Morgunblaðið - 17.12.2021, Síða 29

Morgunblaðið - 17.12.2021, Síða 29
og svo gátum við alltaf talað um börnin. Mig langar til að minnast á einstakt samband sem Atli mág- ur minn átti við mömmu sína alla tíð og eftir að Jónína og Garðar fluttu á Eyri leið ekki sá dagur að hann kæmi ekki eða heyrði í þeim. Eftir að Garðar féll frá heyrði Atli í mömmu sinni tvisvar á dag milli þess sem hann fór í heimsókn til hennar. Þau höfðu fyrir reglu að hann hringdi í hana á kvöldin og hún í hann í hádeginu. Eftir að Jónína fór að missa sjón sat hann með henni og skoðaði myndir sem birtust á samfélags- miðlum eða í stafræna mynd- arammanum hennar. Jónína og Garðar áttu ein- stakt samband sem var ríkt af kærleika og mikilli virðingu. Þau voru bæði afar sjálfstæð og fóru sínar leiðir ef því var að skipta. Þrátt fyrir að hafa starfað sam- an upp á hvern dag í öll þessi ár í Björnsbúð gáfu þau hvort öðru rými sem var svo virðingarvert og fallegt. Með söknuði kveð ég tengda- móður mína, konu sem ég lít upp til og er óendanlega þakklát fyr- ir að hafa kynnst og tengst. Margrét. Engin var eins blíð og góð og Dimmalimmalimm og engin var eins hýr og rjóð og Dimmalim- malimm. Þetta finnst mér passa allra best við mína elsku móð- ursystur og betur en við nokk- urn annan. Ninna mín fékk hvíldina 95 ára, samt er ég svo langt í frá tilbúin að kveðja hana. Með henni fer svo stór hluti af bernskunni minni. Hún var ein af lífsvitnunum mínum. Stoðin og styttan þegar eitthvað bjátaði á hjá okkur mömmu. Ég man eftir henni ófrískri af Jakob þar sem við Björn stóðum á eldhúsgólfinu i Smiðjugötunni og góluðum i kór „feitapumpa, feitapumpa“ og ekki skipti hún frænka mín skapi við þetta fremur en annað. Þegar ég svo var 12 ára byrj- uðu stelpurnar í bekknum að spyrja hvort „Ninna í Björns- búð“ væri ófrísk. Mamma var sannfærð um að það passaði ekki. Hún átti eftir að fá aðra vitneskju seinna sama dag. Atli kom í heiminn og litla frænkan 12 ára fékk að „hjálpa“ til við að passa hann. Alltaf hjálpsöm og alltaf að taka tillit. Ég man heldur ekki nokkru sinni eftir að hún hafi nokkurn tímann byrst sig, þrátt fyrir að þeir frændur mínir væru duglegir að finna upp á ýmsum hlutum, sem foreldrar í dag myndu líklega fá hjartaáfall yfir. Ólíkar systur á svo margan hátt, en samt svo samrýndar og unnu sem einn maður að því að undirbúa Kvíarferðirnar og það sama gilti þegar Jakob slasaðist á fingri. Svo við Björn vorum sett út að leika okkur á meðan þær systurnar bjuggu um fing- urinn og fórst það að sjálfsögðu vel úr hendi, eins og annað sem þær snertu. Ninna var handavinnukenn- ari, það var hún sjálf sem kom sér í það nám, af eigin dugnaði og framsýni. Það var skottast yf- ir til hennar þegar einhver handavinna ekki gekk upp í Sundstrætinu eða þurfti ráð við eitthvað annað. Það var líka hún sem næstum 87 ára sagði dóttur minni að hún hefði vorkennt svo þessum stelp- um á Ísafirði sem fóru að eiga börn bara laust eftir tvítugt. Hún vildi ferðast og sjá heiminn. Barnabörnunum hennar og börnunum mínum kom heldur betur á óvart hversu mikið þær systur höfðu ferðast. Einn og annar staður eða borg í Evrópu var nefnd og þá heyrðist hljóð úr horni frá annarri hvorri þeirra að þarna hefðu þær líka verið. Systur fæddar á stað sem okkur í dag finnst afar afskekktur, Kví- ar í Jökulfjörðum, voru nútíma- legri í hugsun en jafnöldrur þeirra á Ísafirði. Alveg voru þær sammála um að þær væru ekki Ísfirðingar, þær voru Grunnvíkingar. Hún sagði mér af langömmu Kristínu og að Kvíar í raun hefðu ekkert verið afskekktar og tæknin kom- ið fyrst í sveitina í Kvíum. Þau stóðu saman systkinin sex frá Kvíum, voru samrýnd og kenndu okkur börnunum sínum það sem bestu máli skiptir í líf- inu, að það skiptir ekki máli hvaðan þú ert, bara að þú sért almennileg manneskja. Eins og börnin mín sögðu á dögunum: „Þú ert svo heppin mamma, þú átt svo góða fjölskyldu, það eru ekki allir eins heppnir og þú.