Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.12.1990, Page 9

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.12.1990, Page 9
Félagsbiónusta sveitarfélaqa. Sameiginlegur fundur milliþinganefnda og framkvæmdarstjórnar Sjálfsbjargar, lands- sambands fatlaðra, haldinn i Sjálfsbjarg- arhúsinu, dagana 23. og 24. nóvember 1990, leggur áherslu á að frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitar- félaga verði samþykkt á yfirstandandi þingi. í þessum lögum telur Sjálfsbjörg nauðsynlegt að tryggja að þeir sem njóta heimaþjónustu greiði sama gjald, óháð þjónustuþörf. Framkvæmdasióður fatlaðra oqheimilisbiónusta við fatlaða. Sameiginlegur fundur milliþinganefnda og f ramkvæmda st j órnar Sjálfsbjargar, lands- sambands fatlaðra, haldinn i Sjálfsbjarg- arhúsinu, dagana 23. og 24. nóvember 1990, skorar á rikisstjórn Steingrims Hermanns- sonar að standa við ákvæði i málefnasamn- ingi sinum um að bæta heimilisþjónustu við fatlaða sem og að treysta fjárhagsgrund- vö11 Framkvæmdas j óðs fatlaðra. ÁLYKTANIR Dagana 23. og 24. nóvember siðast liðinn var hald- inn sameiginlegur fundur framkvæmdastjórnar Sjálfsbjargar og ýmissa milliþinganefnda, sem kjörnar eru á þingum landssambandsins til þess að vinna að framgangi ákveðinna málefna. Komandi Alþingiskosningar voru á dagskrá og ræddar leiðir til þess að kynna væntanlegum frambjóðendum baráttumál samtakanna. Ýmsar góðar tillögur komu fram, meðal annars sú að vel undirbúnir Sjálfs- bjargarfélagar, hópar eða einstaklingar, fari á framboðsfundi, taki þátt i umræðum og beini spurn- ingum til frambjóðenda. Þá verði öllum freunbjóð- endum send stefnuskrá Sjálfsbjargar og henni dreift á framboðsfundum. Einnig kom fram tillaga um að nýta Alþjóðadag fatlaðra i sama tilgangi, en hann er 24. mars 1991. Sett var á laggirnar nefnd til undirbúnings "kosn- ingabaráttu" Sjálfsbjargar. Eftirfarandi ályktanir voru einnig samþykktar á fundinum og hefur þeim verið komið á framfæri við hlutaðeigandi: Endurskoðun laqa um almannatryqqinqar. Sameiginlegur fundur milliþinganefnda og fram- kvæmdastjórnar Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, haldinn i Sjálfsbjargarhúsinu dagana 23. og 24. nóvember 1990, fagnar því að nú sér loks fyrir endann á endurskoðun laga um almannatrygg- ingar. Fundurinn telur að hlutverk almannatryggingalag- anna sé og eigi að vera að jafna aðstöðu og kjör þegnanna og tryggja mannsæmandi lifeyri þeim sem ekki geta unnið vegna fötlunar eða aldurs. Fundurinn lýsir ánægju sinni með tillögur að ýmsum úrbótum 1 þeim drögum að frumvarpi sem fyrir ligg- ur, s.s. stórhækkun vasapeninga þeirra er búa á stofnunum og að komið sé á fritekjumarki vegna þeirra, umönnunarbótum og breytingum á skerðingar- ákvæðum og fritekjumarki örorkulifeyris. Fundurinn bendir á að þeir sem eru hreyfihamlaðir verða óhjákvæmilega fyrir kostnaði vegna fötlunar sinnar, nefna má greiðslur vegna heimilishjálpar, viðhald bifreiðar og íbúðar, störf sem aðrir þjóð- félagsþegnar geta unnið sjálfir. Sjálfsbjörg tel- ur að hlutverk almannatrygginga sé m.a. að jafna þann mun og þvi beri skilyrðislaust að bæta hreyfihömluðum örorkukostnað sinn án tilits til tekna. Að þvi tilskildu telur Sjálfsbjörg unnt að fallast á tekjutengingu örorku- og ellilifeyris. það er þó algjört skilyrði að lifeyririnn byrji ekki að skerðast fyrr en aðrar tekjur einstakl- ingsins hafi náð kr. 100.000.— á mánuði og að allar tekjur hans, s.s. fjármagnstekjur, eigna- tekjur og lifeyrissjóðsgreiðslur, hafi sömu áhrif. Sjálfsbjörg skorar á heilbrigðisráðherra að láta breyta drögum að frumvarpi til laga um almanna- KLIFUR 9

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.