Morgunblaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021
Það verður forvitnilegt að
sjá hvernig íslenska karlalands-
liðinu í handknattleik reiðir af á
Evrópumeistaramótinu í Ung-
verjalandi og Slóvakíu sem
hefst um miðjan janúar næst-
komandi.
Eftir kynslóðaskipti og
heldur dræman árangur lands-
liðsins á stórmótum á undan-
förnum árum er farið að gæta
nokkurrar bjartsýni á ný og ekki
að ósekju.
Íslenska liðið er lygilega vel
statt þegar kemur að örvhent-
um skyttum þar sem Ómar Ingi
Magnússon, Teitur Örn Einars-
son, Viggó Kristjánsson og
Kristján Örn Kristjánsson eru
allir í lokahópnum enda erfitt
að skilja nokkurn þeirra eftir.
Leikstjórnendurnir og
rétthentu skytturnar Aron
Pálmarsson, Janus Daði Smára-
son og Gísli Þorgeir Kristjáns-
son glímdu allir við meiðsli fyrr
á árinu en eru allir þrír í frá-
bæru formi um þessar mundir
og er það afar góðs viti fyrir
EM í janúar.
Vinstri hornamaðurinn
Bjarki Már Elísson er þá marka-
hæsti leikmaður þýsku 1. deild-
arinnar og mætir sjóðheitur til
leiks á mótið.
Ætli liðið sér hins vegar að
ná einhverjum árangri á mótinu
nægir ekki bara að vera með
öfluga sóknarmenn.
Það er klisja að segja að
varnarleikur og markvarsla
verði að vera í lagi en hún er
engu að síður sönn. Liðið hefur
á að skipa gnægð sterkra varn-
armanna og markvarða.
Efniviðurinn til þess að ná
góðum árangri á EM er því
sannarlega fyrir hendi og vona
ég að byrjunin á nýju gullaldar-
skeiði handboltalandsliðsins fari
brátt í hönd.
BAKVÖRÐUR
Gunnar Egill
Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Kórónuveiran hefur sett strik í
reikninginn hjá franska karlalands-
liðinu í handknattleik í undirbún-
ingi þess fyrir EM 2022 í Ungverja-
landi og Slóvakíu þar sem alls eru
átta leikmenn smitaðir af henni.
Þeir Nikola Karabatic, Benoit
Kounkoud, Yanis Lenne, Rémi Des-
bonnet, Hugo Descat, Aymeric
Minne, Dylan Nahi og Élohim
Prandi hafa allir greinst með veir-
una og taka því ekki þátt í fyrsta
hluta undirbúnings franska liðsins
fyrir EM.
Nedim Remili hafði áður dregið
sig úr hópnum vegna fótbrots og
markvörðurinn Vincent Gérard
kemur ekki strax til móts við
franska landsliðsins vegna fjöl-
skyldumála.
Aðalþjálfarinn Guillaume Gille
hefur því þurft að kalla fjölda leik-
manna á æfingar til bráðabirgða
þar sem ansi fáliðað var orðið hjá
þeim.
Frakkar eru í riðli með Króatíu,
Serbíu og Úkraínu á EM og mæta
Íslandi í milliriðli ef báðar þjóðir
komast þangað.
Átta Frakkar
eru smitaðir
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Subway-deildin:
MG-höllin: Stjarnan – Breiðablik ....... 18.15
TM-hellirinn: ÍR – Vestri .................... 19.15
Í KVÖLD!
ÞJÓÐVERJAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Þrjú af þekktustu liðunum í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu leggja
traust sitt á þýska knattspyrnstjóra
um þessar mundir. Jürgen Klopp
gerði Liverpool að meisturum, nokk-
uð sem engum hafði tekist í þrjá ára-
tugi, og ferskir vindar virðast blása
hjá Chelsea með tilkomu Thomasar
Tuchels. Manchester United reri ný-
lega á sömu mið og réð Ralf Rang-
nick. Hans virðist bíða það verkefni
að fara í stefnumótun hjá félaginu
þótt hann sé alla vega fyrst um sinn
knattspyrnustjóri þess.
Rangnick er nokkru eldri en Tuch-
el og Klopp. Hann fæddist 1958 og er
því 63 ára gamall. Tuchel er hins veg-
ar fæddur 1973 og Klopp 1967. Bæði
Tuchel og Klopp höfðu kynnst
Rangnick áður en þeir urðu sjálfir
þekktir knattspyrnustjórar.