“ Elsku besta Ninna mín. Takk fyrir allt. Elsku Björn, Jakob, Atli og fjölskyldur. Ykkar arfur er stór. Allt sem mamman ykkar stóð fyrir og var verður aldrei fullþakkað. Drífa. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2021 ✝ Haraldur Sæ- mundsson fæddist á Spít- alastíg 3 í Reykja- vík 25. febrúar 1929. Hann lést á Landspítalanum 5. desember 2021. Foreldrar hans voru Sæmundur Tómasson trésmið- ur, frá Járngerð- arstöðum í Grinda- vík, og Guðný Sigurðardóttir frá Þorvaldsstöðum í Hvít- ársíðu. Þau voru bæði fædd 25. júní 1888. Guðný lést 1973 og Sæmundur 1975. Systkini Haralds eru öll látin, en þau voru Sigríður Guðný, f. 1920, d. 1991, Ásgeir, f. 1923, d. 2006 og Ása, f. 1924, d. 2021. Margrét, f. 1916 og Tómas Grétar, f. 1918 dóu bæði á fyrsta ári. Hálfbróðir, sam- feðra, var Guðjón, f. 1913, d. 1993. Haraldur kvæntist árið 1955 Aðalheiði Jónsdóttur, f. 1927, d. Sigurður, Ragnheiður, Anna Jóna, Sveinn, Jón Þór, Birta, Brynja, Ari, Haraldur, Björn Brynjúlfur, Arnaldur, Arnar Már, Védís Halla og Sigurður Tómas. Barnabarnabörnin eru hátt á annan tug. Haraldur ólst upp á Spít- alastíg 3 og gekk í Miðbæj- arskólann en vegna heilsuleysis móður sinnar átti Haraldur alla tíð skjól hjá fólkinu sínu á Hall- kelsstöðum í Hvítársíðu. Áhugamál Haralds voru fjöl- mörg. Hann spilaði handbolta, bridds og billjard um áratuga- skeið, las sögu og lærði tungu- mál en skákin átti þó hug hans alla tíð. Þá var hann mikill safn- ari og frímerkjaheimurinn tók að lokum yfir og rak Haraldur Frímerkjamiðstöðina í áratugi, með tveimur félögum sínum, fyrst á Týsgötu en lengst af á Skólavörðustíg. Haraldur hafði umsjón með alþjóðaviðskipt- unum enda töluverð umsvif með frímerki og mynt á þeim tíma. Fram að því hafði Haraldur unnið fjölmörg störf til sjós og lands; var á skaki, vörubílstjóri á síldarárunum, keyrði leigubíl, var háloftaathugunarmaður hjá Veðurstofunni og starfaði hjá Brunabótafélaginu. Útförin hefur farið fram. 2017. Foreldrar hennar voru Elín Gísladóttir klæð- skerameistari og Jón Guðnason bif- reiðasmiður. Börn hennar af fyrra hjónabandi voru Elín, f. 1946, d. 2021, og Jón Hauk- ur, f. 1948, d. 2009. Eftirlifandi makar þeirra eru Hrafn Sveinbjörnsson og Sigurlína Kristín Scheving. Haraldur og Aðalheiður hófu búskap á Spítalastígnum en bjuggu síðar á Háaleitisbraut, Fljótaseli og Flókagötu. Síðasta áratuginn var heimili þeirra í Garðabæ. Dætur Haralds og Að- alheiðar eru Helga Aðalheiður, f. 1956, Hrefna, f. 1958, og Halla, f. 1967. Eiginmenn þeirra eru Hróðmar I. Sigurbjörnsson, Björn B. Björnsson og Víðir Sigurðsson. Barnabörnin eru, í aldursröð: Við nokkuð óvænt fráfall pabba stendur fjölskyldan á tímamótum. Mamma lést fyrir nokkrum árum og þykist ég vita að allir í þessum sporum skynji að ekkert stöðvar lífsins þunga nið, en að sama skapi er allt gjör- breytt. Pabbi var yngstur af systkin- um sínum og iðulega kallaður Haddi litli, sama hversu hávaxinn hann varð. Aðstæður á heimilinu lituðust af veikindum ömmu minnar, sem var samfellt á