Morgunblaðið - 17.12.2021, Page 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2021
50 ÁRA Harpa ólst upp á Kársnesi í Kópavogi
en býr í Lindahverfinu. Hún er leikskólakennari
að mennt og er aðstoðarleikskólastjóri á leikskól-
anum Lundaból í Garðabæ. „Áhugamál mín eru
samvera með fjölskyldu og vinum, útivist, ferða-
lög og sund. Ég á hjólhýsi í Danmörku, við Koll-
und á Suður-Jótlandi, sem ég fer alltaf í í fríum.“
FJÖLSKYLDA Harpa er í sambúð með Haraldi
Þráinssyni, f. 1964. Hann er rafmagnstæknifræð-
ingur að mennt en starfar sem rútubílstjóri og er
með eigið fyrirtæki. Dóttir þeirra er Unnur
Helga Haraldsdóttir, f. 2007. Foreldrar Hörpu
eru Kristjana Sigurðardóttir, f. 1943, þroska-
þjálfi, búsett í Kópavogi, og Tómas Björn Þór-
hallsson, f. 1938, d. 2008, pípulagningameistari og
var húsvörður í Sunnuhlíð á seinni árum.
Harpa Tómasdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þótt þú hafir lagt þig allan fram um
að koma máli þínu til skila, er einhver sem
vill ekki hlusta. Erfiðleikarnir verða brátt af-
staðnir.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það hefur hver sína skoðun og þér er
óhætt að treysta fyrst og fremst á eigið
innsæi. Hafðu þetta í huga þegar þú velur
þér verkefni.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Í dag er hætt við togstreitu við
fólk með völd. Fólk tekur samt mark á þér
og því geta hugmyndir þínar komið öðrum
að gagni í vinnunni.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Mundu að hver er sinnar gæfu
smiður og þú getur ekki sakast við neinn
nema sjálfan þig ef málin eru komin í
ógöngur. Treystu dómgreind þinni.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Hugulsemi er það sem færir öðrum
hamingju og gleður þig á sama tíma. Taktu
stjórnina í þínar hendur í stað þess að láta
tilviljanirnar ráða ferðinni.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þröngsýnir einstaklingar hafa eyði-
legt fyrir þér frammi fyrir öðrum. Haltu fast
við þitt en láttu aðra um að leysa sínar deil-
ur upp á eigin spýtur.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er ástæðulaust að fyllast sektar-
kennd út af þeim hlutum sem ekki er í þínu
valdi að breyta. Reyndu að ganga frá laus-
um endum þar sem þú getur.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Ef þú færð tækifæri til þess að
hafa áhrif á eða vingast við erfiða mann-
eskju áttu að grípa tækifærið og hafa hrað-
ann á.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Gættu þess að láta ummæli
annarra ekki hafa of mikil áhrif á þig. Temdu
þér virðingu fyrir sjónarmiðum annarra.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Löngun til að kíkja yfir sjóndeild-
arhringinn og uppgötva eitthvað nýtt vakn-
ar hjá þér í dag. Leggðu áherslu á að fara í
stutt ferðalag til að dreifa huganum.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú ættir að hafa það í huga í dag
að þótt áhyggjur geti haldið fyrir okkur vöku
þá skila þær yfirleitt litlum árangri.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú átt auðvelt með að laða fram það
besta í öðrum sem og að miðla málum þeg-
ar menn eru ekki á eitt sáttir. Sýndu þol-
inmæði og kurteisi í dag.
félagsskap Dugnaði. Svo er ég
reyndar eitthvað að reyna fyrir mér
í golfinu, sem mér finnst alveg
hrikalega skemmtilegt og langar að
verða betri á þeim vettvangi. Svo er
kallinn eitthvað að reyna að koma
veiðidellu inn hjá mér, prufaði það í
sumar og fannst það virkilega gam-
an og er til í að gera meira af því.“
börnin á fullu í handbolta og fótbolta
og fer frítíminn ansi oft í að fylgja
þeim á handbolta- og fótboltamót
um allt land.
Í dag fer svo sem ekki mikið fyrir
íþróttaafrekum hjá mér þó ég reyni
nú að hreyfa mig reglulega með
göngum um fallegu eyjuna okkar
eða í „metabolic“ hjá þeim frábæra
A
nna Rós Hallgrímsdóttir
er fædd 17. desember
1981 í Vestmanna-
eyjum og ólst þar upp.
