Morgunblaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Víða líta menn um öxl þessa daga, eins og hefðbundið er. Sumir gefa sjálf- um sér, og ekki síst öðrum, einkunn fyrir frammistöðu á liðnu ári. Og hafi margt farið verr en skyldi, þá er stóra afsökunin, veiran vonda, innan seil- ingar. Fyrsta vor veirunnar, fyrir hálfu öðru ári, þótti þeim sem mest máttu vita, að þeirra ráð hefðu dugað vel, eins og sagt var í upphafi að ástæða væri til að ætla, yrði þeim fylgt út í æsar. Halda yrði höfði og fylgja reglum fast fram þar til kapphlaupið um bóluefnið væri í höfn, en þá yrðu kaflaskil. Og því verður ekki neitað að þau skil urðu fyrr en björtustu vonir stóðu til og aldrei í sögu mannkyns höfðu jafn margir varpað öndinni léttar í senn og þá. Jarðarbúum var vorkunn að trúa á kraftaverk á slíkum tímum, þegar ekki virtist hægt að stóla á neitt annað. Vissulega birti yfir með til- kynningum um að bóluefnin væru viðurkennd, þrátt fyrir að hinu yrði ekki neitað að æskilegt hefði verið að miklu rýmri tími hefði gefist til að sannreyna hvaðeina. Ekki væri þó sanngjarnt að halda því fram að heims- byggðin hefði verið táldregin og er þá átt við þann hluta hennar sem eygði fyrstur sprautuskammt, næsta miss- erið eða svo. En á daginn kom smám saman að ekki var allt eins og sýndist eða að öllu leyti í takt við það sem mannskapurinn hafði talið sig hafa ástæðu til að vænta. Sprauturnar urðu í flestum tilvikum tvær sem þurfti til svo að þeim mætti treysta til fulls gagns. Síðar bættist einnig við það bólu- efnið sem átti framan af að duga eitt. Hjartalæknir skrifaði grein í Morgunblaðið í ágúst og benti þar á hættu á fylgikvillum sem gætu vegið á móti litlum ávinningi af því að gefa ungu fólki sem fékk Janssen-efnið örvunar- skammt af öðru bóluefni. „Fólk var eiginlega bara kall- að inn, það fór kannski ekki fram nógu mikil umræða um að þetta gæti haft aukaverk- anir, svo fórum við að sjá þessi tilfelli,“ segir hann og vísar þar til hjartavöðva- og gollurhússbólgu. Ríkisútvarpið benti á að WHO, Alþjóðaheilbrigð- isstofnunin, mælti gegn örvunar- bólusetningu á þessu stigi. Rök hennar voru m.a. þau, að verulegar efasemdir væru uppi um öryggi hennar og gagnsemi og þess utan orkaði tvímælis að setja fé og orku í slíkt verkefni á meðan stór hluti mannkyns hefði ekki einu sinni fengið eina sprautu og víða yrði enn veruleg bið eftir henni og reyndar með öllu óvíst hvort úr því yrði nokkru sinni bætt. Og við þetta allt bætist svo að heilbrigðisyfirvöld í Bret- landi upplýstu nú í vikunni þær niðurstöður sínar að örv- unarskammturinn dygði að- eins í átta vikur, en eftir þann tíma tæki að draga mjög úr virkni hans! Þá þykir mörgum mjög vafasamt að efna til aðgerða til að ýta á sprautun barna frá 5 ára aldri og upp úr, án þess að lágmarksumræða hafi farið fram um það í land- inu. Nýlega komu tilkynn- ingar um að skólarnir yrðu hafðir vettvangur bólusetn- ingar, þótt tekið sé fram að ekki sé um skyldubólusetn- ingu að ræða. En þrýstings- áhrifin á börn og foreldra, sem fylgja þessari ákvörðun um vettvang, eru augljós. Fram að þessu hafa sömu yf- irvöld játað að ekki sé verið að bólusetja börnin vegna þess að sýkingarhætta og veikindi á meðal þeirra knýi á um það, heldur er marg- tekið fram þessi aðgerð sé æskileg til að verja þann hluta þjóðarinnar fyrir smit- um, sem strax var lögð mest áhersla á að verja, en sá hluti er þegar svo gott sem full- bólusettur! Það eru mörg merki að birtast síðustu vikur um að heilbrigðisyfirvöld hafi ekki sama traust og áður og mjög æskilegt er að þau hafi svo vel fari. Smitrakningar og sóttkví og einangrun á mönnum í þúsundatali, sem ekkert er að, eru gagnrýndar af sífellt meiri þunga. Við þær að- stæður er meira en lítið vafa- samt að rjúka í barnabólu- setningar í meintri þágu annarra en barnanna sjálfra, og án þess að raunveruleg umræða við foreldra og for- ráðamenn barnanna hafi átt sér stað. Það verður dýrkeypt ef sóttvarnayfirvöld missa trúverðug- leika sinn að óþörfu} Hollt að horfa um öxl og þá fyrst fram á við R íkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sem tók til starfa 28. nóvember 2021 leggur áherslu á vernd um- hverfisins og baráttuna við lofts- lagsbreytingar, með samdrætti í losun, orkuskiptum og grænni fjárfestingu. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að samhliða baráttunni við loftslagsbreytingar sé það verkefni ríkisstjórnarinnar að búa sam- félagið undir aukna tæknivæðingu og tryggja áframhaldandi lífskjarasókn með því að leggja áherslu á jafnvægi efnahagslegra, samfélags- legra og umhverfislegra þátta. Ljóst er að samdráttur í losun frá sjávar- útvegi skiptir miklu máli svo Ísland standist alþjóðlegar skuldbindingar og nái kolefnis- hlutleysi. Að mati Umhverfisstofnunar er los- un gróðurhúsalofttegunda í sjávarútvegi á Ís- landi einkum vegna notkunar olíu sem eldsneytis í fiskiskipum, flúoraðra gróðurhúsalofttegunda sem not- aðar eru í kælibúnaði, og notkunar olíu sem orkugjafa í fiskimjölsverksmiðjum. Ég mun leggja áherslu á aðgerðir sem stuðla að um- hverfisvænni sjávarútvegi í embætti ráðherra matvæla, sjávarútvegs og landbúnaðar, samhliða því að leggja áherslu á að stuðla að verndun, sjálfbærni og hagkvæmri nýtingu nytjastofna í sjó og lifandi auðlinda hafs. Í tíð síðustu ríkisstjórnar var unnin mikilvæg vinna hvað varðar umhverfisvænni sjávarútveg sem byggja má áframhaldandi vinnu á. Þar má til dæmis nefna skýrslu starfshóps fjármála- og efnahagsráðherra, Græn skref í sjávarútvegi. Starfshópurinn sem vann skýrsluna var skipaður í samræmi við aðgerð í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í lofts- lagsmálum um að dregið verði úr losun gróðurhúsalofttegunda frá sjávarútvegi með blönduðum aðgerðum (aðgerð B.1) og verk- efni hópsins voru meðal annars að vinna til- lögu að umfangi samdráttar í losun frá sjávarútvegi árið 2030, tillögur um innleið- ingu fjárhagslegra hvata og tillögur um hvernig megi auka hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í sjávarútvegi. Samhliða skipan hópsins undirrituðu sex ráðherrar og fulltrúar Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi samstarfsyfirlýsingu sumarið 2020, um græn skref í sjávarútvegi, þar sem kveðið var á um formlegt samstarf stjórn- valda og sjávarútvegsins til að tryggja að markmiðum Íslands í loftslagsmálum verði náð. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að tillögum starfshóps um græn skref í sjávarútvegi verði fylgt eftir, til að flýta eins og kostur er orkuskiptum í sjávarútvegi og ná markmiðum um samdrátt í losun. Það er sameiginlegt verkefni stjórnvalda og sjávar- útvegsins að skapa umgjörð svo greinin geti haldið áfram að leggja sitt af mörkum til þeirra nauðsynlegu skrefa sem stíga þarf í loftslagsmálum, bæði til skemmri og lengri tíma, og ég mun gera það sem í mínu valdi stendur til að stuðla að framgangi þess stóra verkefnis. Svandís Svavarsdóttir Pistill Grænni sjávarútvegur Höfundur er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is B ílgreinasambandið telur að fyrirhuguð niðurfelling virðisaukaskatts-ívilnana fyrir tengiltvinnbíla nú um áramótin sé stórt skref aftur á bak og muni hægja á orkuskiptum bílaflota landsmanna. Markmið stjórnvalda um kolefnislaust Ísland árið 2040 séu sett í uppnám. Til að tryggja að hraði í orkuskiptum verði að minnsta kosti sá sami og verið hefur undanfarin tvö ár þurfi að framlengja ívilnanirnar. Þetta kemur fram í viðbótar- umsögn sem sambandið sendi efna- hags- og viðskiptanefnd Alþingis á Þorláksmessu. Með henni er brugð- ist við röksemdum í greinargerð fjár- mála- og efnahagsráðuneytisins í kjölfar sameiginlegrar gagnrýni sambandsins, Samtaka fyrirtækja í ferðaþjónustu (SAF) og Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) á nið- urfellinguna. Um sjö prósent bílaflotans Tengiltvinnbílar eða tvíorkubíl- ar hafa tvískiptar vélar, annars vegar fyrir bensín (eða dísel) og hins vegar