Morgunblaðið - 28.12.2021, Side 2
Ef það er einhvern tímann við-
eigandi að halda upp á árið í
glimmerfatnaði þá er það
núna. Um áramótin eru
það pallíettukjólar og
toppar sem eiga upp á
pallborðið. Pallíettu-
kjólar passa vel við
búbblur hvort sem
þær eru í formi sóda-
vatns eða kampavíns.
Við pallíettukjóla er fal-
legt að vera með sanseruð
augu, fallega tösku og í skóm
sem hægt er að dansa á alla nóttina!
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021
Útgefandi Árvakur Umsjón og skrif Marta María Winkel Jónasdóttir mm@mbl.is
Auglýsingar Jón Kristinn Jónsson jonkr@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók
Kristinn Magnússon.
Þ
egar horft er yfir 2021 þá var árið alls ekki eins goslaust og talið var í byrjun. Fólk var ekki
bara heima hjá sér með skítugt hár í sjúskuðum heimafötum. Fólk var á ferð og flugi þótt
það væri kannski ekki að plana neinar heimsreisur. Fólk var með hjartað á réttum stað, fólk
fann ástina, fólk fór í sitthvora áttina, fólk flutti, fólk græddi á tá og fingri, fólk gekk í hjóna-
band, fólk reifst og skammaðist, fólk breytti heima hjá sér og sumir breyttu heiminum.
Lesendur Smartlands kusu konu ársins og að þeirra mati er það Rúna Sif Rafnsdóttir.
Það er óhætt að segja að Rúna Sif hafi breytt heiminum. Ef hún hefði ekki gert það sem hún gerði á árinu
þá eru líkur á því að Eldur Elí, sem nú er níu mánaða, hefði ekki lifað af. Fyrr á þessu ári kom í ljós að
Eldur Elí þyrfti nýja lifur til að geta haldið áfram að lifa. Foreldrar drengsins gátu ekki gefið honum af
sinni eigin þar sem hún passaði ekki við. Þegar Rúna Sif heyrði af þessu, en hún er vinkona foreldra Elds
Elís, þurfti hún ekki að hugsa sig tvisvar um. Hún fór í prufu og þegar í ljós kom að hennar lifur passaði
fyrir litla vin hennar spændi hún af stað frá Tálknafirði og var til í að leggja á sig sjö tíma skurðaðgerð og
ferðalag út í heim til þess að bjarga lífi þessa litla drengs. Það var ekki eins og hún hefði ekkert að gera.
Hún var í námi og á sjálf eiginmann, þrjú börn og tvö stjúpbörn.
Það hreyfir við mér að við lifum í samfélagi sem er komið á þann stað að líta á manneskjur eins og
Rúnu Sif sem konu ársins. Þegar lesendur fengu að kjósa um konu ársins bjóst ég alveg eins við því að
kona ársins að mati lesenda væri sú sem hefði grætt mest af peningum á árinu, sú sem hefði gift sig í
flottasta kjólnum, sú sem hefði meitt annað fólk opinberlega eða sú sem hefði verið í sem minnstum fatn-
aði á Instagram.
Sem betur fer eru lesendur Smartlands með hjartað á réttum stað. Það er nefnilega svo auðvelt að
læka eitthvað á félagsmiðlum eða gefa stóra gjöf og senda svo út fréttatilkynningu um hvað þú ert mikið
stórmenni. Það geta allir lækað og sent út fréttatilkynningu eða grobbað sig af eigin afrekum á félags-
miðlum. En það eru ekki allir til í að leggjast undir hnífinn til að vera raunverulega góðir. Það mætti
gjarnan fjölga í þeim hópi og fækka í öðrum.
Gleðilegt ár!
Lesendur með
hjartað á réttum stað
Marta MaríaWinkel Jónasdóttir
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rúna Sif Rafnsdóttir er
kona ársins að mati
lesenda Smartlands.
Marta María færði henni
blóm og gjafakort í
Mathilda í Kringlunni
þegar hún var stödd í
Reykjavík á dögunum.
Þetta pallíettu-
dress er frá Tom
Ford. Það kost-
ar 148 þúsund
krónur og fæst
á net-a-
porter.com.
Þessi kjóll
kostar
11.990 og
fæst í Vero
Moda.
Taktu á móti
nýju ári eins
og drottning
Þessi toppur fæst í
Vero Moda og
kostar 8.990 kr.
Taktu á móti áramótunum með
eyrnalokkum úr kristal. Þessir eru
frá Roxanne Assoulin og kosta
12.944 kr. á net-a-porter.com.
Þessi er líka
úr Vero Moda.