Morgunblaðið - 17.12.2021, Page 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 2021
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þessi bók kallaði á mikið grúsk og
að hugsað væri í þremur víddum,
það er texta, myndum og hljóðum,“
segir Anna Margrét Marinósdóttir,
einn höfunda bókarinnar Fagurt
galaði fuglinn sá! sem nýverið var
valin besta íslenska barnabókin að
mati starfsfólks bókaverslana. Bók-
ina skrifaði Anna Margrét í sam-
vinnu við Helga Jónsson, en sam-
starf þeirra á sér langa sögu.
Í bókinni er fjallað um 44 fugla
sem búa hérlendis jafnt í máli og
myndum, en Jón Baldur Hlíðberg
teiknaðir myndirnar. Til að kynnast
fuglunum enn betur er hægt að
hlusta á upptökur af öllum fuglunum
þar sem heyra má þá garga, væla,
syngja og kvaka.
Leituðum víða fanga
„Við höfum í nokkur ár gefið út
bækur með tónlist Jóns Ólafssonar
og einnig bækur með dýrahljóðum.
Okkur fannst því komið að fugl-
unum,“ segir Anna Margrét sem á
og rekur Sögur útgáfu ásamt eigin-
manni sínum, Tómasi Hermanns-
syni. „Helgi byrjaði að skrifa text-
ana, senda á mig og svo hjálpuðumst
við að. Þetta kallaði á mikið grúsk
enda leituðum við fanga víða þar
sem þetta var töluverð heimilda-
vinna. Kristján Freyr Halldórsson,
vinnufélagi minn hjá Sögum, tók líka
virkan þátt í þróunarvinnunni. Þeg-
ar textarnir lágu fyrir leituðum við
til Helgu Gerðar Magnúsdóttur sem
hannaði bókina og er algjör snill-
ingur. Við vorum heillengi að velta
fyrir okkur hvernig svona bók ætti
að líta út. Við vorum búin að fara í
nokkra hringi þegar við leituðum til
Jóns Baldurs, sem kenndi Helgu í
Listaháskóla Íslands. Hann á mikið
safn mynda sem Helga Gerður valdi
úr,“ segir Anna Margrét. Flestar
eru myndirnar í lit, en í upphafi
hvers kafla koma svart/hvítar teikn-
ingar og fremst og aftast í bókinni
má sjá hvernig ungar tæplega 20
fuglategunda líta út og inn á milli
getur að líta bæði hreiður og egg
ólíkra tegunda.
Spurð hvað hafi ráðið valinu á
fuglum svarar Anna Margrét: „Við
reyndum að hafa þetta eins fjöl-
breytt og við gátum, völdum fugla
sem okkur finnast almennt áhuga-
verðir og hafa sérkennileg hljóð. En
auðvitað voru líka nokkrir fuglar
sem hreinlega urðu að vera með,“
segir Anna Margrét og bendir í því
samhengi á rjúpuna, fálkann, hrafn-
inn og heiðlóuna, en hún prýðir kápu
bókarinnar.
Spurð hvort hún eigi sér uppá-
haldsfugl stendur ekki á svarinu og
Anna Margrét nefnir lóuna. „Ég er
þar í hópi með mörgum Íslendingum
sem þykir vænst um lóuna, vorboð-
ann ljúfa. Ég nýt þess þegar hún
syngur „dýrðin-dýrðin“ og kveður
burt snjóinn,“ segir Anna Margrét.
Þótt bókin hafi, eins og fyrr segir,
sigrað í flokki barnabóka segir Anna
Margrét ekki hafa verið auðvelt að
skilgreina bókina. „Við veltum því
lengi fyrir okkur hvort þetta ætti að
vera barnabók eða fullorðinsbók og
komumst loks að því að þetta er fjöl-
skyldubók,“ segir Anna Margrét og
bendir á að þótt fuglar séu alls stað-
ar í kringum okkar taki fólk mis-
mikið eftir þeim. „Kannski kveikir
bókin áhuga hjá fólki að hlusta betur
eftir og fylgjast betur með fuglum.
Fuglalífið er svo ótrúlega fjöl-
breytt og fallegt allt í kringum okk-
ur,“ segir Anna Margrét og bendir á
að það sé gaman að þekkja ekki að-
eins fugla í útliti heldur einnig af
hljóðum þeirra. „Viðtökurnar við
bókinni hafa verið ótrúlega góðar,
enda er fyrsta prentun uppseld og
önnur prentun í dreifingu,“ segir
Anna Margrét og tekur fram að góð-
ar viðtökur lesenda og bóksala séu
útgefendum ávallt mikil hvatning.
Heiðlóa Lóan kveður burt snjóinn
og syngur „dýrðin, dýrðin“.
Jaðrakan Farfugl sem vingast auð-
veldlega við aðrar fuglategundir.
„Hugsað í þremur víddum“
- Fagurt galaði fuglinn sá! inniheldur texta, teikningar og hljóð alls 44 fugla
- Nýverið valin besta íslenska barnabókin að mati starfsfólks bókaverslana
Grúsk Anna Margrét ásamt Pepe.
Rjúpa Er villt hæna og göngugarp-
ur sem er mikið fyrir felubúninga.
Óðinshani Hjá þessum fugli hefur
kynjahlutverkunum verið snúið við.
Gagnrýnendur The New York
Times hafa nú undir lok ársins birt
lista yfir 25 eftirlætishljóðritanir
sínar á klassík og samtímatónlist
sem komu út á árinu. Anna Þor-
valdsdóttir tónskáld og Víkingur
Heiðar Ólafsson eru bæði á listan-
um.
Gagnrýnandinn Anthony
Tommasini velur af plötu Víkings,
Mozart og samtímamenn, sem
Deutsche Grammophon gaf út
Rondo í d-moll eftir C.P.E. Bach
sem hann segir „sérstaklega
hressilegt“ í túlkun Víkings en
plötuna segir hann enn eina
heillandi útgáfu píanóleikarans.
Rýnirinn Joshua Barone velur
„Enigma“, fyrsta strengjakvartett
Önnu sem Spektral Quartet flytur í
útgáfu Sono Luminus. Verkið er
sagt meistaraleg fyrstu skref tón-
skáldsins í glímu við form strengja-
kvartettsins en Önnu takist að
skapa víðáttumikinn og heillandi
hljóðheim með fjórum hljóðfærum.
Anna og Víkingur
bæði á lista NYT
Anna
Þorvaldsdóttir
Víkingur Heiðar
Ólafsson
Kristbergur Ó.
Pétursson mynd-
listarmaður opn-
ar á morgun sýn-
ingu í sal Wg
Kunst í Amster-
dam. Hann sýnir
málverk, grafík
og verk í bland-
aðri tækni sem
öll eru unnin fyr-
ir þessa sýningu.
Ljóð eru stór þáttur í sýningunni
og er Kristbergur að gefa út ljóða-
bók í tengslum við hana. Ljóðin eru
bæði á íslensku og í enskum þýð-
ingum Aðalsteins Ingólfssonar list-
fræðings.
Kristbergur sýnir
í Amsterdam
Kristbergur Ó.
Pétursson