Morgunblaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 10
Guðbjörg keypti lúxusíbúð! Guðbjörg Sigurðardóttir kvikmyndagerðarmaður og eiginkona Ottós Guðjónssonar lýtalæknis festi kaup á glæsilegri íbúð við Austurhöfn í Reykjavík. Íbúðirnar við Austurhöfn þykja afar glæsilegar en hægt hefur gengið að selja þær vegna verðsins. Þær þykja dýrar á íslenskan mælikvarða þótt þær séu ekki dýrar ef miðað er við íbúðir í hjarta erlendra stórborga. Nokkuð áður en fréttir bárust af því að Guðbjörg hefði keypt íbúðina þá setti hún hús þeirra hjóna við Ægisíðu á sölu. Um er að ræða Sigvaldahús sem hefur verið hugsað vel um í gegnum tíðina. Heimili Guðbjargar og Ottós hafa verið eftirsótt og birst hafa myndir af þeim í erlend- um hönnunartímaritum. Í október festi Björk Guð- mundsdóttir kaup á húsinu og borgaði fyrir það 420 milljónir. Sjálf býr hún við Ægisíðu og liggur ekki fyrir hvort það hús fari á sölu eða ekki. 2022 mun leiða það í ljós! Björk Guðmundsdóttir hefur fest kaup á húsinu við Ægisíðu sem áður var í eigu Guðbjargar Sigurðardóttur. Eiður og Ragnhildur seldu í Fossvogi Eiður Smári Guðjohnsen og fyrrverandi eiginkona hans, Ragnhildur Sveinsdóttir, settu einbýlishús sitt við Haðaland í Fossvogi á sölu. Það þótt fréttnæmt enda húsið staðsett á besta stað í Foss- vogi, alveg við dalinn. Eiður Smári hafði búið í húsinu eftir að leiðir hjónanna skildi. Hjónin voru saman í 23 ár en fóru sitt í hvora áttina 2017. Hönnunarparadís við Þingvallavatn Svo var það sumarhúsið við Þingvallavatn sem vakti heimsathygli eftir að umfjöllun um húsið birtist í danska húsbúnartímaritinu Bo Bedre. Arkitektarnir Kristján Eggertsson og Kristján Örn Kjart- ansson hjá arkitektastofunni KRADS hönnuðu húsið. Eigendur hússins eru tónlistarhjónin Tina Dickow og Helgi Hrafn Jóns- son. „Ég vissi það ein- hvern veg-inn strax og við þurftum ekki einu sinni að taka þá um- ræðu formlega hvar við ætluðum að búa. Hér fann ég einhvern frið og leið betur í eig- in skinni en mér hafði liðið í mörg ár. Það voru fylgifiskar þess að vera frægur í Danmörku sem mér fannst erfitt að búa við. Ís- land hef-ur haft mikil áhrif á mig sem manneskju og einnig í starfi. Mér finnst ég vera afkastameiri hér, það er meiri friður. Og það er eitthvað hér í náttúrunni sem hefur sett allt í sam- hengi fyrir mér, það er hærra til himins og meira rými fyrir hugsanir. Kannski er það af því að hér eru fá tré, augun rata auðveldlega hátt til himins því ekkert skyggir á og maður fylg- ist ekki með trjánum fella laufin – það sem þú sérð, það verður hér áfram þótt það sé stutt í dramatíkina undir yfirborðinu. Ís- land hefur sett þetta tilviljanakennda í lífi mínu í samhengi við það sem er stærra,“ sagði Tina í viðtali við Sunnudagsmoggann árið 2015. Hús bestu riffilskyttu landsins vakti athygli! Í febrúar greindi Smartland frá því að parhús nokkurt við Skólagerði í Kópavogi væri komið á sölu. Húsið vakti athygi því þótt það væri bara rúmlega fimmtugt var ásjóna þess frekar slök. Húsið var byggt af einni helstu riff- ilskyttu landsins, Carls Johans Eiríkssonar heitins. Eftir hans dag var húsið selt. Þótt húsið væri 204 fm að stærð þá var ásett verð eingöngu 38,5 milljónir sem þykir ekki mikill penginur fyrir parhús í Kópavogi. Ragnhildur Sveinsdóttir. Í húsinu er ekki verið að veggfóðra með glannalegu vegg- fóðri eða skreyta það með glansandi húsgögnum, panda- marmara og brassi heldur fær mínimalisminn að njóta sín. Carl Johan Eiríksson var þekkt riffilskytta. Þetta glæsilega hús við Þingvallavatn prýddi forsíðu Bo Bedre og vakti mikla athygli. Eiður Smári og Ragnhildur seldu einbýlishús sitt við Haðaland í Fossvogi. Björk Guðmundsdóttir býr nú í öðru húsi við Ægisíðu og því verður ekki langt að flytja dótið. Guðbjörg Sigurðadóttir kvikmyndaframleiðandi keypti lúxusíbúð við Austurhöfn. 10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.