Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.12.1990, Qupperneq 8
LL
O
Að svo komnu er ekki hægt að segja nákvæmlega til
um verð, en það mun verða á bilinu 60-65.000
krónur. Innifalið er flug, ferðir til og frá
flugvelli, ein heils- og ein hálfsdagsskoðunar-
ferð, fararstjórn og gisting i orlofshúsi.
Þeir sem hafa áhuga á að fara geta haft samband
við Lilju Þorgeirsdóttur i sima 29133. Hún tekur
við bókunum og svarar fyrirspurnum. Sætafjöldi er
takmarkaður oq bví ráðleqt að tryqqja sér pláss
sem fyrst.
Lilja Þorgeirsdóttir
-Félagsmáladeild-
Kynlíf -óháð fötlun-
Út er að koma á vegum
Sjálfsbjargar bækling-
ur, sem ber heitið:
Kynlif, óháð fötlun.
Þetta er leiðbeiningar-
rit fyrir fatlaða sem
búa á stofnunum,
starfsfólk og ættingja.
Einar Hjörleifsson
hefur þýtt bæklinginn
úr dönsku og annast út-
gáfu. Ragnheiður
Bragadóttir samdi kafla
um islenska hegningar-
löggjöf.
Þetta er annað hefið i
ritröð, sem Sjálfsbjörg
hefur hug á gefa út
smátt og smátt um mál-
efni tengd fötlun.
Fyrsta heftið er um
mænuskaða.
Bæði ritin eru fáanleg
á skrifstfofu Sjálfs-
bjargar, landssambands
fatlaðra, Hátúni 12,
simi 91-29133.
AÐLÖGUNARNÁMSKEIÐ FYRIR FATLAÐA
Helgina 25.-27. maí sl. hélt Sjálfsbjörg aðlögun-
arnámskeið fyrir fatlaða og aðstandendur þeirra.
Námskeiðið var haldið I húsnæði Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra í Reykjadal, Mosfellsbæ. Þetta
var fyrsta námskeiðið sinnar tegundar hérlendis, og
var það styrkt að hluta til af Öryrkjabandalagi ís-
lands.
Námskeið sem þessi eru hluti af félagslegri end-
urhæfingu. Markmiðið er að styðja hinn fatlaða og
f jölskyldu hans til þess að gera sér grein fyrir
og skilja betur félagslegar afleiðingar fötlunar,
til dæmis viðhorf almennings, viðbrögð vina og
vandamanna og einstaklingsins sjálfs við breyttum
aðstæðum.
Á námskeiðinu voru fluttir stuttir fyrirlestrar af
ýmsum toga um tilfinningaleg viðbrögð við fötlun og
tryggingamál. Einnig sögðu fjórir einstaklingar
frá reynslu sinni af þvi að vera fatlaður. Þá var
unnið i litlum hópum og ýmis mál rædd, bæði almenn
og persónuleg. Einnig voru veitttar ýmsar upplýs-
ingar hvað varðar þjónustu er tengist fötlun.
Þátttakendum gafst einnig tækifæri til að ræða
einslega við starfsfólk námskeiðsins.
Þátttakendur voru 15 talsins með mismunandi fötlun.
Sumir höfðu fatlast nýlega og aðrir verið fatlaðir
lengi, en fötlun margra hefur aukist með timanum.
Aðsókn var mjög góð utan af landi, en 9 komu þaðan
og 6 af Stór-Reykjavikursvæðinu.
Aðstaðan i Reykjadal er mjög góð og hentar einstak-
lega vel fyrir svona námskeið. Hjálparmenn voru
til staðar allan tímann. Boðið var upp á fæði og
gistingu á staðnum.
Greinlegt er að mikil þörf er fyrir svona námskeið
og það stendur til að halda annað næsta vor.
KLIFUR
8
Lilja Þorgeirsdóttir
-Félagsmáladeild-