Morgunblaðið - 17.12.2021, Blaðsíða 34
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2021
Meistaradeild kvenna
A-RIÐILL:
Juventus – Servette ................................. 4:0
Wolfsburg – Chelsea................................ 4:0
Lokastaðan:
Wolfsburg 6 3 2 1 17:7 11
Juventus 6 3 2 1 12:4 11
Chelsea 6 3 2 1 13:8 11
Servette 6 0 0 6 0:23 0
B-RIÐILL:
París SG – Breiðablik............................... 6:0
Real Madrid – Kharkiv ............................ 3:0
Lokastaðan:
París SG 6 6 0 0 25:0 18
Real Madrid 6 4 0 2 12:6 12
Kharkiv 6 1 1 4 2:15 4
Breiðablik 6 0 1 5 0:18 1
England
Chelsea – Everton.................................... 1:1
Liverpool – Newcastle ............................. 3:1
Leicester – Tottenham ..................... frestað
Staðan:
Manch. City 17 13 2 2 40:9 41
Liverpool 17 12 4 1 48:13 40
Chelsea 17 11 4 2 39:12 37
Arsenal 17 9 2 6 23:22 29
West Ham 17 8 4 5 28:21 28
Manch. Utd 16 8 3 5 26:24 27
Tottenham 14 8 1 5 16:17 25
Wolves 17 7 3 7 13:14 24
Leicester 16 6 4 6 27:27 22
Aston Villa 17 7 1 9 23:25 22
Crystal Palace 17 4 8 5 24:24 20
Brentford 16 5 5 6 21:22 20
Brighton 16 4 8 4 14:17 20
Everton 17 5 4 8 21:29 19
Southampton 17 3 8 6 16:26 17
Leeds 17 3 7 7 17:32 16
Watford 16 4 1 11 21:31 13
Burnley 15 1 8 6 14:21 11
Newcastle 17 1 7 9 18:37 10
Norwich City 17 2 4 11 8:34 10
Ítalía
Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit:
Spezia – Lecce.......................................... 0:2
- Þórir Jóhann Helgason lék í 73 mínútur
með Lecce en Brynjar Ingi Bjarnason var á
varamannabekknum.
Rúmenía
Farul Constanta – CFR Cluj................... 0:2
- Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í
hópnum hjá CFR.
Spánn
Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit:
Albacete – Cádiz ...................................... 0:1
- Diego Jóhannesson lék síðari hálfleikinn
með Albacete.
Belgía
OH Leuven – Club Brugge ..................... 1:4
- Rúnar Alex Rúnarsson hjá Leuven fór
meiddur af velli undir lok fyrri hálfleiks.
>;(//24)3;(
Subway-deild karla
Breiðablik – Valur ................................ 89:87
Tindastóll – Þór Þ............................... 66:109
Njarðvík – ÍR...................................... 109:81
KR – Þór Ak.......................................... 83:74
Staðan:
Þór Þ. 10 8 2 972:869 16
Keflavík 9 8 1 807:738 16
Tindastóll 10 6 4 852:868 12
Grindavík 9 6 3 744:718 12
Njarðvík 9 6 3 860:759 12
Valur 10 6 4 800:792 12
KR 10 5 5 907:920 10
Breiðablik 10 4 6 1049:1031 8
Stjarnan 8 3 5 708:701 6
ÍR 10 3 7 869:931 6
Vestri 9 2 7 731:800 4
Þór Ak. 10 0 10 738:910 0
NBA-deildin
Cleveland – Houston .......................... 124:89
Orlando – Atlanta ............................... 99:111
Philadelphia – Miami ......................... 96:101
Dallas – LA Lakers .................. (frl) 104:107
Milwaukee – Indiana.......................... 114:99
Oklahoma City – New Orleans........ 110:113
San Antonio – Charlotte .................. 115:131
Denver – Minnesota ......................... 107:124
Portland – Memphis......................... 103:113
Sacramento – Washington............... 119:105
Utah – LA Clippers.......................... 124:103
>73G,&:=/D
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Subway-deildin:
Ísafjörður: Vestri – Stjarnan .............. 18.15
HS Orkuhöll: Grindavík – Keflavík .... 20.15
1. deild karla:
Akranes: ÍA – Álftanes ........................ 19.15
MVA-höllin: Höttur – Hamar.............. 19.15
Ice Lagoon-höllin: Sindri – Selfoss..... 19.15
Dalhús: Fjölnir – Hrunamenn............. 19.15
1. deild kvenna:
MG-höllin: Stjarnan – Hamar/Þór...... 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Eyjar: ÍBV – Stjarnan .............................. 18
Víkin: Víkingur – KA................................. 18
Kórinn: HK – Valur.............................. 19.30
Ásvellir: Haukar – Afturelding ........... 19.30
Hertz-höllin: Grótta – FH ........................ 20
1. deild kvenna:
Hertz-höllin: Grótta – Víkingur ............... 18
Framhús: Fram U – ÍR ....................... 19.15
Í KVÖLD!
