Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.03.1991, Blaðsíða 5
Pistill frá Sjálfsbjörg í Reykjavík.
í þessu greinarkorni sem hér er hafið er ætlunin að tæpa á ýmsu því
helsta sem er að gerast í félagsstarfinu hjá Sjálfsbjörg félagi fatlaðra í
Reykjavík og nágrenni, (Kópavogur-Hafnarfjörður-Garðabær-Bessastaða-
hreppur-Seltjarnarnes-Mosfellsbær).
Það verður því miður aö segjast eins og er, að hinni almenni félagsdoði
sem einkennir svo ísienskt samfélag um þessar mundir hefur knúið dyra
hjá okkur í allnokkrum mæli. Þetta lýsir sér einna helst í því að mjög
erfitt reynist að fá fólk til starfa og það er tiltölulega fámennur hópur sem
heldur starfinu gangandi. Þetta veldur því að félagið getur ekki beitt sér
eins og þyrfti. Það vantar nefnilega ekki verkefnin fyrir hagsmunafélag
hreyfihamlaðra á þessu 150.000 manna félagssvæði. Nægir hér að nefna
nokkra mikilvæga þætti:
1. Betra skipulag og tengsl við bæjarfélögin á félagssvæðinu, t.d.
félagsfundir um staðbundin verkefni, betri upplýsingatengsl við
félagsmálastofnanir og sveitarstjórnir. Samræmingu réttinda t.d.
ferðaþjónustu og fleira.
2. Betri kynningu gagnvart hreyfihömluðum og fagfólki. Fólki hættir
alltof oft til að setja öll "fötluðu" félögin saman í einn hrærigraut.
Við höfum vissa sérstöðu sem almenningur þarf að vita um.
3. Nýjar hugmyndir í félagsstarfinu og þjónustu við félagsmenn.
Hvernig getum við gert það eftirsóknarvert að vera félagi í
Sjálfsbjörg?
Þessar vangaveltur hér að framan breyta hinsvegar ekki þeirri staðreynd
að sitt lítið af hverju gerist hjá þessu 1300 manna félagi með sína skrif-
stofu og 1.5 starfskraft. Við erum með ferðanefnd sem skipulagt hefur
ýmis ferðalög t.d. helgarferð í júlí sl. um Snæfellsnes, haustferð um
Reykjanes og ákaflega ánægjulega heimsókn til Sjálfsbjargar á Suður-
nesjum.
Opin hús eru haldin í félagheimilinu þar sem ýmislegt er gert.
Félagsfundir eru haldnir vor og haust og er oft þokkalega mætt á þá.
Þegar um stærri samkomur er að ræða þurfum við reyndar að leita út
fyrir félagsheimilið, þar sem stærð þess eða öllu heldur smæð þess
stendur okkur nokkuð fyrir þrifum.
Hugíþróttirnar, skák og bridge, eiga fastan sess í dagskránni. Spilað er
öll mánudagskvöld og teflt er öll þriðjudagskvöld. Bridgeklúbburinn lagði
nýlega höfuðið í bleyti og keppti við Vatnsveitu Reykjavíkur.
Vatnsveitunni rann kalt vatn milli skinns og hörunds er úrslit voru kynnt
því Sjálfsbjörg sigraði nefnilega.
skrifstofuna, sem er mikil kjölfesta.
Þar eru unnið fréttablað félagsins,
miðlað upplýsingum hverskonar,
félagsheimilið loigt út, afgreidd
sundkort og svona mætti lengi
telja. Allar fjáraflanir fara að
sjálfsögðu í gegnum skrifstofuna.
Nú er mál að linni máli mínu að
sinni og verða ekki fleiri orð um
félagsstarfið hjá Sjálfsbjörg, félagi
fatlaðra í Reykjavík og nágrenni.
Með félagskveðju,
Sigurður Björnsson,
varaformaður Sjálfsbjargar, Reykjavík
Fréttatilkynning frá Stöð 2
Þeir sem eru 75% öryrkjar njóta nú
afsláttarkjara á áskrift að dagskrá
Stöðvar 2. Fyrir þá 75% öryrkja
sem nú þegar greiða áskrift að
Stöð 2 með greiðslukorti eru þetta
viðbótarafsláttur. Stöð 2 hvetur þá
sem vilja nýta sér þennan afslátt
að koma sjálfa, eða senda fulltrúa
sinn með örorkuskírteinið svo hægt
sé að færa inn afsláttinn. Þeir sem
búsettir eru á landsbyggðinni þurfa
að hafa samband við umboðsmenn
Stöðvar 2 í viðkomandi byggðar-
lagi. Aðeins er nauðsynlegt að
hafa samband við Stöð 2 í
Reykjavík eða umboösmenn hennar
um land allt í fyrsta skipti, til að
láta færa sinn inn á afsláttinn, eftir
það gengur afslátturinn sjálfkrafa
fyrir sig. Þessi afsláttur til 75%
öryrkja er í fyrsta skipti veittur af
Stöð 2 í samráði við Öryrkjabanda-
lag íslands.
Skákklúbburinn lagðist í víking í skákkeppni stofnana og fyrirtækja og er
þar í toþpbaráttu í sínum flokki þegar þetta er skrifað. Þetta eru jákvæð
dæmi um blöndun félagslífs okkar við almennt félagslíf. Meir af svo
góðu!
Góð samskiþti eru við Borgarleikhúsið og hefur verið farið á tvær sýn-
ingar í vetur: "Á köldum klaka" og "Fló á skinni". Svo eru alltaf fastir
liðir sem: basar - árshátíð - aðalfundur.
Hér hefur verið minnst á ýmislegt sem gert er - eflaust eitthvað gleymst.
En ekki er hægt að Ijúka umfjöllun sem þessari án þess að minnast á
Mánaðaráskrift að Stöð 2 fyrir 75%
öryrkja er með 10% afslætti kr.
2.142. Ef greitt er með greiðslu-
korti eru það 2.035 mánaðarlega.
Ársáskrift að Stöð 2 kostar kr.
22.356 fyrir 75% öryrkja og er þá
miðað við árið fyrirfram.
Þessi afsláttur tekur gildi 1. apríl og
hvetur Stöð 2 75% öryrkja til að
nýta sér þessi afsláttarkjör.
Þessi fréttatilkynning byggir á
samningi Ö.B.Í. og Stöðvar 2 og
birtist því hér með.