Morgunblaðið - 28.12.2021, Page 13

Morgunblaðið - 28.12.2021, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021 SPORTÍS DÚNALOGN SKE I FAN 1 1 1 08 REYKJAV ÍK S POR T I S . I S 520-1000 Mevlut Cavusoglu, utanríkis- ráðherra Tyrklands, hvatti í gær Rússa til þess að láta af „einhliða“ kröfum sínum gagnvart Atlantshafs- bandalaginu í Úkraínudeilunni og leita uppbyggilegri leiða til lausna á henni. Hvatti Cavusoglu bæði banda- lagsríkin og Rússa til þess að ræða málin á sérstökum fundi í NATO- Rússlandsráðinu hinn 12. janúar næstkomandi, en Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri bandalagsins, lagði þann fund til í fyrradag. Rúss- ar hafa ekki svarað hvort þeir muni þekkjast boð Stoltenbergs. Rússar hafa meðal annars krafist bindandi loforða frá Atlantshafs- bandalaginu um að það dragi her- sveitir sínar frá þeim ríkjum sem ekki voru aðilar að bandalaginu árið 1997, auk þess sem þeir vilja að Úkraínu verði meinuð aðild að bandalaginu um aldur og ævi. Cavusoglu sagði að til þess að hægt væri að ganga að slíkum kröf- um yrðu þær að vera ásættanlegar fyrir báða aðila. „En kannski vill NATO svipaðar tryggingar frá Rússum. Þetta er ekki einhliða vandamál,“ sagði Cavusoglu í gær. Sagði hann jafnframt að báðir að- ilar yrðu að leggja fram tillögur sem hægt yrði að ganga að. „Ef Rússland er með einhverjar sérstakar vænt- ingar eða álitamál gagnvart Tyrk- landi sem geti dregið úr spennunni á milli Rússa og bandalagsins, munu Tyrkir meta það með jákvæðum augum, því markmið okkar er skýrt,“ sagði Cavusoglu. „Allir myndu finna fyrir því, Guð forði því, ef stríð brýst út í heimshlutanum.“ AFP Spenna Þessir varaliðsmenn í Úkraínuher æfðu sig á jóladag. Rússar láti af „einhliða“ kröfum - Tyrkir styðja viðræður við Rússa Andrzej Duda, forseti Póllands, ákvað í gær að beita neitunar- valdi sínu á um- deild lög um fjöl- miðla, sem takmörkuðu rétt- indi fyrirtækja utan EES til þess að eiga hlut í þeim. Sagði Duda að hann vildi senda frumvarpið aftur til þingsins til endurskoðunar, en bæði Evrópu- sambandið og Bandaríkin höfðu gagnrýnt efni þess. Þá sögðu stjórnarandstæðingar að lögunum væri ætlað að þagga niður í frétta- stöðinni TVN24, sem er í eigu bandarískra aðila. Stjórnvöld sögðu hins vegar að lögunum væri ætlað að verja pólska fjölmiðla gegn ríkjum sem mögu- lega væru fjandsamleg, á borð við Rússland. Duda sagði að hann væri samþykkur því markmiði að verja fjölmiðlana, en að ekki væri hægt að láta lögin gilda um þau við- skiptatengsl og fjárfestingasamn- inga sem þegar væru í gildi. PÓLLAND Beitti neitunarvaldi á fjölmiðlafrumvarpið Andrzej Duda Mohamed Huss- ein Roble, for- sætisráðherra Sómalíu, sakaði í gær forseta landsins, Moha- med Abdulahi Mohamed, um að hafa reynt að ræna völdum í landinu eftir að forsetinn, sem jafnan er kallaður Farmajo, reyndi að reka Roble úr embætti vegna meintrar spillingar. Mikil óvissa ríkir nú í Sómalíu, þar sem Roble krafðist þess að her landsins fylgdi skipunum sínum frekar en Farmajos. Lýsti Banda- ríkjastjórn yfir þungum áhyggjum sínum af ástandinu og hvatti allar fylkingar til að forðast ögranir. SÓMALÍA Sakar forsetann um valdaránstilraun Mohamed Hussein Roble Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Nokkur ringulreið ríkti á flugvöllum