEIGU
Völuteigur 17, 270 Mosfellsbæ
Stærð: 2.092,2 m²
Gerð: Iðnaðarhúsnæði
Verð: 430.000.000
Bergsveinn
S. 863 5868
Sigurður J. Helgi Már
S. 897 7086
Magnús
S. 861 0511
Ólafur
S. 824 6703
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is - Sími 534 1020
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
Húsnæðið skiptist í 1.200 m² vinnusal með mikilli lofthæð
með öflugu loftræstikerfi. Innangengt er úr vinnusal í 736
m² vörugeymslu með mikilli lofthæð og tveimur háum
innkeyrsluhurðum. Salerni og starfsmannaaðstaða er
á jarðhæð við hlið aðalinngangs. Skrifstofa er á 2. hæð
sem er skráð 143,1 m² og er nýstandsett að miklu leyti og
skiptist í opið rými, 5 lokaðar skrifstofur, kaffiaðstöðu og
Wc. Parket á gólfum í skrifstofuhluta.
Gott malbikað athafnasvæði er við húsið með góðri
aðkomu s.s. fyrir stór tæki, bíla og gáma.
Laust frá 1. febrúar 2022
Nánari upplýsingar um eignina veitir
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali
og leigumiðlari í s. 897 7086 helgi@jofur.is
Loðnuvertíð ársins lýkur um helgina
þegar jólafrí sjómanna hefst sam-
kvæmt kjarasamningum. Sjómenn á
uppsjávarskipum eiga frí frá og með
20. desember til og með 2. janúar.
Veiðar mega því hefjast aftur 3. jan-
úar. Flotinn var í gær 50-60 mílur
norðaustur af Langanesi og hefur
aflinn undanfarið oft verið 2-500
tonn á dag.
Nú er búið að veiða tæplega 40
þúsund tonn frá því að vertíðin hófst
í síðasta mánuði, samkvæmt yfirliti á
vef Fiskistofu. Hugsanlega vantar í
þá tölu nýjustu löndunarskýrslur.
Ljóst er að verk er að vinna fyrstu
þrjá mánuði næsta árs við að veiða
og vinna loðnuna, en heildarkvóti ís-
lenskra skipa er 662 þúsund tonn. 17
skip hafa landað loðnu í haust og er
Jón Kjartansson SU búinn að landa
4.223 tonnum.
Á heimasíðu Síldarvinnslunnar
kemur fram að undanfarna daga hef-
ur loðnuveiðin gengið misjafnlega.
Skipin eru yfirleitt að toga á litlum
bletti þannig að það er þröng á þingi.
Það virðist vera misjafnt hvernig
skipin hitta á torfurnar og eins hefur
gerð veiðarfæranna án efa einhver
áhrif á árangurinn, segir á heimasíð-
unni.
Getur verið býsna brellin
Haft var eftir Þorkeli Péturssyni,
skipstjóra á Bjarna Ólafssyni, að ein-
ungis væri um dagveiði að ræða.
„Þetta fer að skila einhverju um
klukkan hálftíu til tíu á morgnana en
svo er það búið um hálffjögur eða
fjögur á daginn. Eftir það fæst varla
nokkuð. Loðnan er býsna brellin og
getur verið erfitt við hana að eiga,“
sagði Þorkell.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Vertíð Ásgrímur Halldórsson SF og Jón Kjartansson SU á makrílveiðum.
Loðnuveiðum ársins
lýkur um helgina
- Búið að veiða rúm 40 þúsund tonn
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er nauðsynlegt að fá góða heim-
ild um þetta gos og gott að geta gert
einhverja samantekt um það,“ segir
Jón Rúnar Hilmarsson, ljósmyndari í
Reykjanesbæ.
Jón fékk á dög-
unum 800 þúsund
króna styrk úr
Uppbyggingar-
sjóði Suðurnesja
til að gera heim-
ildarmynd um
eldgosið í Fagra-
dalsfjalli. Hann
hefur fylgst vel
með gosinu frá
því það hófst í
mars og kveðst eiga mikið af flottu
myndefni.
„Ég starfa sem ljósmyndari og hef
farið nokkuð oft þarna upp eftir til að
mynda. Þá hef ég yfirleitt verið með
dróna,“ segir Jón sem hefur meðal
annars starfað fyrir Víkurfréttir og
gefið út ljósmyndabækur.
Jón er ánægður með að hafa feng-
ið eldgos í túnfætinum hjá sér og
kveðst hafa notið þess að mynda gos-
ið. „Við höfum ekki fengið gos þarna
á okkar lífstíð. Ég sé fyrir mér að í
þessari mynd muni ég flétta saman
myndefni frá gosinu og taka síðan
viðtöl við fólk, til að mynda vís-
indamenn, löggæsluaðila og fólk í
Grindavík svo það verði til þokkaleg
heimild um þetta.“
Hann segir aðspurður að ekki liggi
fyrir hvar myndin verði sýnd þegar
hún verður kláruð næsta vor eins og
stefnt er að. „Ég gæti trúað að þessu
verði gerð skil í sjónvarpsþætti Vík-
urfrétta á Hringbraut en það er ekk-
ert frágengið enn þá. Svo myndi ég
halda að menningar- og ferðaþjón-
ustuaðilar á Suðurnesjum gætu haft
áhuga á þessari mynd.“
Rólegt hefur verið yfir gosinu síð-
ustu vikur og sumir vilja meina að
hægt sé að lýsa því formlega yfir að
því sé lokið.
„Já, er það ekki bara? Maður veit
auðvitað aldrei en þetta lítur þannig
út. Ég á reyndar eftir að fara sjálfur
þarna upp eftir og mynda til að fá
yfirsýn yfir það. Ég fer í það ef það
styttir einhvern tímann upp.“
Mikilvægt að fá góða
heimild um eldgosið
- Jón á mikið drónamyndefni og vinnur að heimildarmynd
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sjónarspil Eldgosið í Fagradalsfjalli var afar myndrænt þegar mest lét.
Jón Rúnar
Hilmarsson