Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Side 32
Jólabragur verður á dagskrá Ríkissjónvarpsins næstu vik- urnar, eins og vera ber. Síðasta lag fyrir kvöldfréttir verður tengt jólunum alla virka daga í desember og Jón Ólafsson pí- anóleikari fær gesti til sín í sjónvarpssal á föstudagskvöldum; næst er röðin komin að Ragnheiði Gröndal og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Diddú, og í lokaþættinum, 17. desember, kíkja Kristjana Stefánsdóttir og Þorsteinn Einarsson úr Hjálmum í heimsókn. Sama kvöld verður á dagskrá þátturinn Jóla- lög vikunnar með Gísla Marteini, þar sem sýndar verða upptökur frá flutningi hinna ýmsu listamanna á jólalögum í þætti Gísla á aðventunni undanfarin ár. Laugardags- kvöldin 11. og 18. desember verða svo Hraðfréttajól á dagskrá. „Hraðfrétta- drengirnir Benni og Fannar eru fengnir til að koma þjóðinni í jólaskap, með mjög stuttum fyrirvara, á þessum for- dæmalausu tímum og það er ekkert víst að það klikki,“ segir í kynn- ingu á vefsíðu RÚV. Hraðfréttajól og jólatónar Í dag er annar í aðventu og Ríkissjón- varpið er óðum að komast í jólaskapið. SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 2021 MADE IN DENMARK Lama rúmin eru vönduð, falleg og þekkt fyrir að veita heilbrigðan og góðan svefn. Þau hafa verið framleidd í Danmörku síðan 1939. Hægt er að fá þau með eða án stillanlegum botni. Í boði eru þrír litir á áklæði og margar tegundir fóta og rúmgafla. Lama Premium rúmin eru með sérstakan mjóbaks- stuðning og meiri dýpt fyrir axlir. Ef þú vilt að öxlin detti meira ofan í dýnuna er Premium línan fyrir þig. Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 554 6969 lur@lur.is • lur.is LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL Alan Ball sendir fyrir frá hægri. Gordon McQueen stekkur hæst allra og skallar frá. En aðeins í áttina að Kevin Keegan sem skyndilega er flatur í loftinu og klippir knöttinn í fjærhornið; gjörsamlega óverjandi fyrir Paddy Roche í markinu. „Stór- kostlegt mark. Geggjað mark hjá Keegan,“ gellur í goðsögn- inni Brian Moore sem er að lýsa leiknum í sjónvarpinu. Áhorf- endur á The Dell ganga af göfl- unum. En hvað er a’tarna? „Ég held að markið fái ekki að standa,“ heldur Moore áfram. „Línuvörð- urinn er með hendur á mjöðm- um sér. Hvers vegna í ósköp- unum?“ Já, þetta glæsimark var dæmt af, á „óljósum for- sendum“, eins og Morgunblaðið orðaði það í uppgjöri sínu eftir helgina. Skýringin var rang- staða; ekki á Keegan sjálfan heldur félaga hans í Southamp- ton-liðinu, David Armstrong, sem var sannarlega fyrir innan varnarlínu Manchester United – án þess þó að hafa nein áhrif á leikinn. Mark sem aldrei hefði verið dæmt af í samtímanum. Í dag eru fjörutíu ár liðin frá því að Keegan gerði þetta fræga (ó)mark. Mögulega það falleg- asta í sparksögunni sem dæmt hefur verið af. Armstrong bætti hins vegar fyrir axarskaft sitt með því að skora sigurmarkið á lokamínútu leiksins, 3:2. GAMLA FRÉTTIN Frægasta (ó)markið Goðsögnin Kevin Keegan í leik með Southampton síðla árs 1981. AFP ÞRÍFARAR VIKUNNAR Jamie Lee Curtis kvikmyndaleikkona Óskar Guðmundsson rithöfundur Anderson Cooper fréttamaður Hraðfréttabræðurnir Bene- dikt Valsson og Fannar Sveins- son snúa aftur fyrir jólin. Hver er betur til þess fallinn að syngja inn jólin en hún Diddú okkar allra? Næsta föstudag á RÚV. Morgunblaðið/Styrmir Kári Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.