sjúkrastofnunum frá því litli strákurinn hennar var einungis fjögurra ára gamall. Þetta tvístr- aði fjölskyldunni að sumu leyti en þjappaði henni einnig saman. Það vildi til að æskuheimilið á Spít- alastíg 3 var samkomustaður frændgarðsins og oft glatt á hjalla. Ættstofnarnir voru traustir, föðurættin í Grindavík var pabba bakhjarl og ekki síður fólkið hans í Hvítársíðunni. Þar dvaldi hann löngum hjá Halldóru móðursyst- ur sinni og afkomendum hennar sem urðu ævivinir pabba. Á Hall- kelsstöðum hélt nútíminn seint innreið sína, rímur voru kyrjaðar og fólk kunni Íslendingasögurnar utanbókar. Vísum var kastað fram oft á dag. Allt þetta varð- veitti pabbi í huga sér. Hann skrifaði ýmislegt niður hin síðari ár og gaf sumt út á bók. Vissulega litaði óvenjulegur uppvöxtur lífið. Pabbi var hins vegar ekki þeirrar gerðar að velta vöngum yfir fjarveru móð- urfaðms og glötuðum tækifærum vegna heilsubrests sem hann glímdi við á unglingsaldri. Hann spilaði vel úr því sem hann hafði á hendi, gerði frímerkin, stóra áhugamálið sitt, að lifibrauði og naut lífsins. Hirðusemi og snyrtimennska voru einkennismerki pabba og þótti okkur hann oft heldur forn- eskjulegur. Honum fannst mikil- vægt að ganga vel um, spara raf- magnið og setja hluti aftur á sinn stað. Botnaði þess vegna ekkert í okkur systkinunum þegar við týndum húslyklunum eða kröss- uðum á símaskrána. Hvað þá að tjaldinu og veiðistönginni væri ekki skutlað upp á háaloft kortéri eftir að rennt var niður Ártúns- brekkuna. Það bjargaði miklu að mamma hló bara og hafði ekki minnstu áhyggjur af svona smá- munum. Lífsgleði hennar var gæfa hans. Við krakkarnir vorum oft gáttaðir á óbrigðulu minni pabba og allri þekkingunni sem hann bjó yfir. Það var bara ekki hægt að reka manninn á gat. Óbilandi áhugi á öllu undir sól- inni skóp víðsýnan og friðelsk- andi mann sem við vorum öll stolt af. Foreldrar mínir voru tryggir förunautar í gegnum lífið, fjör og fróðleikur var veganestið. Fyrir það þakka ég við leiðarlok. Helga. Ég hitti Harald Sæmundsson fyrst haustið 1986 þegar ég var að gera hosur mínar grænar fyrir Hrefnu dóttur hans. Vonbiðillinn var eðlilega dulítið óöruggur um sína stöðu en sá ótti reyndist ástæðulaus því Haddi, eins og hann var jafnan nefndur, og Heiða kona hans tóku mér af mikilli hlýju og elskusemi. Allar götur síðan reyndust þau mér eins og bestu foreldrar svo aldrei bar skugga á. Sambandið við þau hefur verið mér mikils virði alla tíð. Það er því með miklum trega sem ég kveð Hadda nú, aðeins fjórum árum eftir fráfall Heiðu. Haddi var maður að mínu skapi. Hann nálgaðist öll mál út frá rökhyggju sem hann var gæddur í ríkum mæli og gaf minna fyrir hismið en kjarnann. Það var því bæði gagn og gaman að ræða við hann mál líðandi stunda enda fylgdist hann vel með öllu sem á gekk. Þegar við bættist stálminni og mikil þekk- ing á fjölmörgum sviðum eins og landafræði og sögu varð umræð- an innihaldsrík og stefndi beint að kjarna hvers máls. Þau hjónin Haddi og Heiða reyndust okkur Hrefnu eins vel og hugsast getur. Í óteljandi skipti pössuðu þau þegar við hoppuðum til Parísar eða vöktu heima fram á nætur þegar við vorum úti á lífinu. Börnunum okkar voru þau einstaklega góð og á þessum árstíma rifjast upp laufabrauðsskurðurinn og jóla- boðin sem voru fastir liðir lífsins. Börnin lögðu enda mikla ást á afa og ömmu og áttu með þeim dýr- mætar stundir sem nú er gott að minnast. Þegar við dvöldum á Ítalíu árið 1994 komu Haddi og Heiða í heimsókn