Morgunblaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 6
Ljóma- vara ársins! Sensai Bronzing Gel spf 6 Þessi afurð hefur notið mikilla vin- sælda í fjölmörg ár og er ein mest selda varan í Hagkaup. Um er að ræða brúnt gel sem annað hvort er borið á and- litið fyrir farða eða það sett létt yfir and- litið með bursta eftir að farðinn er settur á. Gelið er létt og gefur ljómandi áferð sem er svo eftirsótt – sér- staklega á þessum dimmasta tíma ársins. Þá veitir fólki ekki af. Gelið fæst í Hagkaup. Húðdrop- ar ársins! OH MY COD! Þetta einstaka serum er framleitt og þróað á Íslandi og er fyrir andlit og háls. Serumið hentar öllum húðgerðum og inni- heldur einungis 9 inni- haldsefni. Á þessu ári kom það aftur á markað í endurbættri útgáfu. Gott er að bera serumið á andlitið kvölds og morgna til að fá vel nærða og slétta húð. Það fæst í Hagkaup. 6 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021 Augnskuggapalletta ársins! Lancôme Hypnôse Drama Eyeshadow Palette 17 Golden Kaki Á árinu sem er að líða voru augnskuggar sérlega vinsælir en það voru fáir að skyggja á sér augnlokið með bananaskyggingu. Ljósir litir voru vinsælir. Besta augn- skuggapalletta ársins er þessi fimm lita palletta frá Lancôme. Það er auðvelt að vinna litina saman en það sem einkennir þessa litapallettu að hún fer langflestum vel. Fólk sem vill hafa dökk augu getur farið beint í dekksta litinn og sett svo svartan blýant inn í augun en svo er ljósasti perslu- liturinn guðdómlega fallegur hvort sem það er vetur eða sumar. Þessi palletta fæst í Hagkaup. Sjampó og hár- næring ársins! label.m Diamond Dust Shampoo og Diamond Dust Conditioner Um er að ræða einu bestu hártvennu sem hefur komið á markað. Þessar vörur fást á hárgreiðslustofum. Ilmur ársins! Chanel N°5 Á þessu ári fagnar þessi sívinsæli ilmur 100 ára afmæli sem er ein- stakt afrek. Á þessum 100 árum hefur þessi ilmur fært fólk nær von- um og væntingum enda er miklu líklegra að fólk láti drauma sína rætast ef það er ánægt með sig og ilmar vel. Þessi sögufrægi ilmur fæst í Hagkaup. Andlitshreinsir ársins! Shiseido Waso Gel-to-Oil Cleanser Eitt af því sem fólk ætti alltaf að gera ef því er annt um húðina er að hreinsa hana kvölds og morgna. Þessi nýi andlitshreinsir er alveg sérlega góður og frískandi. Hann fjarlægir farða og óhreinindi af andliti, aug- um og vörum. Þessi hreinsir breytist úr geli í olíu þegar hann er borinn á andlitið. Hann fæst á beautybox.is Farðagrunn- ur ársins! Urban Decay All Nighter Primer Til þess að förðunin endist sem lengst er gott að setja farðagrunn á andlit- ið. Þessi hefur að geyma formúlu sem er létt og síli- konlaus. Hún sléttir ásýnd húðarinnar og fyllir létt upp í fínar línur og svita- holur. Þessi farðagrunnur fæst í Hagkaup. Sólarvörn ársins! /skin regimen/ urban shield SPF 30 Þessi sólarvörn gefur húðinni ljóma ásamt því að jafna húðtóninn. Hún ver húðina gegn meng- un og sól. Það er gott að nota þessa sólarvörn á hverjum degi og setja hana undir farða. Hún fæst á útsölustöðum merkisins. Hyljari ársins! Tom Ford Emotionproof Con- cealer Hönnuðurinn Tom Ford ruddist inn í tískuheiminn þegar hann var ráðinn sem hönnuður hjá Gucci fyrir um 30 árum. Í dag hannar hann undir eigin nafni og er með mjög öfluga snyrtivörulínu. Ein besta varan frá honum er þessi hyljari sem þolir nánast allt. Hann festist ekki í húðholum heldur hylur vel svæðið undir augunum. Gott er að setja einn dropa undir hvert auga og svo einn dropa á nefið til að fá örlítið meiri glans. Snyrtivörurnar frá Tom Ford fást á vefsíðum víða um heim eins og á net-a-porter.com. Varalitur ársins! ILIA Color Block Lipstick Amerlight Árið í ár kallaði á ljósa og nærandi varaliti enda frekar glatað að vera með dökkan varalit á sér þegar það er grímuskylda. Vesen ársins var örugglega þegar of dökkur varalitur var settur á varirnar en svo þurfti að setja upp grímu. Þegar gríman var tekin af var varaliturinn búinn að klínast um allt andlitið. Á tímum sem þessum er Amberlight-liturinn frá ILIA dásamlegur. Hann fæst á nola.is. Augnblýantur ársins! Chanel Stylo Yeux Water-proof Long-Lasting Eyeliner Þessi vatnsheldi blýantur frá Chanel er mögulega besti augnblýantur sem hefur komið á markað. Nú er hann fáanlegur í fjölmörgum litum þannig að þeir sem vilja ekki kolsvartan geta tekið dökkfjólubláan, dökkgráan eða bara brúnan. Hann fæst í Hagkaup. And- litskrem ársins! Bioeffect EGF Power Cream Íslenka húð- vörumerkið Bio- effect kom með nýtt krem á markað á þessu ári sem er ríkt af EGF próteininu sem kemur úr byggi. Kremið mýkir upp húðina og hefur góð áhrif á fínar línur og annað slíkt sem á það til að fara fyrir brjóstið á fólki þegar aldurinn færist yfir. Kremið fæst í Lyfju. Maskari ársins! GOSH Copenhagen Just Click It! Löng og þykk augnhár hafa verið móðins allt þetta ár. Til þess að fá ríkulegri augnhár skiptir máli að bera á sig al- mennilegan maskara. Óhætt er að segja að þessi maskari sé sigur- vegari í flokki góðra en þó ekki of dýrra mask- ara. Hann gerir það besta úr öllu saman og meira til. Hann fæst í apótekum. Andlitsmaski ársins! Guinot Masque Dynamisant Anti-Fatigue Face Mask Þessi maski er ljós í myrkrinu. Hann hressir upp á okkur á ögurstundum og tekur burt þreytumerki. Þessi maski gerir gagn þótt fólk hafi hann bara á sér í þrjár mínútur. Það er tilvalið að setja hann á andlitið um leið og þú vaknar og leyfa honum að vera þar á meðan þú hitar þér kaffi. Þegar kaffið er tilbúið er gott að taka maskann af, bera á sig serum, dagkrem og farða. Hann fæst á snyrtistofum. Snyrtivörur ársins 2021!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.