víða um heim í gær, þar sem hætta þurfti við um rúmlega 2.500 flug- ferðir vegna heimsfaraldursins til viðbótar við þær rúmlega 8.000 flug- ferðir sem frestuðust yfir alla jóla- helgina. Var þegar í gær búið að fresta um 800 flugferðum sem áttu að vera í dag. Jólin eru jafnan einn helsti ferða- tími ársins, en skortur á starfsfólki neyddi mörg flugfélög til þess að seinka eða fresta áætlunarferðum sínum, þar sem ekki var hægt að manna áhafnir vélanna. Þá var einn- ig nokkuð um að starfsfólk flugvalla væri í einangrun eða sóttkví vegna fjölda smita. Tilfellum hefur fjölgað gríðarlega hratt að undanförnu vegna Ómík- ron-afbrigðisins. Þannig tilkynntu stjórnvöld í Danmörku og í Frakk- landi um metfjölda tilfella í gær, og ræddi Emmanuel Macron Frakk- landsforseti við embættismenn sína í gær um hertar aðgerðir til að stemma stigu við frekari smitum. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, gaf hins vegar út í gær að ekki yrði hert á aðgerðum í Eng- landi fyrir áramótin, og verða því engar samkomutakmarkanir í gildi þar á gamlárskvöld, þrátt fyrir að metfjöldi smita hafi greinst þar á jóladag. Ekki var þó víst hvort efnt yrði til hertari aðgerða eftir áramót- in, en kalla þarf þing saman til þess. Engin ástæða til ofsahræðslu Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði í gær að Bandaríkin væru vel í stakk búin til að takast á við nýjustu bylgj- una af kórónuveirunni, en hann var- aði við því að sum sjúkrahús gætu yfirfyllst af sjúklingum vegna þess mikla fjölda sem nú er að smitast af veirunni. Sagði Biden að ástæða væri til að hafa áhyggjur af Ómík- ron-afbrigðinu, en engin ástæða til að fyllast ofsahræðslu vegna þess. Delaware, Havaí, Massachusetts, New Jersey og New York-ríki hafa öll tilkynnt metfjölda nýrra tilfella undanfarna sjö daga. Ætlar Banda- ríkjastjórn að bæta aðgengi fólks að skimun á næstu vikum vegna þessa. Yfirvöld í Flórída-ríki tilkynntu jafnframt í gær að þau væru að fylgjast vel með ferðum tveggja skemmtiferðaskipa í landhelgi sinni, þar sem fjöldi smita hefur komið upp um borð. Var skipunum vísað frá áfangastöðum sínum í Karíba- hafi, og var beðið næstu skrefa í gær. Ringulreið á flugvöllum - Hætta þurfti við um 2.500 flugferðir í gær - Metfjöldi tilfella í Danmörku og í Frakklandi - Biden segir enga ástæðu til að sýna ofsahræðslu vegna Ómíkron AFP Jólaös Langar biðraðir einkenndu flugvelli um helgina vegna Covid. Stjórnvöld í Suður-Afríku lýstu því yfir í gær að þjóðarsorg myndi ríkja í landinu í heila viku vegna andláts erkibiskupsins Desmonds Tutu, sem var einn af helstu bar- áttumönnum gegn aðskilnaðar- stefnunni á sínum tíma. Tutu lést annan í jólum, en hann var níræður að aldri. Cyril Rama- phosa, forseti Suður-Afríku, heim- sótti fjölskyldu hans í gær og sagði að Tutu hefði verið hugrakkur og hreinskilinn og að Suður-Afríku- menn hefðu elskað hann, þar sem hann gaf þeim sem ekki gátu talað rödd. Útför Tutu mun fara fram á ný- ársdag, en þangað til verður hans minnst með ýmsum hætti. Yfirvöld í Höfðaborg ákváðu til dæmis að lýsa upp Borð-fjallið, eitt helsta kenni- leiti borgarinnar, með fjólubláum blæ, en fjólublár var einkennislitur erkibiskupsins. Vika sorgar hafin í Suð- ur-Afríku AFP

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.