um páskana okkur til mikillar ánægju. Þau höfðu notað ferðina og farið um alla Ítalíu áður en þau komu til okkar enda var Haddi mjög áhugasamur um ferðalög, menn- ingu og framandi mat. Þau hjónin voru meðlimir í ferðaklúbbnum Eddu og fóru í reisur um Suður- Ameríku og Austurlönd fjær. Áhugi Hadda á ferðalögum tengdist beint fróðleiksfýsn hans. Honum fannst fátt skemmtilegra en að sjá, skoða og uppgötva eitt- hvað nýtt. Árið 2019 fórum við tveir saman í tveggja mánaða ferðalag til sjö landa og vorum lengst af í Víetnam. Í ferðinni héldum við upp á níræðisafmæli hans með því að skoða hið stór- brotna hof Ankor Wat í Kambó- díu, fljúga í loftbelg og fara út að borða á fjörugasta veitingastaðn- um í bænum. Haddi naut alls þessa út í æsar, glaður og kátur. Hvort sem við komum til Ind- lands, Tyrklands eða Dúbaí gat hann sagt mér heilmikið um land og þjóð, sögu og staðhætti. Fyrir utan að vera þekkingar- brunnur var Haddi glaðsinna og vandræðalaus maður, ekki til í honum vesen af neinu tagi. Hann tók hverjum hlut eins og hann var, greindi og gerði – og málið afgreitt. Við sáum fjölmargt í þessari ferð sem við höfðum aldr- ei séð áður og það var sérstak- lega gaman að upplifa það allt með Hadda. Hann var svo já- kvæður, fannst allt spennandi sem stungið var upp á og naut þess alls með bros á vör. Betri ferðafélaga er ekki hægt að hugsa sér. En nú er ferðalagi lífsins því miður lokið og komin kveðju- stund. Með Hadda er genginn góður drengur sem verður sárt saknað og lengi minnst. Björn B. Björnsson. Haraldur Sæmundsson var hógvær heiðursmaður með báða fætur á jörðinni og hjartað á rétt- um stað. Hann var ljóðelskur, hagmæltur og alvörugefinn, en stutt var í spaugið. Er hann ní- ræður sneri aftur úr langri heimsreisu sem hann naut til hins ýtrasta sagði hann með blik í auga og bros á vör: „Hápunktur hverrar ferðar er heimkoman.“ Ljóðið Lækurinn eftir Gísla Ólafsson frá Eiríksstöðum var Hadda kært, en það heyrði hann fyrst tíu ára er hann dvaldi hjá sínum góða vini og læriföður Er- lingi Jóhannssyni á Hallkelsstöð- um í Hvítársíðu. Um þann tíma sagði hann: „Ég lærði meira þennan eina vetur hjá Erlingi en öll árin í barnaskóla.“ Ég er að horfa hugfanginn, í hlýja sumarblænum, yfir litla lækinn minn sem líður fram hjá bænum. Ó hve marga æskustund áður hér ég dvaldi, saklaust barn með létta lund, og leggina mína taldi. Æskan hverfur, yndi dvín, allt er líkt og draumur. Áfram líður ævin mín eins og lækjarstraumur. Meðan æðum yljar blóð og andinn má sig hræra, skal ég syngja lítið ljóð læknum silfurtæra. Þegar ég er uppgefinn og eytt hef kröftum mínum langar mig í síðsta sinn að sofna á bökkum þínum. Þakklæti og söknuður eru mér efst í huga er ég kveð minn kæra vin. Innilegar samúðarkveðjur, elsku Hrefna og Bjössi, Helga og Hróðmar, Halla og Víðir, barna- börn og aðrir aðstandendur. Anna Björnsdóttir. Gáfnavísitalan í Garðabænum féll í nótt. Þá Manchester United missti traustan mann af velli. Vinir skemmtilegan félaga, fjölfróðan og frásagnagóðan. Skákin kvaddi kóng, billinn ás, lífsleik lokið á flottu skori. Séntilmaður sagði bless, sómadrengs saknað verður. Það slokknaði á öllum perunum í lengstu seríunni. Sögur sundruðust og minningar héldu til stjarnanna. Börn misstu blíðan afa og systur góðan pabba. Haddi er allur. Sverrir Sigurjón Björnsson, Áslaug Harðardóttir. Haraldur Sæmundsson Elsku amma, ég er svo óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Takk fyrir alla