Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Qupperneq 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Qupperneq 29
ið einróma lof gagnrýnenda sem bera Trivium á höndum sér. Miðillinn Distorted Sound hendir í 10 af 10 mögulegum og segir Trivium hafa skipað sér á bekk með fremstu málmböndum þessa heims. „Þeim hefur tekist að reyna á þanþolið án þess að ganga á grunngildi sín sem gert hafa þá að einu virtasta bandi heims. Þannig hefur þeim tekist að gera eina af sínum bestu plötum, ef ekki þá allra bestu til þessa.“ Miðillinn Wall of Sound er líka í tí- unni. „Núna er Trivium bara Trivium, og In the Court of the Dragon er enn ein afurðin sem skilgreinir hvað átt er við með því – þeir eru eitt af bestu málmböndum heims.“ Hið gamalgróna málmgagn Kerr- ang! gefur plötunni fjórar stjörnur af fimm fáanlegum og segir hana eina bestu málmafurð ársins. Ljóst sé að Trivium-liðar séu reiðubúnir að leggja undir sig stærstu leikvanga þessa heims. „Þessi lög eru samin til að hljóma á stærstu sviðunum, og eiga það skilið.“ Miðillinn Louder Sound splæsir í fjórar og hálfa stjörnu af fimm mögu- legum og segir: „Þegar kemur að því að leika nútímalegan málm hefur Trivium staðið fremst um nokkra hríð. Það breytist ekki hér og In the Court of the Dragon er geggjuð þungarokksplata. Efaðist einhver?“ Ræturnar liggja víða Trivium er líklega með dýpstar rætur í þrassi en einnig gætir augljósra áhrifa frá tærmálmi, málmkjarna, dauðarokki og jafnvel grúvmálmi. Þið munið að við lifum á tímum póstmód- ernisma. Bandið var stofnað í Orlando árið 1999 og svo merkilega vill til að enginn upprunalegur meðlimur á ennþá aðild að því. Matt Heafy, söngv- ari og gítarleikari, slóst þó í hópinn á stofnárinu eftir að þáverandi söngvari, Brad Lewter, kom auga á hann þrett- án ára gamlan í hæfileikakeppni í skólanum þeirra. Til að byrja með spilaði Heafy aðeins á gítar en Travis Smith trommari taldi hann snemma á að taka sönginn líka að sér enda þótt Heafy hefði á þeim tíma ekki mikla trú á hæfileikum sínum. Saga sem heimfæra má á átrúnaðargoð hans, James Hetfield í Metallica. Heafy lærði á tenórsaxófón sem drengur en er sjálfmenntaður í gít- arleik og söng. Það kom honum síðar í koll en eftir að hafa beitt röddinni lengi kolrangt við að rymja gaf hún sig á tónleikum árið 2014. Það varð til þess að Heafy fór að ráðum kollega síns úr Avenged Sevenfold, M. Sha- dows, og leitaði til hins virta radd- þjálfara og óperusöngvara Rons And- ersons, sem meðal annars hefur þjálfað Axl Rose, Chris Cornell og Adele. Eftir það hefur Heafy látið hafa eftir sér að það sé í raun auðveld- ara að rymja á sviði en að bjóða eig- inkonunni góðan dag á morgnana. Trivium var eiginlega bara tríó þeg- ar fyrsta platan, Ember to Inferno, kom út 2003. Heafy söng og spilaði á gítar, Travis Smith á trommur og Brent Young á bassa. Gítaristinn Co- rey Beaulieu bættist við skömmu síð- ar og Paolo Gregoletto leysti Young af hólmi ári síðar. Báðir eru þeir enn í bandinu en Young lést á síðasta ári. Smith gekk úr skaftinu 2009 og síðan hafa ýmsir menn haldið um kjuðana, allt miklir vargar, svo sem tónlistin gerir kröfu til, nú síðast Alex Bent sem hertur er í eldi dauðarokksins með böndum á borð við Dragonlord og Brain Drill. Mikið séní þar á ferð. Svolítil rússíbanareið Trivium fékk fljúgandi start á plötum á borð við Ascendancy (2005) og Shogun (2009), þar sem Heafy vottar uppruna sínum virðingu sína en móðir hans er japönsk. Hann fæddist raun- ar þar um slóðir en hefur búið í Or- lando frá eins árs aldri og er víst ekk- ert alltof sleipur í japönskunni. In Waves (2011) hélt mönnum við efnið en á Vengeance Falls (2013) fór að halla undan fæti enda David Draiman úr þeirri hroðalegu sveit Disturbed kominn með puttana í takkana í stúd- íóinu. Silence in the Snow (2015) var síðan dauðhreinsuð og afleit og marg- ir óttuðust að Trivium hefði verið fórnað á altari Mammons, þeirra á meðal þessi penni sem fylgst hefur með bandinu svo að segja frá upphafi. The Sin and the Sentence (2017) kom því þægilega á óvart en þar end- urheimti Trivium sína sterku og ágengu rödd og lýsti því um leið yfir að framvegis yrði listagyðjunni einni þjónað. Við það var staðið á What the Dead Men Say, sem kom út í fyrra, og við vitum allt um In the Court of the Dragon. Hún er negla! AFP 5.12. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 FJAÐRAFOK A Very British Scandal nefnast nýir dramaþættir sem frum- sýndir verða í breska ríkissjónvarpinu, BBC, í mánuðinum. Þar er til umfjöll- unar frægt skilnaðarmál hertogans og hertogaynjunnar af Argyll árið 1963 en þau voru áberandi fólk á þeim tíma. Hertoginn sakaði spúsu sína opinber- lega um að halda fram hjá sér eftir að honum bárust í hendur ljósmyndir af henni í félagsskap annarra karla. Úr varð mikið fjaðrafok. Claire Foy og Paul Bettany eru í helstu hlutverkum en handritið skrifar Sarah Phelps. Hertogahjón skilja með látum Claire Foy leikur hertogaynjuna. AFP BÓKSALA 1.-29. NÓVEMBER Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 Sigurverkið Arnaldur Indriðason 2 Lok, lok og læs Yrsa Sigurðardóttir 3 Lára bakar Birgitta Haukdal 4 Úti Ragnar Jónasson 5 Útkall – í auga fellibylsins Óttar Sveinsson 6 Lára lærir á hljóðfæri Birgitta Haukdal 7 Sextíu kíló af kjaftshöggum Hallgrímur Helgason 8 Fjárfestingar Aníta Rut Hilmarsdóttir, Kristín Hildur 9 Þín eigin ráðgáta Ævar Þór Benediktsson 10 Alexander Daníel Hermann Dawidsson: Bannað að eyðileggja Gunnar Helgason 11 Jól á eyjahótelinu Jenny Colgan 12 Jómfrúin Jakob E. Jakobsson 13 Prjón er snilld Sjöfn Kristjánsdóttir 14 Heima hjá lækninum í eldhúsinu Ragnar Freyr Ingvarsson 15 Litlir lærdómshestar – stafir Elisabeth Golding 16 Læknirinn í engla- verksmiðjunni Ásdís Halla Bragadóttir 17 Rætur – á æskuslóðum minninga og mótunar Ólafur Ragnar Grímsson 18 Jól með Láru Birgitta Haukdal 19 Bílamenning – aksturs- gleði liðinnar aldar í máli og myndum Örn Sigurðsson 20 Horfnar Stefán Máni Allar bækur Tveggja ára dóttur minni finnst gaman að láta lesa fyrir sig. Hún biður mig um að „lesa bók“ í tíma og ótíma. Ég held að hún fari þess á leit við mig 20-30 sinnum á dag, og það við ólíklegustu tækifæri. Fyrir skemmstu bað hún mig um að lesa bók á rauðu ljósi. Hún var ekki orðin hálfs árs þegar hún bar kennsl á Míu, Múmínsnáðann og Línu Lang- sokk, og þessa dagana eru Einar Áskell, pabbi hans og Milla í guða- tölu. Engan asa, Einar Áskell er mikil eftirlætisbók hjá okkur feðg- inum. Þar segir frá því þegar Ein- ar, pabbi hans og Milla fara í innkaupaleið- angur á laugar- degi. Það liggur hálfilla á pabba Einars, og þeg- ar hann ætlar að setja vör- urnar á sinn stað verður honum heldur betur á í messunni. Í morgunsárið eftir Junko Naka- mura í íslenskri þýðingu Sverris Norland er lík- lega sú bók sem ég hef lesið hvað oftast fyrir hana. Hún er hugljúf og falleg, og skreytt sérlega glaðlegum teikningum. Ég get ekki mælt nógsamlega með barnaljóðabókum Þórarins Eldjárns. Þær eru óhemju skemmtilegar. Dóttir mín rak upp stór augu um daginn þegar ég las fyrir hana ljóðið „Bóka- gleypir“ sem fjallar um Guð- mund á Mýrum sem borðar bækur/það byrjaði uppá grín og varð svo kæk- ur. Og síðan eru myndirnar henn- ar Sigrúnar yndislegar. Nætur- bókin eftir Mauri Kunnas í íslenskri þýðingu Þor- steins frá Hamri er iðu- lega dregin fram skömmu fyrir háttatíma. Dóttir mín hefur sér- stakt dálæti á flugvallaropnunni. Stundum látum við bara hana duga. Og oftar en ekki slær bókin Allir geispa eftir Anitu Bij- sterbosch botninn í dag- inn. Þar segir meðal annars frá kanínu sem geispar afar hljóð- lega, flóðhesti sem geispar þrisvar sinnum, og krókódíl sem sýnir all- ar tennurnar þegar hann geispar. ÞÓRÐUR SÆVAR JÓNSSON ER AÐ LESA Beðinn um að lesa bók á rauðu ljósi Þórður Sævar Jónsson er þýðandi og skáld. Komdu til okkar í mat og drykk Fjölbreyttur og spennandi matseðill þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi Kringlan ... alltaf næg bílastæði Borðabókanir á www.finnssonbistro.is eða info@finnssonbistro.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.