Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.1990, Síða 2
25. þing Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra.
Tuttugasta og fimmta þing Sjálfs-
bjagar, l.s.f., verður haldið í
nýjum samkomusal Sjálfsbjargar-
hússins að Hátúni 12 í Reykjavík,
dagana 21.-23. júní næstkomandi.
Aðalmál þingsins verða, endur-
skoðun laga um málefni fatlaðra
og húsnæðismál.
Rétt til þingsetu eiga um það bil
50 fulltrúar frá 15 félagsdeild-
um.
Vinnu- og dvalarheimili Sjálfs-
bjargar býður hér með hreyfihöml-
uðum allsstaðar að af landinu
nýja þjónustu. Akveðið hefur
verið að ráðstafa einu herbergi á
Vinnu- og dvalarheimilinu til
dvalar fyrir hreyfihamlaða í
skemmri tíma, allt að 3 mánuðum.
Nánari upplýsingar um þjónustu
veitir hjúkrunarforstjóri Vinnu-
og dvalarheimilisins milli kl. 11
og 12, mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga í síma 29133.
í húsi Sjálfsbjargar við Hátún 12
í Reykjavík fer fram margvísleg
starfsemi. Verða hér á eftir
nefndir helstu starfsemiþætt-
irnir:
1. Vinnu- og dvalarheimili fyrir
45 mikið fatlaða einstakl-
inga. Þeir búa í ein-
staklingsherbergjum og dreif-
ist hópurinn á 3 hæðir
hússins.
2. Endurhæfing og sundlaug.
í húsinu er rekin ein full-
komnasta og best mannaða
endurhæfingarstöð landsins.
Þjónar hún íbúum hússins,
fólki í dagvist og fólki er
þarf á endurhæfingu og
þjálfun að halda skv. til-
vísun frá lækni.
3. Dagvist fatlaðra.
Sú starfsemi er rekin alla
virka daga frá 8.30 - 16.30.
Allt að 45 manns eru þar
skráðir, en 30 manns rúmast
þar í einu. í dagvistinni
er föndrað, rabbað, lesið,
sungið og spilað. Sjúkra-
þjálfarar veita hópþjálfun
og jafnframt er sundlaugin
stunduð.
4. Leiguíbúðir.
I einni álmu Sjálfsbjargar-
hússins eru 36 ibúðir ætl-
aðar fötluðum. íbúðirnar
eru hannaðar með hliðsjón
af þörfum fatlaðra og húsa-
leigu er stillt í hóf.
Tvær umræddra íbúða eru
gestaíbúðir þ.e. ætlaðar
til afnota fyrir fatlaða um
skamman tíma.
5. Vinnustofa fatlaðra.
Vinnu- og föndurstofan er
rekin alla virka daga eftir
hádegi.
Vinnuaðstaða þessi er sér-
staklega ætluð íbúum Vinnu-
og dvalarheimilisins.
6. í Sjálfsbjargarhúsinu er
rekin margvisleg önnur
starfsemi s.s. skrifstofur
Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra og Reykja-
víkurdeildarinnar, eldhús
og borðstofa, rúmgóð fél-
agsaðstaða, ferðaþjónusta
fatlaðra rekin af Reykja-
víkurborg og Hjálpartækja-
bankinn sameign Sjálfs-
bjargar lsf. og Rauða
Krossins.
2