væntumþykjuna, sönginn, pönnukökurnar og faðmlögin í gegnum árin. Ein af mínum elstu minningum um þig er að ég sit í fanginu á þér á Reynó, með höf- uðið þétt upp við barminn og þú ert að rugga mér, sönglandi. Ég hef örugglega ósjaldan setið svona í fanginu þínu í gegnum ár- in, alltaf örugg og elskuð. Síðast þegar þú hélst svona utan um mig var fyrir ekki svo löngu, þú varst á Landakoti og ég var eitthvað þreytt eftir danstakta næturinnar svo ég skellti mér upp í rúmið til þín og við lágum saman, þú hald- andi utan um mig, mér leið eins og litlu ömmustelpunni þinni aftur, örugg og elskuð. Takk fyrir stuðn- inginn í gegnum allt sem ég hef tekið mér fyrir hendur, „já … nafna mín!“ fylgdi iðulega þegar ég var að segja þér frá einhverju sem ég var að gera. Takk fyrir spilakvöldin á Reynó, takk fyrir að passa að afi svindlaði ekki, þótt Ingunn K. Kristensen ✝ Ingunn K. Kristensen fæddist 22. sept- ember 1924. Hún lést 1. desember 2021. Útför Ingunnar fór fram 14. desem- ber 2021. það hafi nú örugg- lega alltaf verið mér í hag. Takk fyrir að leyfa mér alltaf að gista þegar ég bað um það, takk fyrir að kynna mig fyrir þjóðsögum og draugasögum, takk fyrir að leyfa mér að skríða upp í. Takk fyrir allar góðu mál- tíðirnar og veislurn- ar og takk fyrir að allir í fjölskyld- unni, ég meðtalin, myndu aldrei bjóða til veislu nema með drekk- hlaðið borð af mat. Takk fyrir öll samtölin og trúnóin. Takk fyrir vináttuna. Takk fyrir styrkinn þinn og þrjósku, takk fyrir hlýjuna þína og ást. Takk fyrir mig amma, takk fyrir að vera amma mín. Ingunn S. Unnsteinsd. Kristensen. Elsku amma mín. Mikið er sárt að kveðja þig. Þú hefur verið ein af mínum sterk- ustu stoðum í gegnum tíðina og ég finn að án þín á ég erfitt með að finna jafnvægi. Ég á eftir að sakna stundarinnar við eldhúsborðið heima hjá þér þar sem við sátum og gátum spjallað um allt á milli himins og jarðar, þú varst drottn- ingin í lífi mínu. Ég elska þig. Þitt barnabarn og besta vinkona, Guðrún Lilja Kristensen. Elsku besta amma Inga, þú varst algjör hetja og lést ekkert stoppa þig. þú fékkst mann alltaf til að líta á björtu hliðarnar. Bestu minningar mínar með þér eru þegar ég var veikur heima frá grunnskóla og fór til þín í pössun. það var alltaf ristað brauð í hádeg- ismat og við bökuðum oftast eitt- hvað saman eftir það. Á meðan ég borðaði hugsaðir þú um næstu gátu sem þú gast lagt fyrir mig og brostir síðan og hlóst hvort sem ég náði henni eða ekki. þú varst al- veg klárlega ástæðan fyrir því að ég get leyst öll mín vandamál í dag. Enda kenndir þú mér að hugsa út fyrir kassann. Elsku amma mín, takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig öll þessi ár, þín verður mjög sárt saknað. Þú munt alltaf eiga stóran hlut af hjarta mínu og allt sem ég mun gera í framtíðinni verður þér til heiðurs. Elska þig amma. Kristinn Örn Kristensen. Elsku amma Inga. Ég mun alltaf muna eftir snjó- dögunum þegar ég var lítill og eft- ir útileik að koma inn til þín í heitt súkkulaði og grjónagraut. Oftast voru líka til nokkrar sortir af smá- kökum sem þú hafðir bakað. Það er þér að þakka að ég fann mat- arástina og alltaf gat maður leitað til þín með eldhúsráð og alltaf hafðir þú bestu ráðin til að gefa manni eftir áralanga reynslu í eld- húsi. Mun sakna þess að sitja með þér og skipuleggja matarboðin og kaffiboðin sem þú varst þekkt fyr- ir. Sakna þín mikið. Þitt barna- barn Arnar Ingi Kristensen.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.