Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Side 5
Opið bréf númer fjögur til heilbrigðisráðherra
Grein fyrrum heilbrigðisráðherra, „Mikilvægi bólusetninga“, sem birt var í Morgunblaðinu
9. nóvember sl. vekur upp margar spurningar sem nauðsynlegt er að nýr heilbrigðisráðherra
taki ábyrgð á að svara. Um er að ræða málefni sem snýr ekki aðeins að lýðheilsu heldur
einnig að borgaralegu frelsi og almennum mannréttindum. Nú sem fyrr ber stjórnvöldum að
leggja heildarmat á þær aðgerðir sem þau standa fyrir, þ.m.t. áhættu, kostnað og ábata.
Á þessum forsendum er þess óskað að heilbrigðisráðherra veiti skilmerkileg svör við
eftirfarandi spurningum:
Með hliðsjón af þeim miklu almannahagsmunum sem í húfi eru væntum við þess að ráðherra
víki sér ekki undan því að bregðast skjótt við með skýrum svörum við þessu bréfi og fyrri
bréfum sem Samtökin Frelsi og ábyrgð hafa sent heilbrigðisráðherra. Við væntum þess að
sjálfsögðu að svör ráðherra verði studd tilvísunum í vísindalegar rannsóknir og gögn.
Borgaralegt viðnám er eina vörnin gegn ofríki og harðstjórn.
Virðingarfyllst,
SAMTÖKIN FRELSI OG ÁBYRGÐ
www.frelsiogabyrgd.is
VIÐVILJUM SVÖR
1. Hafa heilbrigðisyfirvöld, þ.m.t. landlæknir, lagt mat á væntan ábata af sprautuherferðinni
í samanburði við skaðleg áhrif sóttvarnaraðgerða á andlega líðan barna og ungmenna?
2. Hafa heilbrigðisyfirvöld, þ.m.t. landlæknir, lagt mat á kostnaðinn sem umfangsmiklar
sóttvarnaraðgerðir og -auglýsingar stjórnvalda kann að valda í framtíðinni í formi álags vegna
heilsukvíða, sýklahræðslu o.fl.?
3. Á hvaða vísindalegu forsendum eru einkennalaus börn sett í sóttkví og einangrun
með því álagi og áhrifum sem það hefur á líf þeirra og heilsu?
4. Rannsóknir benda til að líkur á hjartavöðvabólgum hjá 12 – 17 ára börnum
margfaldist eftir tilraunasprautu. Á hvaða vísindalega forsendum / hagsmunamati byggir sú
ákvörðun að sprauta þau með tilraunaefnum sem langtímarannsóknir skortir um?
5. Hvað hafa mörg börn/unglingar hlotið alvarlegan skaða af SARS-COV2 sýkingu hér á
landi og hversu mörg börn/unglingar hafa hlotið alvarlegan skaða af sprautunum?
6. Hvern telja Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Alma Dagbjört Möller
landlæknir ábatann vera sem réttlæti slíkan fórnarkostnað á líf og heilsu barnanna?
7. Á hvaða vísindalegu forsendum byggði sú staðhæfing Björns Rúnars Lúðvíkssonar,
yfirlæknis ónæmisfræðideildar LSH í Kveik 5. október sl., að ekki væri um tilraunaefni að ræða?