Morgunblaðið - 28.12.2021, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021
40 ÁRA Eva María er fædd og uppalin í
Árbænum og býr þar. Hún er með BS-
gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands og er
framleiðslustjóri hjá fjölskyldufyrirtækinu
Eimverki sem framleiðir viskí, gin og
brennivín. „Að vera framleiðslustjóri þýðir
að maður gerir það sem þarf að gera þann
daginn hvort sem það er að þrífa, eima eða
fara til útlanda á sýningar,“ segir Eva
María. Hún er starfandi skáti og formaður
Samtaka íslenskra eimingarhúsa.
Áhugamálin eru útivist og að fara í úti-
legur. „Það var samt mjög takmarkað sem
ég fór í sumar vegna anna í vinnunni. Það
var eiginlega ekkert sumarfrí. Aðallega fór
ég austur á jörðina sem eigum, Bjálmholt í
Holtum, þar sem við framleiðum allt
byggið.“
FJÖLSKYLDA Börn Evu Maríu eru Þorleifur Barri, f. 2006, Svava Dröfn,
f. 2007, og Steinunn Þöll, f. 2011. Foreldrar Evu Maríu eru Sigríður Jóns-
dóttir, f. 1956, aðstoðarleikskólastjóri í Vinagerði, og Sigurbjörn Guðmunds-
son, f. 1955, eimari og kornbóndi.
Eva María Sigurbjörnsdóttir
Ó
lafur Hergill Oddsson
fæddist 28. desember
1946 á Reykjalundi í
Mosfellssveit, fjórði í
röð sex systkina. Hann
er fyrsta barnið sem fæddist á
Reykjalundi og einnig fyrsta ljósu-
barn Valgerðar ljósmóður.
Ólafur gekk í Brúarlandsskóla og
var meðal annars nemandi Klöru
Klængsdóttur, þess nafntogaða
kennara. „Æskan leið við mikið
frjálsræði í faðmi sveitarinnar, þar
sem íbúum fjölgaði jafnt og þétt, aðal-
lega á Reykjalundi, mest við Vinnu-
heimili SÍBS og dælustöð Hitaveitu
Reykjavíkur. Stórir systkinahópar
léku sér saman og sló stundum í
brýnu milli annars vegar Reykja-
lundarkrakkanna og Álafosskrakk-
anna. Athafnasvæðið var víðfeðmt og
nægt hugmyndaflug, hvort sem stol-
ist var á hestbak eða hjólað í leyfis-
leysi til Reykjavíkur.“ Á sumrin var
Ólafur í sveit bæði á Völlum á Kjal-
arnesi og á Fjalli á Skeiðum.
Að loknu barnaprófi lá leiðin norð-
ur í Menntaskólann á Akureyri í
landspróf. Þar lauk Ólafur stúdents-
prófi árið 1965. Hann fór eitt ár sem
skiptinemi á vegum AFS til Detroit í
Michigan, en hóf nám í læknadeild HÍ
árið 1965. Síðar á námsárunum vann
Ólafur við Hitaveitu Reykjavíkur og í
Síldarverksmiðju ríkisins á Vopna-
firði. Embættisprófi í læknisfræði
lauk Ólafur árið 1972. Síðan lá leiðin
til Akureyrar þar sem kandídatsárið
var tekið. Ólafur hefur búið með fjöl-
skyldu sinni síðan þá á Akureyri, ef
undan eru skilin námsár í Svíþjóð,
Kanada og Noregi. Samtals gaf sér-
námið gráður í heimilis- og embættis-
lækningum ásamt geðlækningum.
Lengst af var Ólafur heimilis-
læknir á Akureyri og héraðslæknir
Norðurlands eystra. Síðustu árin var
hann geðlæknir á Sjúkrahúsinu á
Akureyri. Ólafur hefur skrifað marg-
ar greinar í blöð og tímarit. Hann
kenndi einnig hjúkrunarnemum við
Háskólann á Akureyri fyrsta ára-
tuginn sem skólinn starfaði.