Rangnick og Tuchel þekkjast vel
því Rangnick var eins konar fyrir-
mynd fyrir Tuchel þegar núverandi
stjóri Chelsea var að færa sig yfir í
þjálfun. Rangnick útvegaði Tuchel
starf hjá um aldamótin hjá VfB
Stuttgart, liði sem Íslendingar fylgd-
ust vel með á árum áður. Rangnick
stýrði þá aðalliði Stuttgart og fékk
Tuchel til að stýra U15 ára liðinu en
einnig mun Tuchel hafa verið með
unga leikmenn á aukaæfingum. Þar
hafa til dæmis verið nefndir til sög-
unnar Mario Gómez og Holger
Badstuber.
Kynntust hjá Ulm
Rangnick er fæddur og uppalinn í
Backnang sem er um 30 kílómetra
norðaustur af Stuttgart. Klopp fædd-
ist í Stuttgart en ólst upp annars
staðar í Baden-Württemberg-
héraðinu. Tuchel ólst hins vegar upp í
Krumbach í Bæjaralandi og var sem
ungur leikmaður hjá Augsburg, liði
Alfreðs Finnbogasonar. Hann lék
hins vegar aldrei með aðalliði félags-
ins.
Tuchel lék nokkra leiki með Stutt-
garter Kickers en var síðar hjá Ulm
frá 1994 til 1998 þegar meiðsli bundu
enda á leikmannsferilinn. Rangnick
tók við liði Ulm árið 1997 og var þar
til 1999. Leiðir knattspyrnustjóra
Manchester United og Chelsea lágu
því saman hjá hinu lítt þekkta liði
Ulm. Borgin Ulm er í Baden-
Württemberg-héraðinu en við Bæj-
araland. Hún hefur verið einna
þekktust fyrir að vera fæðingar-
staður Alberts nokkurs Einsteins.
Hér má skjóta því inn til fróðleiks
að einn Íslendingur hefur leikið með
Ulm en Helgi Kolviðsson gerði það
2000-2001. Helgi rétt missti því af
Tuchel og Rangnick en Helgi lék hins
vegar með Klopp hjá Mainz áður en
Helgi fór til Ulm. Það vakti ekki sér-
staklega mikla athygli á Íslandi þeg-
ar Helgi gekk til liðs við Mainz árið
1998 en það er merkileg staðreynd að
bæði Jürgen Klopp og Thomas Tuc-
hel hafa stýrt liði Mainz.
Báru ekki af á vellinum
Rangnick, Tuchel og Klopp eiga
það sameiginlegt að þeim tókst ekki
að leggja heiminn að fótum sér sem
leikmenn. Rangnick lék ekki með
þekktum liðum frekar en Tuchel.
Klopp var hjá Mainz í meira en ára-
tug sem er ágætt út af fyrir sig en
myndi ekki flokkast undir það að slá í
gegn. Eitt sinn voru menn varla
ráðnir knattspyrnustjórar nema þeir
hefðu sjálfir verið atvinnumenn í
knattspyrnu og helst þekktir. Þetta
hefur breyst mikið í seinni tíð sem
betur fer eins og sést hjá þessum
þremur Þjóðverjum. Í bókinni
Soccernomics frá 2014 koma þeir
Simon Kuper og Stefan Szymanski
inn á hvernig þetta hefur breyst og
nefna Arrigo Sachi sem einn þeirra
fyrstu sem treyst var fyrir stórliði
eins og AC Milan þótt hann hafi ekki
verið atvinnumaður í íþróttinni áður.
Tuchel var 25 árs þegar hann lék
síðast með Ulm og var 27 ára þegar
Rangnick útvegaði honum starfið hjá
Stuttgart. Ulm var í 3. deild þegar
Tuchel var þar ungur leikmaður og
kynntist Rangnick. Tuchel hefur
greint frá því að hann sé undir áhrif-
um frá Rangnick sem knattspyrnu-
stjóri. Enda var það svo að Tuchel
setti sig sjálfur í samband við Rang-
nick þegar Tuchel hafði afskrifað að
snúa aftur á völlinn eftir meiðsli. Þá
var Rangnick eins og áður segir hjá
Stuttgart og var í aðstöðu til að rétta
Tuchel hjálparhönd.
Eftir að hafa verið með U15 ára
liðið tók Tuchel við U19 ára liðinu hjá
Stuttgart. „Mér fannst mjög sárt að
geta ekki spilað lengur en Rangnick
hjálpaði mér að finna nýja ástríðu,“
segir Tuchel í samtali við Ben Lyttle-
ton í bókinni Edge. Þar ræðir Lyttle-
ton einnig við Rangnick sem segir
það hafa blasað við að Tuchel gæti
orðið snjall þjálfari.
„Spurningarnar sem hann spurði
og gagnrýnin nálgun á leiki liðsins
báru það með sér að þar færi hæfi-
leikaríkur ungur maður sem ætti
framtíðina fyrir sér sem þjálfari.
Fjótlega fannst mér það vera aug-
ljóst,“ sagði Rangnick.