Þórsara en Watson skoraði 25 stig í
leiknum og gaf tólf stoðsendingar.
Staðan í hálfleik var 60:40, Þórs-
urum í vil, og eftir að Þórsarar skor-
uðu 29 stig gegn 14 stigum Tindastóls
í þriðja leikhluta var leikurinn svo
gott sem búinn.
Luciano Massarelli skoraði 17 stig
fyrir Þór en Javon Bass var stiga-
hæstur í liði Tindastóls með 16 stig.
Þórsarar eru með 16 stig í efsta
sætinu en Tindastóll er í fjórða sæt-
inu með 12 stig.
_ Fotios Lampropoulos var stiga-
hæstur Njarðvíkinga með 24 stig og
ellefu fráköst þegar liðið vann örugg-
an 109:81-sigur gegn ÍR þegar liðin
mættust í Ljónagryfjunni í Njarðvík.
Jafnræði var með liðunum í fyrsta
leikhluta en Njarðvíkingar skoruðu
31 stig gegn 17 stigum ÍR í öðrum
leikhluta og ÍR tókst aldrei að snúa
leiknum sér í vil eftir það.
Haukur Helgi Pálsson skoraði 18
stig og tók sjö fráköst fyrir Njarðvík
en Jordan Semple og Triston Simp-
son voru stigahæstir ÍR-inga með 17
stig hvor. Njarðvík er með 12 stig í
fimmta sætinu en ÍR er í því tíunda
með 6 stig.
_ Shawn Glover fór mikinn fyrir
KR þegar liðið vann 83:74-sigur gegn
Þór frá Akureyri á Meistaravöllum í
Vesturbæ en Glover skoraði 28 stig
og tók tíu fráköst í leiknum. Jafnræði
var með liðunum framan af en staðan
var 67:67 þegar fimm mínútur voru til
leiksloka. Þá tóku KR-ingar öll völd á
vellinum og innbyrtu sannfærandi
sigur í leikslok. Adama Darbo skoraði
22 stig fyrir KR og tók sjö fráköst en
Atle Ndiaye var stigahæstur Þórsara
með 20 stig og fimm fráköst.
KR er með 10 stig í sjöunda sæti
deildarinnar en Þórsarar eru án stiga
í neðsta sætinu.
Dramatík í
Smáranum
- Ótrúleg úrslit á Sauðárkróki
Morgunblaðið/Unnur Karen
Sókn Sigurður Pétursson sækir að Callum Lawson í Smáranum í gær.
KÖRFUBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Everage Richardson reyndist hetja
Breiðabliks þegar liðið vann drama-
tískan sigur gegn Val í úrvalsdeild
karla í körfuknattleik, Subway-
deildinni, í Smáranum í Kópavogi í tí-
undu umferð deildarinnar í gær.
Leiknum lauk með 89:87-sigri
Breiðabliks en Valsmenn leiddu 87:86
þegar mínúta var til leiksloka. Rich-
ardsson setti niður þriggja stiga
körfu þegar átján sekúndur voru eftir
af leiknum og Valsmönnum tókst
ekki að jafna metin.
Samuel Prescott var stigahæstur í
liði Blika með 21 stig og Hilmar Pét-
ursson skorað 18 stig og tók sex frá-
köst. Callum Lawson skoraði 29 stig
fyrir Val sem er með 12 stig í sjötta
sæti deildarinnar en Breiðablik er
með 8 stig í því áttunda.
_ Þá átti Glynn Watson stórleik
fyrir Þór frá Þorlákshöfn þegar liðið
vann óvæntan stórsigur gegn Tinda-
stól í Síkinu á Sauðárkróki.
Leiknum lauk með 109:66-sigri
Kristian Nökkvi Hlynsson, hinn 17
ára gamli leikmaður íslenska 21 árs
landsliðsins í knattspyrnu, fékk
óskabyrjun með aðalliði Ajax í Hol-
landi í fyrrakvöld. Hann kom þá inn
á sem varamaður með stórliðinu í
bikarleik gegn Barandrecht, á 82.
mínútu, og innsiglaði sigur Ajax
með marki úr vítaspyrnu sjö mín-
útum síðar. Kristian Nökkvi hefur
leikið með varaliði Ajax í hollensku
B-deildinni í vetur. Hann lék enn
fremur fjóra leiki með 21-árs lands-
liði Íslands í haust og skoraði eitt
mark.
