Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Blaðsíða 2
Hver ert þú, Bergdís?
Ég er sjálfstætt starfandi leikkona, útskrifuð frá Rose Bru-
ford-skólanum í Bretlandi. Ég stofnaði leikhópinn Spindrift
með bekkjarsystkinum mínum þar, en í dag erum við sex
virkar í leikhópnum; þrjár íslenskar og þrjár finnskar leik-
konur.
Hvaða málefni fjallið þið um?
Manneskjan er í fyrirrúmi og ímynd hennar og erum við mik-
ið að skoða kvennasögur. Oft eru þessar sögur tabú. Við leikum
á ensku, það er vinnutungumálið okkar, en höfum líka notað ís-
lenskuna stundum í bland.
Verkið THEM, hver er hugmyndin að baki því?
Um er að ræða sviðsverk í vinnslu sem fjallar um eitraða karl-
mennsku og hvernig hún lifir inni í okkur. Við tókum viðtöl við fjölda
karlmanna sem við byggjum verkið á, en auðvitað erum við ekki hlut-
lausar sem konur með okkar sjónarmið líka. Við áttum falleg og góð
viðtöl við fólk sem skilgreinir sig sem karlkyns.
Er þetta ein saga eða margar?
Þetta eru nokkrar sögur og leikum við allar nokkrar persónur, jafnt kon-
ur sem menn.
Verður þetta sýnt oftar?
Já, sýningarnar á sunnudag eru eins konar forsýningar en hin eiginlega
frumsýning verður í júní á Reykjavík Fringe Festival og svo túrum við með
verkið á fleiri Fringe-hátíðum erlendis. Vonandi fáum við svo að sýna það
áfram ef við fáum styrki.
Er þetta gamanverk eða drama?
Það er blanda, þetta er mjög kómískt en getur líka snert við fólki.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
BERGDÍS JÚLÍA JÓHANNSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.12. 2021
Í FÓKUS
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
& "!(%'$#
"$&'%#!
"-+ ! !" &,'*)%(!$#
Kæli- & frystiklefar
í öllum stærðum
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Gjafakort Einstök
jólagjöf
L
átinn er á Hesteyri Hergils Höpfnersson ritvélvirki. Banamein hans
var nostalgía. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjórtán uppkomin
börn, hvert öðru ófríðara en Hergils var óvenjulega barnljótur mað-
ur.“ Munið þið eftir að hafa lesið þessa frétt eða getið þið ímyndað ykkur að
þið eigið einhvern tíma eftir að lesa hana? Nei, ég bjóst ekki við því. Þá eruð
þið ábyggilega að horfa á barnljótleikann enda myndi slíkt aldrei koma fram í
andlátsfrétt á Íslandi – enda rakinn dónaskapur og vanvirðing við hinn látna.
En hvað með hitt, nostalgíuna? Er hægt að deyja úr nostalgíu, eða þáþrá,
eins og kalla má það á hinu ástkæra
ylhýra? Segið þið mér!
Ég viðurkenni að ég hafði aldrei
velt þessu sérstaklega fyrir mér fyrr
en ég datt inn í fróðlegan þátt um
arfleifð rómantísku stefnunnar í
Ríkissjónvarpinu í vikunni. Þar bar
nostalgíu á góma. Nostalgía er hug-
tak sem merkt getur tvennt: ljúfsár-
an söknuð til fyrri tíma (þegar allt
var einfaldara, betra, viðkomandi
var yngri o.s.frv.) og í öðru lagi
heimþrá. Orðið kom fyrst upp árið
1688 þegar Johannes Hofer, sviss-
neskur læknastúdent, var að reyna
að þýða þýska orðið Heimweh sem
merkir heimþrá. Johannes þessi var einmitt í forgrunni í upphafi þáttarins
en hann mun hafa pælt heilmikið í áhrifum og mögulegum afleiðingum nost-
algíu og gat ekki útilokað að hægt væri að sálast úr þeirri hvimleiðu kveisu.
Sjálfum brá mér nokkuð við þessi tíðindi enda býsna nostalgískur eða
þáþráinn að upplagi. Hef til dæmis miklu meiri áhuga á ensku knattspyrn-
unni á áttunda og níunda áratug síðustu aldar en árið 2021 – sem er vesen út
af því að afar lítið er um beinar útsendingar frá leikjum frá þessum tíma. Svo
hlusta ég svo til eingöngu á þrass frá níunda áratugnum og skil ekki fyrir
mitt litla líf hvers vegna öll önnur tónlist hljómar ekki nákvæmlega eins og
það. Eðli málsins samkvæmt er ég í miklu uppnámi yfir þessari róttæku upp-
stokkun ráðuneyta hér heima enda þótt ég viti innst inni að 21. öldin er runn-
in upp og ugglaust snjallt að hafa ekki allt eins og það var haustið 1977.
Talandi um sjónvarp þá er að finna hér í blaðinu grein um kostulega rit-
deilu árið 1961, þar sem menn tókust á um það hvort hleypa ætti skaðræðinu
inn í landið. Mikil nostalgía svífur þar yfir vötnum, einkum hjá menningar-
spjótum þessa lands sem höfðu ekki trú á því að þessari þjóð væri treystandi
til að fara sér ekki að voða fyrir framan imbann.
Ó, hvað ég vildi að árið væri 1961!
Banamein hans
var nostalgía
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’
Hann mun hafa pælt
heilmikið í áhrifum
og mögulegum afleið-
ingum nostalgíu og gat
ekki útilokað að hægt
væri að sálast úr þeirri
hvimleiðu kveisu.
Þóra Guðmundsdóttir
Nei, ég er rétt að gera það núna.
SPURNING
DAGSINS
Ertu
búin(n)
að kaupa
margar
jólagjafir?
Óttar Gunnlaugsson
Ég er búinn að kaupa handa
konunni og börnunum, en ekki samt
búinn.
Guðrún Fransdóttir
Ég þarf þess ekki. Ég og börnin mín
þrjú leggjum andvirði gjafa frekar
fyrir og förum til útlanda.
Sverrir Borgþór
Aðalbjörnsson
Ég er ekki búinn að kaupa eina! Góð
áminning.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Daniel Ek.
Tvær sýningar á THEM, samið af norræna leikhópnum Spindrift
Theatre, fara fram í Dansverkstæðinu sunnudagskvöldið 5. desem-
ber kl. 18 og 21. Grímuskylda er og tólf ára aldurstakmark en ekki
þarf að fara í hraðpróf. Miðar fást á tix.is.
Eitruð
karlmennska