Ólafur hefur sinnt ótal mörgum
hugðarefnum og áhugamálum. Mikl-
um tíma varði hann við byggingu
laxastiga og ræktun Selár og Langár
með fjölskyldu sinni ásamt veiðum og
útivist í Vopnafirði, Borgarfirði og
síðar Þistilfirði. Einnig fór hann oft
suður með sjó með fjölskyldunni.
„Eftirminnilegar eru ferðir til að
rækta kartöflur í heitum sandinum
og heimsóknir til Ketils frænda í
Höfnunum.“ Ólafur söng í Stúdenta-
kórnum og greip sjálfur í gítar og
söng áður fyrr. „Ekki þótti mér síður
gaman að taka lagið heima í stofu
með barnabörnunum.“
Ólafur Hergill Oddsson læknir – 75 ára
Afinn Ólafur að syngja og spila með barnabörnunum á Háafelli í Dölum.
Sá fyrsti sem fæðist á Reykjalundi
Hjónin Ólafur viðrar frúna í garðinum í Oddeyrargötunni þar sem þau
bjuggu í rúm fjörutíu ár, oft við mikið fannfergi. Héraðslæknirinn Ólafur.
Við
Hækk
um
í gleð
inni
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Samtal við ættingja, nágranna eða
fjölskyldu hefur jákvæð áhrif á þig. Kannski
bankar ástin upp á á nýja árinu. Vertu
viðbúin/n.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það er óþarfi að taka allt persónu-
lega sem sagt er í hita leiksins. Lærðu af
reynslunni og haltu svo ótrauð/ur áfram,
því þín bíða mörg skemmtileg verkefni.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Tvær manneskjur sem þú elskar
eru ósáttar hvor með aðra, þú getur lítið
gert í því. Taktu af skarið í bílakaupum.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Sýndu varfærni á öllum sviðum,
ekki síst í peningamálunum, því það tekur
oft skamma stund að gera afdrifarík mis-
tök á því sviði. Þú vekur athygli fyrir flottan
stíl.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er nauðsynlegt að huga að hverju
smáatriði ef heildarútkoman á að vera rétt.
Vertu ekkert að hafa áhyggjur af morgun-
deginum, hann mun sjá um sig sjálfur.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Vísaðu fólki kurteislega frá þér þeg-
ar þér finnst það vera orðið yfirþyrmandi
og of frekt á þig. Einhver kemur þér á
óvart.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Passaðu hornin í dag, þau gætu stung-
ist í fólk sem þau ættu ekki að gera. Börn
gera daginn skemmtilegri.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú vilt endilega breyta rétt
svo þú þarft að skoða allar hliðar málsins.
Mundu að mannorðið er meira virði en ver-
aldlegar eignir.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Nú er tíminn til að leggja niður
vopnin og hlæja vel og lengi. Næsta ár
verður þú meira og minna á ferð og flugi.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Fylgdu innsæi þínu þegar um
nýtt ástarsamband er að ræða. Gefðu þér
tíma til að sinna sjálfum/sjálfri þér þótt
aðrir kalli á athygli þína.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú getur gefið ungum ein-
staklingi góða gjöf með því að kenna hon-
um þolinmæði og sjálfsaga. Góður undir-
búningur tryggir góða útkomu.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Enn þarf að hnýta nokkra lausa
enda varðandi fasteignir og önnur verð-
mæti sem þú deilir með öðrum. Ekki eyða
um efni fram.
Til hamingju með daginn
Bolungarvík Dagur Sölvi Tómasson
fæddist 7. febrúar 2021 kl. 4.54 á
Landspítalanum við Hringbraut. Hann
vó 3.530 g og var 49 cm langur. For-
eldrar hans eru Tómas Rúnar Sölva-
son og Rebekka Líf Karlsdóttir. Syst-
ur hans eru Birna Björk Tómasdóttir
og Gabriela Guðlaug Tómasdóttir.
Nýr borgari