Skoraði í fyrsta
leik með Ajax
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
17 Kristian Nökkvi Hlynsson fékk
að spreyta sig með aðalliði Ajax.
Eyjamaðurinn Elliði Snær Við-
arsson hefur framlengt samning
sinn við þýska handknattleiks-
félagið Gummersbach um eitt ár og
er nú samningsbundinn því til sum-
arsins 2023. Elliði Snær, sem er 23
ára gamall, gekk til liðs við Gum-
mersbach frá uppeldisfélaginu ÍBV
í ágúst árið 2020 og er á sínu öðru
tímabili með liðinu. Gummersbach,
undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðs-
sonar, er á toppi þýsku B-deild-
arinnar en Elliði var fyrsti leikmað-
urinn sem Guðjón náði í eftir að
hann tók við liðinu.
Elliði áfram hjá
Gummersbach
AFP
Landslið Elliði Snær Viðarsson
skorar gegn Alsír á HM 2021.
Selfyssingar stigu stórt skref í átt-
ina að efstu liðum úrvalsdeildar
karla í handknattleik í gærkvöld.
Þeir tóku þá á móti Frömurum og
lögðu þá að velli eftir æsispennandi
baráttu, 28:27.
Selfoss er áfram í sjötta sæti en
er nú aðeins þremur stigum frá
efstu liðum deildarinnar. Fram sit-
ur áfram í níunda sætinu.
Það voru enn tvær mínútur eftir
þegar Tryggvi Þórisson kom Sel-
fossi í 28:27. Eftir það gekk á ýmsu.
Magnús Gunnar Erlendsson, hinn
42 ára gamli markvörður Fram,
varði vítakast þegar 14 sekúndur
voru eftir. Framarar fengu tæki-
færi til að jafna en nýttu ekki auka-
kast eftir að leiktímanum lauk.
Guðmundur Hólmar Helgason
skoraði 9 mörk fyrir Selfoss, Einar
Sverrisson og Tryggvi Þórisson
fimm hvor. Þorsteinn Gauti Hjálm-
arsson skoraði sjö mörk fyrir Fram
og Breki Dagsson sex. Vilius Rasi-
mas varði 13 skot í marki Selfoss og
Magnús Gunnar tíu skot í marki
Framara í seinni hálfleiknum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Níu Guðmundur Hólmar Helgason var markahæstur Selfyssinga.
Selfoss styrkti stöðuna
með naumum sigri
Liverpool þurfti að hafa mikið fyrir
því að leggja botnlið Newcastle að
velli á Anfield í gærkvöld í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu en
lokatölur urðu þó 3:1 eftir glæsilegt
mark sem Trent Alexander-Arnold
skoraði undir lokin, með þrumu-
fleyg rétt utan vítateigs.
Liverpool var án Virgil van Dijk,
Fabinho og Curtis Jones sem allir
greindust með kórónuveiruna fyrir
leikinn. Jonjo Shelvey, fyrrverandi
leikmaður Liverpool kom New-
castle yfir strax á 7. mínútu.
Liverpool var þó komið yfir á 25.
mínútu eftir mörk frá Diogo Jota
og Mohamed Salah en sigurinn var
ekki í höfn undir lokin.
Liverpool er því á ný stigi á eftir
Manchester City að sautján umferð-
um loknum.
Chelsea tapaði dýrmætum stig-
um á heimavelli þegar Everton
mætti á Stamford Bridge og náði
þar jafntefli, 1:1. Chelsea dróst þar
með aftur úr toppliðunum tveimur
og er nú fjórum stigum á eftir City.
Mason Mount virtist vera búinn
að koma Chelsea á beinu brautina
þegar hann skoraði á 70. mínútu en
aðeins fjórum mínútum síðar jafn-
aði varnarmaðurinn Jarrad Brant-
hwaite með sínu fyrsta marki fyrir
Everton.
Kórónuveiran setur mark sitt á
enska fótboltann og ljóst varð í
gærkvöld að fáir leikir myndu fara
fram um komandi helgi. Þá hafði
þegar verið frestað fimm af tíu
leikjum úrvalsdeildarinnar og
margir hafa kallað eftir því að öll-
um leikjum um jólin verði frestað
til að hægt verði að ná böndum á út-
breiðslu faraldursins. vs@mbl.is
Trent tryggði sigur
með glæsimarki
AFP
Magnað Trent Alexander-Arnold
fagnað eftir glæsimarkið.