Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.1990, Page 7
KÖNNUN A FERLIMALUM A AKRANESI
Sveitarfélögin í landinu hafa
staóið sig misvel í að framkvæma
ákvæói byggingareglugerðar varð-
andi aógengi fyrir fatlaða. En á
flestum stöóum er margt sem betur
mætti fara. Þess vegna er þaó
gleóiefni þegar ferlimálum eru
gerð skil hjá bæ j aryf irvöldum
vegna þess aó slik úttekt kallar
oft á aógeróir til úrbóta.
SAMÞYKKT BÆJARSTJÖRNAR.
Akranes er eitt þeirra sveitar-
félaga sem hafa gefið þessu gaum
og farið af staó með úttekt á aó-
gengismálum. Þann 14. nóvember
1989 samþykkti bæjarstjórn Akra-
ness samhljóða eftirfarandi til-
lögu. "Bæjarstjórn Akraness sam-
þykkir að fela byggingafulltrúa,
félagsmálastjóra og yfirmanni
dagvistar fatlaðra að kanna
ástand opinberra bygginga og
annarra þjónustustofnana á Akra-
nesi með tilliti til aðgengis
hreyfihamlaðra. Viókomandi
starfshópur skili greinargerð til
bæjarstjórnar í byrjun árs 1990.
í greinargerðinni komi fram hvað
helst sé ábótavant og hvaða úr-
bætur séu nauósynlegar til aó
koma þessum málum i vióunandi
horf. Tæknideild vinni lauslega
kostnaðaráætlun vegna nauósyn-
legra breytinga sem fylgi með út-
tektinni."
Þessa dagana er verió aó vinna
umrædda könnun og má geta þess að
nefndin vinnur þessa könnun eftir
greiningai*lykli ALFA-nefndarinnar
svokallaórar.
FRAMKVSMDIR í FERLIMALUM.
Of snemmt er aó segja til um
hversu mikilla breytinga sé þörf
á þeim stofnunum sem um er aó
ræða eóa hversu mikilla fjármuna
sé þörf til aó gera umræddar
stofnanir fullnægjandi með ofan-
greint í huga. En aó hálfu
bæjarstjórnar Akraness mun vænt-
anlega verða litið á þau atriði
þegar skýrslan kemur út og hlýtur
hún þá aó tengjast umræðum um
fjárhagsáætlun og framkvæmdir
ársins í ár og næstu ára. Þá
verður skýrslunni komið til
annarra aðila er málið varða með
ósk um lagfæringar á stöðum sem
ekki tengjast beint kaupstaónum.
Ofangreint framtak bæjaryfirvalda
á Akranesi er vissulega lofsvert
og verður spennandi að fylgjast
með framkvæmdum í framhaldi af
ofangreindri könnun. Vió höfum
fyrir okkur byggingareglugerð og
RB blöó þar sem fram kemur hvern-
ig aógengi skuli háttað. En
alltof víða eru þessi ákvæði
þverbrotin sem síóar kemur niður
á sjálfsögðum mannréttindum fólks
þ.e.a.s. að komast leiðar sinnar
þvi sem næst óhindrað. Þess
vegna er þaó von mín aó á næst-
unni feti fleiri sveitarfélög í
fótspor Akraness hvaó þetta
varðar.
Helgi Hróómarsson
starfsmaður
Landssamtakanna Þroskahjálpar
og öryrkjabandalags íslands.
K L I F U R
Fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaóra.
Otgefandi Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra
Abyrgóarmaður:
Ölöf Ríkarósdóttir
Prófarkalesarar:
Anna Guðrún Jóhannsdóttir
Sigurður Björnsson
Tölvuvinna og setning:
Þórarinn Sigurósson
7