Morgunblaðið - 17.12.2021, Page 40

Morgunblaðið - 17.12.2021, Page 40
DURANCE JÓLAILMUR 2021 MODULAX HÆGINDA- STÓLAR RAFSTILLANLEGIR HLEÐSLUSTÓLAR – FALLEG HÖNNUN OG ÞÆGINDI STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU EIN ALLRA BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI FULLKOMIN ÞÆGINDI um jólin Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Á septembertónleikum tónleikaraðarinnar Síðdegis- tóna í Hafnarborg í Hafnarfirði í kvöld kl. 18 kemur söngkonan Ragnheiður Gröndal fram. Efnisskráin verð- ur í hátíðlegri kantinum, nú þegar styttist til jóla, og „vel valdar jólaperlur á boðstólum,“ segir í tilkynningu. Með Ragnheiði leika Haukur Gröndal á saxófón, Birgir Steinn Theodórsson á kontrabassa og gítarleikarinn Andrés Þór Gunnlaugsson. Tónleikarnir standa í um klukkustund og er grímuskylda meðan á þeim stendur. Ragnheiður Gröndal kemur fram ásamt tríói í Hafnarborg í kvöld FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER 351. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Everage Richardson tryggði Breiðablik dramatískan sigur gegn Val þegar liðin mættust í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Subway-deildinni, í Smáranum í Kópa- vogi í tíundu umferð deildarinnar gær. Þá vann Þór frá Þorlákshöfn óvæntan stórsigur gegn Tindastól á Sauð- árkróki, Njarðvík fór illa með ÍR í Njarðvík og KR vann Þór frá Akureyri með herkjum í Vesturbæ. »34 Blikar unnu val á lokasekúndunum ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Íslenskir matreiðslumenn kunna sitt fag og félagar í Lávarðadeildinni svokölluðu gera sitt til þess að minn- ast gamalla og góðra tíma og halda matreiðslu frumherjanna á lofti. „Í þessum hópi eru ekkert nema snill- ingar, sem flestir lærðu réttu hand- tökin fyrir um 50 til 60 árum,“ segir Lárus Loftsson. „Við erum að sjálfsögðu í Klúbbi matreiðslumeistara, KM, en Lá- varðadeildin er á öðru og eldra sviði en nútíminn, talar annað tungumál, ef svo má segja.“ Þegar „lávarðarnir“ voru ungir var ekki í mörg hús að venda til þess að læra réttu handtökin. „Við erum flestir á aldrinum 75 til 80 ára og höfðum ekki úr mörgu að velja á sín- um tíma,“ segir Lárus. „Helstu stað- irnir sem tóku nema voru Hótel Saga, Hótel Loftleiðir og Naustið.“ Um 20 manns eru í hópnum. Þeir fara í fræðsluferðir árlega og hittast í eftirmiðdagskaffi á veitinga- staðnum Lauga-Ási einu sinni í mán- uði, klæddir kokkatreyju, í svörtum buxum og svörtum skóm. Helsta umræðuefnið kemur ekki á óvart. „Við tölum um matreiðslu, hvað er að gerast í faginu og hvernig við fór- um að í gamla daga,“ segir Lárus. Hann segir tækninni hafa fleygt svo fram að þessir eldri og reyndari standi hreinlega á gati. „Í okkar hópi eru menn sem voru sérfræðingar í matseld á kolaeldavél, þurftu að hugsa fyrir öllu, en nú eru tækin orðin svo tæknileg að í sumum til- vikum nægir að ýta á takka og á svipstundu er dýrindismáltíð tilbúin! Við þurftum að búa allt til frá grunni, fengum skrokka í heilu lagi og skárum niður, en nú má fá steik- urnar tilbúnar á pönnuna eða í ofn- inn. Okkur gamlingjunum finnst að sjálfsögðu meiri glans yfir því liðna en ungu, framsýnu og frábæru kokkarnir eru örugglega ekki á sama máli.“ Brautryðjendur Karl Finnbogason er æðstur og elstur lávarðanna, var lengi yfirmat- reiðslumeistari á Hótel Loftleiðum. Stefán Bjarni Hjaltested var fyrsti yfirmatreiðslumeistari á Hótel Holti, byrjaði að bjóða upp á graflax og innleiddi Holtsvagninn svokall- aða, sem fullur af mat var dreginn á milli borða. Bragi Ingason var fyrsti yfirmatreiðslumeistari í Klúbbnum, þegar hann var upp á sitt besta, og síðar á Hótel Sögu auk annarra staða. Ib Wessman var yfirmat- reiðslumeistari í Naustinu, þegar það fyrst veitingahúsa byrjaði að bjóða upp á þorramat og fyrsti for- seti KM 1972. Og svo má lengi telja. „Þessir menn og fleiri ruddu braut- ina, eru fyrirmyndir okkar sem á eftir komum,“ segir Lárus. Hann leggur áherslu á að íslensk matargerð sé á pari við það besta sem gerist í heiminu en ekki megi gleyma brautryðjendunum, sem voru bestir á sínum tíma. „Umræðan vill oft verða þannig að menn sjá bara sig og sína,“ segir hann og vísar í fótboltann, en hann var lengi þjálf- ari félagsliða og unglingalandsliða í fótboltanum. „Oft er hávær umræða um hver sé bestur, en hún er yfir- leitt ekki djúp, því hringurinn er svo þröngur að jafnvel menn á besta aldri og hvað þá eldri eru ekki nefndir á nafn.“ Morgunblaðið/Eggert Lávarðar Fremri röð frá vinstri: Sverrrir Þorláksson, Stefán Bjarni Hjaltested, Þorsteinn Kr. Guðmundsson, Karl Finnbogason og Bragi Ingason. Aftari röð frá vinstri: Hilmar B. Jónsson, Jakob H. Magnússon, Eiríkur Friðriksson, Friðrik Sigurðsson, Lárus Loftsson, Guðjón Steinsson, Gunnlaugur Hreiðarsson, Birgir Pálsson, Brynjar Eymunds- son, Ragnar Guðmundsson, Hafdís Ólafsdóttir, Einar Árnason, Þórður Sigurðsson og Kristján Sæmundsson. Lífsglaðir lávarðar - Íslenskir matreiðslumenn minnast gömlu og góðu tímanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.