Bauð Tuchel aftur starf
Svo fór að Rangnick og Tuchel
áttu eftir að verða andstæðingar í
Þýskalandi og eru það aftur nú í
ensku úrvalsdeildinni. Um tíma
stýrðu þeir liðum í Þýskalandi á sama
tíma og Klopp og Pep Guardiola
stjóri Manchester City. Guardiola
var hjá Bayern München og Klopp
hjá Dortmund. Þegar Rangnick var
yfirmaður knattspyrnumála hjá RB
Leipzig bauð hann Tuchel knatt-
spyrnustjórastöðuna. Tuchel var hik-
andi og þáði ekki starfið. Hann réð
sig til Borussia Dortmund árið eftir
og náði þar eftirtektarverðum
árangri. Erfitt er að geta sér til um
hvernig ferillinn hefði þróast ef
Tuchel hefði ráðið sig til Leipzig.
Bók Lyttletons kom út árið 2017
en þar segir Rangnick að Tuchel hafi
valið vel. „Hann gerði allt rétt og hef-
ur náð miklum árangri með Dort-
mund. Ég er viss um að hann gæti
stýrt hvaða liði sem er í heiminum í
framtíðinni,“ hefur Lyttleton eftir
Rangnick. Þegar þeir ræddu saman
var Tuchel sem sagt ennþá hjá Dort-
mund en átti síðar eftir að taka við
París Saint-Germain og Chelsea.
Gaf Tuchel tækifæri
- Töluverð tengsl eru á milli knattspyrnustjóra Manchester United og knatt-
spyrnustjóra Chelsea - Þrjú af þekktustu ensku liðunum treysta á Þjóðverja
AFP
Chelsea Thomas Tuchel stendur
sig vel á Stamford Bridge.
AFP
Man Utd Ralf Rangnick reynir að
reisa við veldið á Old Trafford.
Brynjar Ingi Bjarnason, landsliðs-
miðvörður í knattspyrnu, er orðinn
leikmaður Vålerenga í Noregi en
Óslóarfélagið tilkynnti í gær að
gengið hefði verið frá kaupum á
honum frá Lecce á Ítalíu og samið
við hann til 2025. Brynjar, sem er
22 ára gamall, lék tíu af tólf lands-
leikjum Íslands á árinu og fór til
Lecce frá KA á miðju sumri en spil-
aði aðeins einn leik í B-deildinni.
Hann verður tíundi Íslendingurinn
til að spila með Vålerenga frá upp-
hafi en fyrir hjá félaginu er fram-
herjinn Viðar Örn Kjartansson.
Sömdu við Brynj-
ar Inga til 2025
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ósló Brynjar Ingi Bjarnason er
kominn til liðs við Vålerenga.
Knattspyrnukonan Fanndís Frið-
riksdóttir hefur staðfest að hún er
með slitið krossband í hné og mun
hún því ekki leika með Val á kom-
andi tímabili. „Fótboltahjartað er í
1.000 molum. Krossbandið slitið,
langt og strangt ferli fram undan.
Knús og kossar,“ skrifaði Fanndís á
instagram-aðgangi sínum í gær.
Fanndís, sem er 31 árs, hafði snúið
aftur á knattspyrnuvöllinn eftir
barnsburð snemma á síðasta tíma-
bili og lét vel að sér kveða þegar
Valur stóð uppi sem Íslandsmeist-
ari í haust.
Fanndís ekki með
á næsta ári?
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meiðsli Fanndís Friðriksdóttir er
með slitið krossband í hné.
Newcastle var óheppið að landa ekki
öðrum sigri sínum á tímabilinu í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
í gærkvöld þegar Manchester Unit-
ed kom í heimsókn á St. James’
Park.
Allan Saint-Maximin kom New-
castle yfir á 7. mínútu en varamað-
urinn Edinson Cavani jafnaði fyrir
United á 71. mínútu, 1:1.
David de Gea kom í veg fyrir sigur
Newcastle með frábærri markvörslu
og þá átti Jacob Murphy, leikmaður
Newcastle, stangarskot rétt fyrir
leikslok. Jafnteflið þýðir að New-
castle situr áfram í næstneðsta sæti
og er með flest töpuð stig af öllum í
deildinni.
Heil umferð var á dagskrá deild-
arinnar næstu þrjá daga en þegar
hefur tveimur leikjum af sex sem
fram áttu að fara í dag verið frestað
vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.
Wolves getur ekki sótt Arsenal heim
og Leeds getur ekki tekið á móti
Aston Villa þar sem of mörg smit
eru í leikmannahópum Wolves og
Leeds.
Newcastle var nálægt
sínum öðrum sigri í vetur
AFP
Góður David de Gea með eina af markvörslum sínum gegn Newcastle.