Morgunblaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 33
Slá ársins! Ullarsláin frá sænska lúxusmerk- inu Stenström sem selt er Hjá Hrafnhildi var vinsæl í ár og í fyrra. Alma Möller gerði slána vinsæla þegar hún klæddist henni reglulega á upplýs- ingafundum vegna veirunnar. Það voru fleiri leiðtogar að vinna með þessa ullarslá því Halla Tómasdóttir, sem eitt sinn fór í forsetaframboð, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir alþingismaður sáust í sömu slá. Djammtoppurinn var með endurkomu! Fyrir um 20 árum áttu allir djamm- topp sem notaður var við Diesel- gallabuxur. Síðan djammtopp- urinn var jarðaður hefur hann átt erfitt uppdráttar en reis upp á árinu. Hann var sér- lega vinsæll á Bankastræti Club og ekki þótti verra ef það var bert á milli. Gleraugu ársins! Stór og mikil gleraugu voru áberandi á árinu sem er að líða. Ýmist var fólk með stórar plastumgjarðir eða gyllt stór gleraugu í anda áttunda áratug- arins. Kristín Jónsdóttir náttúruvár- sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands var áberandi í fréttum á árinu þegar það fór að gjósa í Reykjanesskaga. Til að byrja með var hún eins og steríótýpa af vísinda- manni, frekar litlaus, en þegar leið á var eins og hún hefði ráðið sér einkastílista. Hún varð fínni og fínni með hverj- um deginum sem leið og fréttum af henni fjölgaði. Það voru ekki bara nokk- ur ný gleraugu sem bætt- ust í safnið heldur nýir kjól- ar og ný hárgreiðsla. Þegar kastljósið beindist að nýju gleraugunum hennar varð hún ekkert ánægð og sagði að hún vildi láta meta sig eftir hæfni í starfi. Dýr merkjavara! Velmegunin var töluvert sýnileg hjá ákveðnum hópi. Þau merki sem voru mest áberandi á árinu voru Gucci, Fendi, Burberry og Dior. Kærustuparið Guðmundur Birkir Pálmason kíróp- raktor og Lína Birgitta Sigurð- ardóttir áhrifavaldur sáust helst ekki öðruvísi en í vel „lógóuðum“ fatnaði og var Gucci þar of- arlega á blaði. Þau eru til dæmis mjög hrifin af beige- litnum og eins og sást glögg- lega á Smartlandi þetta árið voru þau svolítið að skiptast á fötum eins og góð kærustupör gera. Birgitta Líf var á sama vagni þetta árið og líka Sunneva Eir Einarsdóttir. ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021 MORGUNBLAÐIÐ 33 Michelle Obama í vín- rauðum út- víðum buxum, vínrauðri peysu og vín- rauðri kápu. Allt í stíl! Michelle Obama var áberandi flottust þegar hún klæddist síðum vín- rauðum buxum, vínrauðri peysu og vínrauðri kápu í Washington fyrr á árinu. Þetta var svolítið það sem fólk var að vinna með á árinu. Að vera í öllu sam- litu en reyna eftir fremsta megni að vera ekki í svörtu var málið 2021. Tara Sif, Gullý og Telma Fanney mættu í sínum einstöku djamm- toppum á Banka- stræti Club. Jóhanna Helga Jensdóttir og Sunneva Eir Einarsdóttir í djammtoppum á Bankastræti Club. Hafdís Jónsdóttir og Birgitta Líf Björnsdóttir eru mikið fyrir merkjavörur og hafa á árinu skiptst á að klæðast jakkanum sem Hafdís er í á myndinni. Ásdís Halla Bragadóttir í samlitu frá toppi til táar líkt og Michelle Obama fyrr á árinu. Hún var bara að vinna með annan lit. Halla Tómasdóttir mætti eins og Alma Möller í sjónvarpsþátt. Alma Möller veitti kven- peningi land- ins innblástur þegar kom að fatastíl enda alltaf sérlega smart til fara. Kristín Jóns- dóttir eftir að búið var að stílisera hana. Sláin frá Stenström var vinsæl á árinu. Hún fæst Hjá Hrafnhildi. Helga Margrét Agnarsdóttir er hér í bleikum pallí- ettukjól en slíkir kjólar voru mjög vinsælir á árinu. Eliza Reid var í samlitu dressi frá Eygló. Ralph Lauren-jakkar með lógói voru mjög vinsælir á árinu. Þessi hefur verið fáanlegur í Mathilda í Kringlunni. Erna og Guðrún Sörtveit í ljósum stórum kápum en slíkar kápur voru mjög áberandi á árinu. Gummi kíró og Lína Birgitta sáust ekki öðruvísi en í merkjavöru. Hér eru þau í Gucci-fötum en hann er með veski frá Dior en hún er með veski frá Cha- nel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.