Anna Rós var alla
sína grunnskólagöngu í Barnaskóla
Vestmannaeyja og lauk svo stúd-
entsprófi frá Framhaldsskólanum í
Vestmannaeyjum. „Haustið 2000
flutti ég til Reykjavíkur til að stunda
háskólanám,“ en hún tók eitt ár í
upplýsingatæknifræði við Háskól-
ann í Reykjavík, áður Tækniskól-
ann, og lauk svo grunnskóla-
kennaragráðu við Kennaraháskóla
Íslands árið 2004. Hún bætti svo við
sig diplóma í náms- og starfsráðgjöf.
Með háskólanámi vann Anna Rós
sem afleysingakennari bæði í Selja-
skóla og Árbæjarskóla. Hún kenndi
sem stundakennari við Árbæjar-
skóla skólaárið 2004-2005 og starfaði
svo sem náms- og starfsráðgjafi við
Árbæjarskóla skólaárið 2006-2007.
„Árið 2007 fluttum við aftur heim
til Eyja, þegar ég var ólétt að barni
númer 2.“ Hún hóf að kenna við
Grunnskóla Vestmannaeyja haustið
2008 og var umsjónarkennari á
unglingastigi. Hún tók við stöðu
deildarstjóra á unglingastigi árið
2010 og starfaði við það þar til hún
tók við stöðu skólastjóra haustið
2018.
„Eftir nám í náms- og starfs-
ráðgjöf jókst áhugi minn á starfs-
ráðgjöf og undirbúningi unglinga
fyrir nám og störf og hef ég staðið
tvisvar fyrir stórum starfakynning-
um í Vestmannaeyjum þar sem öll
störf í Eyjum voru kynnt grunn- og
framhaldsskólanemum. Áhugamálin
tengjast mikið vinnunni, lestur,
námskeið og fyrirlestrar tengt
skólamálum.“
Áhugamál Önnu Rósar hafa ann-
ars verið mikið tengd íþróttum
gegnum árin. Hún æfði handbolta
og fótbolta með ÍBV í mörg ár, upp
alla yngri flokka og spilaði í nokkur
ár með meistaraflokki ÍBV í hand-
bolta, en hún varð Íslandsmeistari
með þeim árin 2000 og 2003. „Mað-
urinn minn spilaði fótbolta með ÍBV
líka í mörg ár og áður en börnin
fæddust var maður stuðningsmaður
nr. 1 hjá honum. Nú eru tvö yngstu
Anna Rós á stóra og samrýnda
fjölskyldu og búa öll systkini hennar
t.d. í Vestmannaeyjum, sem er ekki
sjálfgefið að hennar sögn. „Auk þess
eru langflestir vinir okkar líka bú-
settir í Eyjum og finnst mér
skemmtilegast að eyða tíma með
fjölskyldunni og vinum. Hittast og
borða saman. Ég hef gaman af því
að bjóða fólki í kaffi eða mat og
njóta með fólkinu mínu. Ferðalög
eru líka ofarlega á listanum, hef
gaman af því að ferðast innan- og ut-
anlands. Við höfum verið dugleg að
ferðast með krakkana um landið og
förum örugglega hringinn á hverju
ári. Við förum til Spánar nánast á
hverju ári, en við höfum aðsetur þar
og það er alltaf gott að komast í sól-
ina. Þegar Covid verður búið verður
maður að bæta úr ferðaþörfinni og
fara að heimsækja fleiri staði.
Ég er mikil jólamanneskja, sem
fylgir því kannski að eiga afmæli
viku fyrir jól. Þessi tími, aðventan
og jólaundirbúningur, er minn uppá-
haldstími og ég þarf í raun að halda í
mér að byrja ekki að hlusta á jólalög
Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Vestmannaeyja – 40 ára
Í landsliðsbúningi Anna Rós og fjölskylda á Spáni ásamt fjölskyldu systur hennar á leið að horfa á HM í knattspyrnu.
Mikil afmælis- og jólamanneskja
Með vinahópi Þau skelltu sér í Zipline sl. vor. Hjónin Fyrsta veiðiferðin.
Til hamingju með daginn
Hvammstangi Lena
Penszynka fæddist 1. jan-
úar 2021 í Reykjavík. Hún
vó 3.770 g og var 52 cm
löng. Foreldrar hennar
eru Teresa Gabríela
Michnowicz og Krzysztof
Penszynski.
Nýr borgari