Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.12. 2021 LESBÓK SPÉ Væri Ozzy Osbourne ekki tónlistarmaður í fullu starfi ætti hann að vera uppistandari á sviði. Þetta er sjónarmið vinar hans og samstarfsmanns til fjölda ára, gítarleikarans Zakks Wylde. Í samtali við bandarísku sjónvarpsstöðina AXS TV segir Wylde merkilegt að menn komi yfirhöfuð einhverju í verk þegar þeir eru að vinna með Ozzy enda standi spébunan án afláts upp úr goðsögninni. „Eftir fimm mínútur er maður kominn í gólfið, grenjandi úr hlátri. Hann er stöðugt að gera gys að sjálfum sér eða þá því sem er á seyði í heiminum. Hann er engum líkur. Óborganlegur.“ Þegar Wylde spurði Ozzy hvernig honum líkaði nýjasta plata bands síns, Black Label Society, svaraði sá gamli: „Hún er æð- isleg, sérstaklega þegar maður tekur hana af fóninum.“ Ætti að vera í uppistandi Ozzy er æringi af Guðs náð. AFP GLÆPIR Bollywoodstjarnan Raveena Tandon er í aðalhlutverki í nýjum indverskum glæpaþáttum, Ar- anyak, sem koma í heild sinni inn á efnisveituna Net- flix 10. þessa mánaðar. Þar leikur hún hæfileikaríka og harðsnúna lögreglukonu úti á landi sem fær „mál lífs síns“ inn á borð til sín. Ferðamaður er horfinn í skóginum en fljótt kemur á daginn að meira býr að baki. Parambrata Chatterjee leikur félaga hennar úr borgarlögregl- unni sem hún er þvinguð til að vinna með. Af öðru nýju netlixefni í desem- ber má nefna seríu 2 af Emily in Par- is og The Witcher sem fjallar um sjálfstætt starfandi skrímslabana. Raveena Tandon er vinsæl í heima- landi sínu. AFP Ted Nugent Rokkhundar í hár saman DEILUR Bólusetningar eru há- pólitískt mál í Bandaríkjunum. Gamlir rokkhundar láta ekki sitt eftir liggja í þeirri umræðu frekar en aðrir og á dögunum sletti Ted Nugent aurnum yfir Gene Simmons fyrir að kalla óbólusetta „óvininn“ í baráttunni gegn kórónuveirunni. Nugent stakk niður penna á Twit- ter, sagði Simmons toppmann á alla kanta en hér væri hann í ruglinu. Honum væri þó vorkunn þar sem hann hefði búið svo lengi í Los Ang- eles, þar sem vinstrimenn væru búnir að heilaþvo fólk upp til hópa. „Pólitísk rétthugsun markar enda- lok mannkyns.“ Gary Holt úr Ex- odus, sem sjálfur hefur fengið KÓ- VEIS, er á öðru máli; segir þá sem ekki láta bólusetja sig vera að tefja baráttuna gegn veirunni og draga hana að óþörfu á langinn. Í huga flestra er þungarokkið tengdara myrkri og drunga en sól og salsa enda varð sú göfuga stefna til í grámóskunni í Birming- ham á Englandi fyrir ríflega hálfri öld. Þar sem sjaldan sést til sólar. Þess vegna sætir tíðindum að mörg af áhrifamestu málmböndum sögunnar koma einmitt frá mjög hlýjum og sól- ríkum stöðum. Þrasströllin Metallica, Slayer og Megadeth eru öll frá Kali- forníu. Eins Guns N’ Roses. Pantera gerði út frá Texas og Sepultura var stofnuð í Belo Horizonte í Brasilíu, þar sem hitinn getur farið yfir þrjátíu gráður í öllum mánuðum ársins. Viss- uð þið það? Meira að segja Iron Mai- den er með rætur í þeim hluta Lund- únaborgar, austurbænum, þar sem sólin sest aldrei; alltént ekki í huga íbúanna. Hvernig annars eiga þeir að geta borið þann þunga kross að halda með West Ham United? En það er auðvitað allt önnur saga. Fyrir allt annað blað. Af yngri málmböndum sem látið hafa til sín taka má nefna Korn, Deftones, System of a Down og Avenged Sevenfold frá Kaliforníu og Trivium frá Flórída sem einmitt er meginviðfangsefni þessarar greinar. Tíunda hljóðversplata fjórmenn- inganna, In the Court of the Dragon, kom út fyrir skemmstu og hefur hlot- Trivium-liðar í sínu fínasta pússi á Grammy-hátíðinni 2019. Paolo Gregoletto, Corey Beaulieu, Matt Heafy og Alex Bent. Reynt á þan- þol málmsins Málmbandið Trivium frá Flórída hefur fengið glimrandi dóma fyrir nýjustu breiðskífu sína, In the Court of the Dragon. Málmskýrendur segja bandið hafa skipað sér í fremstu röð og sé þess nú umkomið að fylla stærstu leikvanga heims. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Matt Heafy er jafnvígur á hreinan og óhreinan söng, eins og það kallast í málmheimum. Raddþjálfari hans í seinni tíð er hinn virti Ron Anderson. Matt Heafy hefur frá upphafi verið helsti textasmiður Trivium. Textar hans þykja ljóðrænir og höfundurinn á köflum forn í máli sem helgast ekki síst af dálæti hans á grískri goða- fræði. Gaman yrði að vera fluga á vegg ef þeir fengju sér einhvern tíma kaffibolla saman, Heafy og Snæbjörn Ragnarsson, hirðskáld Skálmaldar, málmbandsins okkar góða, en sá síð- arnefndi er sem kunnugt er afar vel að sér í norrænni goðafræði. Æska Heafys var ekki alltaf dans á rósum og hann hefur viðurkennt að hafa íhugað sjálfsvíg á yngri ár- um. Um það fjallar hann stundum í textum sínum, einkum á fyrstu plötunum. Eins heimilisofbeldi og misnotkun á börnum, sem hann reyndi ekki á eigin skinni en þekkir gegnum félaga sína. Þá vísar hann gjarnan í brennandi orðræðu samtímans, svo sem samfélags- miðla og gervigreind, og eilífðarmál eins og trú og stríð. Þykir á köflum forn í máli Umslag In the Court of the Dragon. Raveena Tandon er vin- sæl í heimalandi sínu. Glímir við glæpamál lífs síns

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.