fyrir rafmagn. Hafa þeir verið mark- aðssettir sem góður kostur fyrir þá ökumenn sem vilja skipta yfir í raf- magnsbíl en þurfa gjarnan að aka mikið. Fram kemur í viðbótar- umsögn Bílgreinasambandsins að tengiltvinnbílar verði nú um áramót- in að líkindum 6,7 prósent af heildar- bílaflota landsmanna. Hreinir rafbíl- ar verði 4,6 prósent. Bílgreinasambandið á við ramman reip að draga í baráttu sinni fyrir framlengingu ívilnananna því meirihluti efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis styður tillögu fjár- mála- og efnahagsráðuneytisins. Er kostnaður við framlenginguna sagð- ur alltof mikill fyrir ríkissjóð. Ólík- legt verður að telja að stjórnarmeiri- hlutinn á Alþingi skipti um skoðun en það kemur þó ekki í ljós fyrr en síðar í vikunni við atkvæðagreiðslu um til- löguna. Hún er ein af mörgum í svo- kölluðum „bandormi“ sem tengist fjárlögum næsta árs. Í viðbótarumsögn Bílgreina- sambandsins er sagan að baki íviln- uninni rakin. Hún hafi komið til árið 2012 og markmiðið verið að flýta orkuskiptum. Áhrifin hafi verið lítil fyrstu árin vegna þess að framboð tengiltvinnbíla hafi verið mjög tak- markað. Breyting hafi fyrst orðið á þessu 2016 þegar úrvalið jókst og næstu árin hafi hlutdeildin aukist jafnt og þétt. Þetta hafi gerst í kjöl- far þess að drægni í akstri á raf- magni fór að aukast verulega. Enn sé þó sú staða uppi að úrval rafbíla sé lítið, sérstaklega bíla með drægni yfir 400 km á sama tíma og innviðir hleðslukerfisins séu mjög veikir. Meðan svo sé þurfi að viðhalda íviln- ununum. Varðandi þá fullyrðingu í grein- argerð ráðuneytisins að miklir fjár- munir hafi verið lagðir í að byggja upp innviðina segir Bílgreina- sambandið að aðeins sé um að ræða „dropa í hafið í strjálbýlu landi eins og Íslandi“. Þéttleiki hleðsluinnviða þurfi að vera mun meiri, einstakar stöðvar vera mun öflugri en nú er og tengja þurfi þær við gististaði, vinnu- staði og heimili. Hækkar um milljón krónur Bílgreinasambandið segir að niðurfellingin um áramótin muni hækka verulega verð tengiltvinnbíla. Slíkur bíll sem nú kostar 5,5 milljónir króna muni hækka í ársbyrjun 2022 um 960 þúsund krónur og kosta um 6,5 milljónir. „Mikill munur er á að kaupa bíl sem kostar 5,5 milljónir eða bíl sem kostar 6,5 milljónir á sama tíma og hægt er að fá bensín- eða díselbíl sem er um 10% ódýrari eða 500 til 650 þúsund krónur,“ segir Bílgreina- sambandið. Sambandið bendir einnig á að í útreikningum stjórnvalda virðist ekki vera tekið neitt tillit til þess að þær ívilnanir sem snúa að hreinum rafbílum og bundnar eru við 15 þús- und bíla kvóta muni renna sitt skeið á enda um mitt næsta ár. Þá muni raf- bílar einnig hækka umtalsvert í verði eða um rúmlega hálfa aðra milljón króna. Þetta verði til þess að hefð- bundinn bensín- eða díselbíll verði frekar fyrir valinu hjá kaupendum. Þetta vinni gegn loftslagsmark- miðum stjórnvalda. Rúmlega 11 milljarða ívilnanir Fjármála- og efnahagsráðu- neytið bendir á ríkið hafi veitt raf- magns-, tengiltvinn- og vetnisbílum vsk-ívilnanir í tæp tíu ár og hafi þær frá upphafi numið 21,2 milljörðum kr., þar af 11,4 milljörðum vegna tengiltvinnbíla. Fjöldi tengiltvinnbíla sé orðinn rúmlega 13 þúsund og raf- magnsbílar liðlega 10 þúsund. Þetta telur ráðuneytið sýna að orkuskipti í samgöngum séu komin á fullt skrið. Ríkisstjórnin hafi sett sér metnaðar- full markmið um að Ísland nái kol- efnishlutleysi og fullkomnum orku- skiptum ekki seinna en árið 2040 og verði þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. Er vísað til þess að í Noregi hafi gengið hraðast að ná upp hlut- deild rafbíla og þar í landi beinist vsk-ívilnanir eingöngu að hreinorku- bílum. Tekist á um ívilnanir fyrir tengiltvinnbíla Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tengiltvinnbíll Hér er Range Rover Evoque. Rafdrægnin er 54 km og meðaleyðsla 1,7 lítrar. Tekur um sex sekúndur að ná 100 kílómetra hraða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.