Morgunblaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021
heilbrigð húð er lífsstíll
Nútíma lífsstíll, og þá sérstaklega aukin mengun og hraði í samfélaginu, hefur áhrif á húðina og veldur henni
streitu. Húðin verður þreytt og þurr og tapar ljóma. Með tímanum hraðast öldrunarferlið sem verður fyrr
sjáanlegt á húðinni. Sannprófað er að /skin regimen/ dregur úr áhrifum streitu á húð og vinnur gegn skaða
sem nútíma lífsstíll veldur.
Við erum öll einstök og það er húðin okkar líka.
Þess vegna býður /skin regimen/ upp á úrval af unisex vörum sem hægt er að blanda saman í
wsérsniðna húðumhirðu.
Þú finnur upplýsingar um vörurnar okkar
og sölustaði á skinregimen.is
/SkinRegimenIceland
@skinregimeniceland
M
argir létu nægja að kaupa nýjan sófa, ný ljós
eða nýjar mottur en þeir sem kusu að skipta
um innréttingar og gólfefni voru hrifnir af
dökkum viðarinnréttingum og var marmara-
borðplatan vinsæl. Fólk skipti plakötum út og
keypti málverk eftir listamenn og hengdi upp
á vegg hjá sér. Blöndunartækin voru svört eða úr brassi og
mikið var lagt upp úr góðri lýsingu. Fólk vildi hlýleika og
mjúkir jarðlitir voru vinsælir og voru margir í því að mála bæði
veggi og loft í sama lit. Þeir sem þurftu að skipta um gólfefni
völdu fiskibeinaparket, terrazzi-flísar eða marmaraflísar. Allt
skapaði þetta heillandi heildarmynd sem var eftirsóknarverð
2021.
Lampi ársins!
Einn vinsælasti lampinn 2021 var litla krúttið frá Verner
Panton, Flowerpot Portable VP9. Um er að ræða lampa sem
sem hægt er að hafa hvar sem er því hann er hlaðinn eins og
sími. Lampinn kemur í ótal litum og passar nánast við hvaða
heimilisstíl sem er. Hann var þó ekki eini lampinn sem gerði
góða hluti því stórar og myndarlegar ljósakrónur voru áber-
andi. Pappakúlan frá Hay gerði til dæmis góða hluti á árinu,
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Persneskar
mottur gerðu allt
vitlaust á árinu.
Það var enginn maður með
mönnum nema eiga heimabar.
Hér sést hvað það er fallegt að
hafa litaðan spegil í bakinu á
barskápnum. Þetta er hönnun
eftir Sæju.
Svona voru
heimilin 2021
Fólk hefur sjaldan haft eins mikinn áhuga á heimilinu og 2021. Þetta byrjaði af
fullum krafti 2020 þegar veiran breytti neysluvenjum fólks. Þegar fólk er meira
heima leggur það meira upp úr því að hafa fallegt í kringum sig. Þegar heimilið
breytist í vinnustað, skemmtistað og griðastað kallar það á aðrar þarfir.
Marta María Winkel Jónasdóttir | mm@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hnausþykkur
marmari naut
vinsælda á árinu.
Hér er baðherbergi
eftir Sæju.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Marmari og svört
blöndunartæki voru
vinsæl. Hér má sjá
eldhús sem hannað
var af Hönnu Stínu
innanhússarkitekt.
Hér má sjá mynd úr eldhúsi á Seltjarn-
arnesi. Þar mætir kampavínslitaður
steinn brass PH-ljósum og opnum hillum.
Ljósmynd/Guðfinna Magg
Myndlist ruddi sér rúms á árinu. Hér
má sjá myndavegg heima hjá Hildi
Sverrisdóttur alþingismanni en hún
var gestur Heimilislífs á árinu.