Víkurfréttir - 14.07.2021, Page 6
Nafli alheimsins
„Hvað er það með þetta Nafla
alheimsins kjaftæði alltaf í þér?“
Þetta var spurning sem ég fékk fyrir
nokkru síðan og auðvitað var ég
snöggur að svara því til að auðvitað
væri þetta Nafli alheimsins og allt tal
um eitthvað annað væri bara helber
vitleysa.
Hér skal nú reyndar tekið fram
að upp úr þessari spurningu og svo
svarinu á eftir upphófst hvorki rifr-
ildi eða slagsmál, enda hvorutveggja
hent fram í hinu mesta bróðerni.
Ég verð að viðurkenna það að
þessi spurning hreyfði aðeins við
mér og ég fór að pæla aðeins í
þessu „Nafla alheimsins“ kjaftæði
mínu: Af hverju er maður alltaf
að skrifa svona eins og að enginn
annar staður sé til sem taki „Nafla
alheimsins“ (Grindavík) fram?
Þá rifjaðist upp fyrir mér þegar
ég tók að mér að vera bílstjóri fyrir
hana móður mína vestur á firði
fyrir nokkrum árum síðan, um
Hvítasunnuhelgi, þar sem að hún
var boðin í fermingarveislu á æsku-
stöðvum sínum Flateyri við Ön-
undarfjörð. Veisluskyldum var sinnt
ásamt því að þvælast vítt og breitt
með þá gömlu.
Nema hvað að þegar við erum
að renna af stað suður aftur segir
sú gamla: „Þetta var allt svo miklu
stærra í minningunni.“ Ég náttúr-
lega hváði og árétta að þetta hafi nú
hvorki stækkað eða minnkað en það
sé náttúrlega eðlilegt að hún haldi
þetta þar sem að hún sé nú orðin
það gömul að hún hafi sjálfsagt verið
eitt af vitnunum þegar að skrifað var
upp á dánarvottorð fyrir Dauðahafið
og þetta geti nú allt verið búið að
skolast til í hennar haus.
Það var eins og við manninn mælt,
var skammaður eins og hver annar
flækingshundur fyrir þessa aðfinnslu
en þegar skömmunum lauk segir sú
gamla: „Þú veist hvað ég meina, fyrir
mér var þetta allur heimurinn. Við
lékum okkur hér í fjörunni og um allt
plássið og hér upp í hlíðarnar.“
Þessi setning: „Þetta var allt svo
miklu stærra í minningunni,“ sat í
mér lengi á eftir og gerir reyndar enn
– en núna skilur maður þetta kannski
betur. Kannski þarf maður að fara í
burtu í lengri eða skemmri tíma til að
öðlast víðsýni, eða þegar að maður
öðlast á einhvern hátt víðsýnina að
þá minnki um leið hið hversdagslega
umhverfi manns?
Fyrir mér er Grindavík alltaf Nafli
alheimsins, hér ólst ég upp og minn
leikvöllur er hér út um allar koppa-
grundir; fótbolti á kirkjulóðinni,
leita að kröbbum í fjörunni, sem var
að foreldra ráði stranglega bann-
aður staður og maður skyldi aldrei
neitt í því að vera hundskammaður
þegar maður kom holdvotur heim
og sagðist hafa „dottið í poll“. Það
var reyndar ekki mikið um polla
svona um hásumar í 20°C hita,
maður skilur það í dag hvernig var
séð í gegnum mann. Svo var farið
hér upp um öll hraun og upp á Þor-
björn, þannig að það var allt undir.
Það þótti ekkert tiltökumál að vera
staddur uppi á Þorbirni við það að
hrekkja múkka og uppgötva að það
var kominn „drekkutími“, skondrast
heim í hann og þruma svo upp eftir
aftur og taka upp þráðinn aftur við
að hrekkja múkkann.
Bryggjan var það heilagasta, og
hún var bannsvæði en einhvern
veginn varð þetta orð „bannsvæði“
afskaplega teygjanlegt hugtak í
mínum huga. Einhvern tíman eftir
að hafa verið gripinn glóðvolgur á
þessu yfirlýsta bannsvæði, þá til-
kynnti karl faðir minn mér það, að ef
hann myndi grípa mig aftur á þessu
yfirlýsta „bannsvæði hans“, þá myndi
hann henda mér í sjóinn.
Auðvitað fór þessi yfirlýsing
kallsins eitthvað fyrir ofan garð og
neðan hjá mér og ekki löngu seinna
sveif ég í fallegum boga út í höfnina.
Auðvitað lærði ég helling á þessu.
Þó fyrst og fremst það að ég þyrfti
að fela mig betur fyrir þeim gamla
þegar ég væri á bryggjunni.
Þegar upp er staðið þá eiga allir
sinn „Nafla alheimsins“ í sínu hjarta
og það er sko alls engin skömm að
því að halda merkjum hans á lofti,
hvar svo sem fólk er statt undir
sólinni.
Ég segi stoltur og stend við það:
Grindavík er „Nafli alheimsins“
í mínu hjarta.
augNablik MEð jÓNi StEiNari
Jón Steinar Sæmundsson
Sumarstemmningin hjá vF!
Víkurfréttir eru dottnar í sumargírinn í júlí og fram í ágúst.
Verðum með hálfsmánaðar útgáfu á blaðinu en vf.is er alltaf
vakandi og þar er að finna nýjustu fréttir og íþróttir.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi
Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is Umbrot/blaðamaður: Jóhann Páll Kristbjörnsson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Stóðu fyrir götumarkaði við Skrúðgarðinn
6 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár