Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.1990, Síða 4
BÍLAÍIAL
Þann 29. janúar 1990 setti heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið reglugerð um breytingu á
reglugerð nr. 170/1987 um þátt-
töku almannatrygginga í bifreiða-
kaupum fatlaðra.
Lægri upphæðin, verður nú kr. 180
þúsund og sú hærri kr. 550
þúsund.
Tryggingaráð samþykkti þann 9.
febrúar s.l. eftirfarandi hækkun
á lánum lífeyrisþega til bila-
kaupa:
a) Lán til hreyfihamlaðra
kr. 180.000.-
b) Lán til þeirra, sem nota
stoðtæki og hjólastóla.
Einnig til atvinnubifreiða-
stjóra kr. 305.000.-
Hækkunin gildir frá 1. janúar
1990.
Samþykkt tryggingaráðs frá 2.
mars s.l., varðandi styrki til
kaupa á hjálpartækjum í bifreiðar
árið 1990, er svohljóðandi:
a) Sjálfskipting í bifreiðar
er greidd 40% hámark kr.
50.000. -
b) Vökvastýri i bifreið er
greitt 50%, hámark
kr. 35.000.-
c) Kostnaðarhluti öryrkja
vegna isetningar talstöðvar
í bifreið kr. 4.000.-
BENSÍN
Varðandi uppbót á elli- og ör-
orkulífeyri og örorkustyrk vegna
reksturs bifreiða hreyfihamlaðra,
er fjárhæðin fyrir timabilið
april/júní 1990 kr. 10.430.
Þessi uppbót er greidd fjórum
sinnum á ári fyrir þrjá mánuði í
einu.
Bifreiðaskattur.
Þeir, sem njóta örorkulífeyris
eða örorkustyrks fá niðurfelldan
þungaskatt af bifreiðum sinum.
P-MERKI
Leyfi til notkunar P-merkja nær
nú einnig til stofnana og sambýla
fyrir fatlaða, en þar er þörfin
oft mjög brýn. Lögreglustjórinn
í Reykjavík veitti leyfið þann
30. janúar síðastliðinn samkvæmt
beiðni félagsmáladeildar. Það eru
rauðu merkin (sem flestir
þekkja), sem eru notuð í þessu
skyni. Þau eru þó ekki skráð á
bílnúmer heldur á nafn viðkomandi
stofnunar.
4