Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.1990, Blaðsíða 5

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.1990, Blaðsíða 5
ATVINNUHAL FATLM5RA Félagsmálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir hefur ráðið Mörthu Jensdóttur til að sinna tíma- bundnu verkefni varðandi atvinnu- mál fatlaðra. Jafnframt hefur verið skipaður fimm manna starfs- hópur til ráðgjafar um þetta verkefni. Starfshópinn skipa eftirtaldir aðilar: Margrét Margeirsdóttir frá félagsmála- ráðuneytinu, sem jafnframt er formaður starfshópsins, Arni Sig- fússon frá Sambandi ísl. sveitar- félaga, Asmundur Hilmarsson frá Alþýðusambandi íslands, Helgi Hróðmarsson frá Samtökum fatlaðra og Jón Rúnar Pálsson frá Vinnu- veitendasambandi íslands. HLUTVERK Verkefni hópsins er að gera út- tekt á stöðunni í atvinnumálum fatlaðra, bæði hvað varðar al- menna vinnumarkaðinn og verndaða vinnustaði. Að lokinni úttekt skal starfshópurinn leggja fram tillögur um úrbætur og stefnu í atvinnumálum fatlaðra. VERNDAÐIR VINNUSTAÐIR Byrjað var á að senda spurningar til allra verndaðra vinnustaða. Martha hefur siðan verið önnum kafin við að fylgja þessu eftir. Upplýsingum hefur verið miðlað og farið fram á skýra og góða svör- un. Þessi vinna hefur borið ávöxt og nú hafa borist svör frá öllum vinnustöðunum. Þegar þetta er skrifað, er komið að því að vinna úr upplýsingunum og setja þær i skýrsluhæft form. ALMENNUR VINNUMARKAÐUR Eins og að framan greinir var ákveðið að athuga einnig stöðuna á almennum vinnumarkaði. Hópurinn kom sér saman um að besta leiðin til að afla upp- lýsinga væri að snúa sér milli- liðalaust til fyrirtækjanna. Þann 27. febrúar voru sendar spurningar til fyrirtækja og stofnana um land allt. Reynt var að velja fyrirtæki af öllum gerð- um og stærðum til þess að fá sem besta mynd af ástandinu. Þær upplýsingar sem hefur verið aflað er varða bæði fjölda fatlaðra í vinnu og einnig möguleika þeirra i framtíðinni. Þá er farið fram á viðhorf þeirra til þessara mála og reynt að fá fram þætti sem geta leitt til úrbóta. NIÐURSTAÐA Það er von þeirra sem standa að þessu verkefni að framkvæmd þess verði til að við stlgum skrefi nær í átt til úrbóta í atvinnu- málum fatlaðra. Upplýsingar úr þessum könnunum eru ekki aðeins mikilvægar fyrir þá sem starfa að málefnum fatlaðra beint og óbeint heldur ekki síður fyrir þá sem fá spurningarnar í hendur. Þ.e. þetta hvetur atvinnurekendur til umhugsunar um hvað betur má fara. Þó að ofangreindar kannanir séu mikilvægar eru tillögur að úrbót- um og framkvæmdir í framhaldi af því að mínu mati það sem upp úr stendur og mestu máli skiptir. Helgi Hróðmarsson, starfsm. Landssambands Þroskahjálpar og öryrkjabandalags íslands. Pennavinir= Þrjátíu og fjögurra ára gömul kona frá Filippseyjum óskar eftir að eignast pennavin á íslandi. Nafn hennar og heimilisfang er: Ms. Simone M. Malana, 340 Kaunlaran St. Brgy. Commonwealth Quezon City Philippines Simone hefur áhuga á ð fræðast um málefni hreyfihamlaðra á íslandi, en hún er sjálf lítillega fötluð. Simone skilur ensku. 5

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.